Fréttablaðið - 19.05.2015, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 19.05.2015, Blaðsíða 26
19. MAÍ 2015 ÞRIÐJUDAGUR4 Eurovision 2015 Hin 22 ára María Ólafsdóttir er fulltrúi okkar Íslendinga í Eurovision í ár. Hún lýsir sjálfri sér sem rólegri, feiminni og hlédrægri stúlku sem njóti sín best á sviði. Söngur er hennar líf og yndi og hún segist vart geta beðið eftir að fá að syngja fyrir alþjóð. Hana hefur dreymt um að fá tækifæri til að taka þátt í keppninni frá því hún var sex ára gömul. Tilfinningin sem fylgdi því að stíga á sviðið í fyrsta sinn hafi því verið mjög sérstök. María bjó fyrstu ár ævi sinnar á Blönduósi en sjö ára gömul flutti hún í Mosfellsbæ. Hún gekk í Verzlunarskólann og þaðan lá leið hennar í Kennaraháskóla Íslands. Hún tók sér frí frá kennaranám- inu vegna keppninnar og hefur enn ekki ákveðið hvort náminu verði fram haldið. „Líf mitt er á krossgötum í augnablikinu og ég ætla að taka mér góðan tíma eftir þetta ævin- týri til að ákveða mig með fram- haldið. Þetta hefur allt verið svo óvænt og ég get í augnablikinu ekki hugsað lengra en Eurovision,“ segir María. Hún bætir við að keppnin hafi þegar opnað henni fjölmargar dyr og vonast til að fá fleiri tæki- færi til að syngja og leika en hún hefur látið töluvert að sér kveða í leikhúsum undanfarin ár. LÍTIÐ EINKALÍF María segir lífið hafa breyst á örskotsstundu eftir sigurinn í Söngvakeppni sjónvarpsins. „Mitt persónulega líf hefur breyst þar sem allt í einu þekkja mig allir og ég ræð mér ekki alveg sjálf leng- ur. Ég fór úr því að lifa mjög miklu einkalífi yfir í að allt í einu vita allir allt um mann. Svo ég þarf að hafa fyrir því að halda persónuleg- um hlutum fyrir mig. Mjög marg- ir hafa skoðanir á því sem ég er að gera,“ segir hún. María segir það þó ekki einungis bundið við Ísland því úti í Vín virðast flestir kann- ast við hana. „Hér úti eru allir að mynda mann og með útprentaðar myndir af mér hvar sem ég kem. Þetta er skrítið en vonandi venst ég því.“ Hún segist jafnframt finna fyrir mikilli ábyrgðartilfinningu og finnst mikilvægt að vera góð fyr- irmynd. „Börn herma mjög mikið eftir þekktu fólki, eins og ég sjálf hermdi mikið eftir Birgittu Hauk- dal á sínum tíma. Þess vegna skipt- ir miklu máli hvernig fólk eins og ég hagar sér og kemur fram við annað fólk.“ BLAÐAMENNIRNIR ÁGENGIR Dagskrá Maríu í Vínarborg er þaul- skipulögð frá morgni til kvölds. Dagurinn er tekinn snemma og honum lýkur seint. Hún hefur því lítinn tíma fyrir sjálfa sig. Sem dæmi má nefna að hún gleymdi að borða fyrir fyrstu æfinguna á stóra sviðinu og endaði í blóðsykursfalli. Öllum blaðamannaviðtölum þurfti því að aflýsa þann dag. „Þegar ég kom út og sá hvað allt er stórt og hvað blaðamennirnir eru ágengir þá fékk ég smá sjokk,“ segir hún. NÝFUNDIN ÁST María segist hafa orðið vör við gagnrýni en lætur það lítið á sig fá. Hún sé með fagfólk allt í kring- um sig sem gefi henni góð ráð. Það hafi gagnast henni mikið. Fjöl- skylda hennar standi einnig þétt við bakið á henni. Þá verður kær- asti hennar henni einnig til halds og trausts. Honum kynntist hún ný- verið en það er Gunnar Leó Páls- son trommari. „Við spilum stund- um saman og stefnum að því að gera meira,“ segir hún. Tilhlökkunin er mikil að sögn Maríu því gamall draumur er að rætast. „Mig hefur dreymt um að standa á þessu stóra sviði síðan ég sá Selmu árið 1999, þegar ég var sex ára. Það var því mjög sérstök tilfinning að standa á sviðinu á æf- ingu.“ Hún vonast til að fá að kynnast öðrum listamönnum í keppninni og segist ætla að nýta þetta stóra tækifæri sem best. „Einnig ætla ég að njóta mín á sviðinu því þetta er tækifæri sem ég mun geyma sem minningu um alla ævi,“ segir hún, glöð í bragði. Lífið á krossgötum í augnablikinu Pálmi Ragnar Ásgeirsson, einn laga- höfunda Unbroken, segir tilhlökkun- ina fyrir keppninni mikla. Stress hafi lítið gert vart við sig enda María öruggur flytjandi. „Við erum flest í hópnum að gera þetta í fyrsta skipti, þannig að við erum eiginlega bara spennt að fá að upplifa alla stemninguna í kringum þessa keppni. Það er búið að segja okkur svo margt og miðað við það sem ég hef heyrt þá á ég von á að maður detti inn í einhverja allt aðra veröld,“ segir Pálmi. Hann segist ekki vilja spá fyrir um gengi lagsins, en vonast til að það komