Fréttablaðið - 19.05.2015, Side 18

Fréttablaðið - 19.05.2015, Side 18
19. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 18 Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að auglýsingar lögfræðistofa og fyrirtækja á þeim vett- vangi eru að verða daglegt brauð. Þar er oftar en ekki verið að hvetja fólk til þess að skoða rétt sinn vegna slysa sérstaklega og á það við um bæði umferðar-, frítíma- og vinnuslys. Ekki ætla ég að hafa sérstaka skoðun á því hvort það er góð eða slæm þróun, en ljóst er á umfangi og fjölda þeirra stofa sem gera út á slíka þjónustu að hún hlýtur að borga sig, eða hvað? Einhver sagði að þessi þróun byggði á offramboði lögfræðinga en í Lögmannablaðinu árið 2013 var grein sem bar yfirskriftina „Blikur á lofti í atvinnuhorfum lögfræðinga“ en í þeirri grein kemur fram að á sama tíma og 150 útskrifuðust úr meistaranámi á ári voru 70 skráðir á atvinnu- leysisskrá og hefur ástandið farið versnandi ár frá ári undanfar- ið hvað þetta snertir. Mjög mikið er um gylliboð í slysabransanum, ókeypis ráðgjöf er oft auglýst af hálfu þessara aðila með von um hag ef bætur nást út úr máli við- komandi einstaklings. Það er gott að verið sé að passa hagsmuni fólks og er ég mjög hlynntur því, en ég vil nota tækifærið og benda á nokkrar staðreyndir í tengslum við mál af þessum toga. Nú er það svo að þegar einstak- lingur slasast hefur hann ákveð- in réttindi sem nauðsynlegt er að fylgja vel eftir og tengjast skil- málum trygginga, kjarasamningi viðkomandi og frekari þáttum. Við slys er ferlið yfirleitt þess eðlis að hin læknisfræðilega nálgun er í forgrunni og aðstoð við einstak- linginn að komast aftur til heilsu. Slíkt gengur þó því miður ekki alltaf eftir, þá vitum við líka að bataferli geta verið mismunandi löng. Það fer eftir eðli áverka, meðferðarmöguleikum og ýmsu fleira. Almenna reglan er sú að reynt er að átta sig á stöðugleika- punkti vanda viðkomandi sem oftar en ekki er að ári liðnu eftir slys eða jafnvel lengur. Ákveðin eðlileg töf Þetta þýðir að það verður ákveðin eðlileg töf á áliti læknis eða vottorði um heilsufar einstaklings í kjöl- far slyss þegar verið er að meta afleiðingar þess. Oft er beiðnin send á heimilislækni eða þann lækni sem hefur borið ábyrgð á meðferð- inni sem ritar fyrsta vottorð, í fram- haldi þarf svo að gera frekara mat sem fer fram t.d. á vegum trygging- arfélaga þar sem iðulega er um að ræða matsgerðir læknis og lögfræð- ings til að meta miska viðkomandi, örorkustig og fleira. Þessar beiðn- ir um vottorð hafa undanfarin ár farið að berast fyrr en ella og jafn- vel nokkru áður en mögulegt er að meta langtímaáhrif. Læknum hefur þótt það sérkennilegt, en talsvert er gengið á eftir þessum vottorð- um enda um hagsmuni bæði skjól- stæðinga og lögmanna viðkomandi að ræða. Ákveðinnar óþolinmæði gætir þess vegna, en öllum er ljóst að mönnunarvandi blasir við í heil- brigðiskerfinu og þessi mál njóta ekki forgangs þar. Þessi kerfislægi vandi gerir það að verkum að þessi vottorð eru oftsinnis unnin utan hefðbundins vinnutíma, en flestir læknar eru sammála því að álag vegna slíkra mála hefur aukist undanfarin ár. Það dylst engum réttur sjúklinga í þessu efni, sem er skýr að lækni er skylt að rita vottorð sem beðið er um af hans hálfu og reyna læknar að verða við því eftir fremsta megni. Umræða mikilvæg En að mínu mati, vegna aukins álags og hraða af ofangreindum orsökum, er í auknum mæli óskað eftir útprentun úr sjúkraskýrslum einstaklinga í stað vottorðs. Nú er það svo að lögfræðingur skjólstæð- ings fær umboð til að leita gagna sem við koma því máli sem hann flytur fyrir skjólstæðing sinn. Þegar læknir ritar vottorð vegna umferðarslyss svo dæmi sé tekið fer hann yfir gögn í sjúkraskrá sem tengjast því máli og tekur afstöðu til fyrra og núverandi heilsufars en lætur óviðkomandi atriði liggja á milli hluta. Þarna er verið að verja einka- líf skjólstæðings, enda geta önnur veikindi verið afar persónuleg og ekki á nokkurn máta verið eðli- legt að lögfræðingur hafi innsýn í þau eins og til dæmis geðsjúk- dóma, fóstureyðingar, kynsjúk- dóma, krabbamein eða annað slíkt þegar hann er að leita eftir upp- lýsingum vegna meðhöndlunar við bakáverka eftir umferðarslys. Í mörgum tilvikum er umboð ein- staklinga til lögfræðings óskýrt hvað þetta varðar og ættu læknar almennt ekki að prenta út sjúkra- skrá einstaklings og senda lög- fræðingi hans nema með sérstöku samþykki sjúklings. Mín skoðun er reyndar sú að ekki eigi að prenta út sjúkraskrá og senda frá sér vegna mála sem þessa, heldur rita vottorð þó það taki lengri tíma. Mikilvægt er að taka umræðu um þessi mál og að almenningur átti sig á því hvað er verið að undir- rita og þá er ágætt að miðla því til bæði lækna og lögfræðinga að þeir finni ásættanlega lausn sem trygg- ir afgreiðslu mála og hagsmuni sjúklinga sem best. Lögmaðurinn eða læknirinn þinn? Undanfarið hefur mikið verið rætt um láglauna- stefnuna sem rekin hefur verið á Íslandi frá ómuna- tíð. Samstöðuhreyfing lág- launastefnunnar á marga formælendur úr röðum atvinnurekenda og stjórn- enda á ýmsum stigum sam- félagsins. Atvinnurekand- inn í litla fyrirtækinu segir það munu ríða fyrirtækinu að fullu ef laun hækka. Á meðan segir Seðlabankinn verðbólgu- drauginn síðar munu ríða bagga- muninn og gefa þegar vonlausri stöðu nýjan blæ af ömurleika. Sem er alveg ferlegt að hugsa til. Þá er ógleymdur stjórnar formaðurinn í ónefndri undirstöðugrein efnahags- lífsins – segjum bara fiskvinnslu – sem segir hluthafaflótta óumflýj- anlegan, ef í slíkar aðgerðir yrði ráðist. Sem er líka ferlegt að hugsa til. Þetta er því hálfgerð pattstaða, í mínum augum. Enginn getur gert neitt, og enginn gerir það. Allir eiga þeir samúð mína, þó mismikil sé. Stytting vinnudagsins gæti verið lausn. Stytting vinnudagsins úr hinum hefðbundnu 8 tímum í til dæmis 5 tíma gæti opnað ýmsa möguleika. Ef aðili A – segjum bara Jóhann – sem vinnur hjá virtu fyrirtæki í undirstöðugrein efnahagsins –segj- um bara fiskvinnslu – myndi vinna 5 tíma vinnudag í staðinn fyrir 8 eða 10, liti dæmið öðruvísi út. Að loknum vinnudegi væri orðinn til tími sem nýta mætti með ýmsum hætti. Jóhanni gæfist tími til að vinna meira og vinna sér inn meiri peninga. Til dæmis við þrif eða sölu Herbalife. Þeir sem vel geta unað við mánaðarlaun sín þurfa ekki að vinna meira. Þeir gætu jafnvel byrjað að stunda áhugamál sín af kappi. Hugsið ykkur, ef fjármálastjóri í virtu fyrirtæki gæti farið á leiklistarnámskeið kl. 3 og verið kominn heim til að elda mat kl. 5! Jóhann, aftur á móti, gæti þurft að vinna 8-9 tíma á dag. En ef það er með það að leiðarljósi að börnin hans þurfi ekki að alast upp á róló utan skipulagðrar dagskrár leik- skólanna, hlýtur að vera hægt að finna flöt á því. Það eina sem stæði út af borð- inu væri að rafvæða skattkorts- kerfið. Sem er náttúrulega löngu tímabært, ef út í það er farið. Allt á pappír yrði ferlegt maus í þessu kerfi. Vandamál gæti orðið með opn- unartíma þjónustuaðila. En ég tel það einnig orðið löngu tímabært að taka þá til endurskoðunar líka. Það kemst enginn í bankann milli 9 og 4! Það eru allir í vinnunni! Það sem þetta í raun fjallar um. Það hlýtur að vera flestum ljóst að glaður starfsmaður er betri starfskraftur en óhamingjusamur. Þeir eru ólíklegri til að fara í verk- fall, ólíklegri til að stunda óheiðar- leika í vinnu sinni og framleiðni þeirra er að öllum líkindum meiri. Áhyggjur af afkomu eru þránd- ur í götu gleðinnar, sama hversu oft við kyrjum að hamingjan komi innan frá. Stytting vinnudags- ins og jákvæðar afl eiðingar hennar ATVINNULÍF Ingi Vífi ll launamaður ➜ Það kemst enginn í bankann milli 9 og 4! Það eru allir í vinnunni! HEILBRIGÐIS- MÁL Teitur Guðmundsson framkvæmdastjóri CEO ➜ Mjög mikið er um gylliboð í slysabransanum, ókeypis ráðgjöf er oft aug- lýst af hálfu þessara aðila með von um hag ef bætur nást út úr máli viðkomandi. Frú forseti Eftir átta ára valda- tíð demókrata þá hefði maður haldið að repúblikan- arnir væru klárir með sitt næsta forsetaefni en þeim hefur ekki enn tekist að finna sigurstranglegan kandídat og allt virðist stefna í að þeir tefli fram þriðja runnanum, Jeb Bush. Þannig að allar líkur eru á að það verði aftur demókrati í Hvíta húsinu en enginn hefð- bundinn demókrati heldur Clinton, Hillary Clinton með fyrrverandi forsetann Bill Clinton sér við hlið. Hver hefði geta séð þetta fyrir eftir Monicu Lewinsky hneykslið á sínum tíma? Þegar forsetinn gerði heiðarlega tilraun til að breyta skilgreiningunni á kynlífi og sagði þessa ógleymanlegu setningu „I did not have sex with that woman“ án þess að farið sé nánar út í það „smá- atriði“. Það getur hins vegar varla verið tilviljun nú 16 árum seinna að Monica Lewinsky sé að skjóta upp kollinum vegna TED fyrirlesturs sem hún hélt nýverið. Það læðist að manni sá grunur að nú eigi að reyna að grafa undan forsetaframbjóð- andanum með því að draga upp þetta gamla mál en það þarf eflaust meira til að fella Hillary. Konan er búin að standa ansi margt af sér, Lewinsky málið var eitt, annað er að hafa verið 60 ára og tilbúin til að taka við forsetaembættinu og tapa útnefningunni og þurfa svo að bíða í 8 ár til að eiga annan séns í forsetann. http://www.deiglan.is Erla Ósk Ásgeirsdóttir AF NETINU Kirkjusandur - frumhugmynd að deiliskipulagi Vesturbugt - skipulagshugmynd 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 F -4 F 4 C 1 7 5 F -4 E 1 0 1 7 5 F -4 C D 4 1 7 5 F -4 B 9 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.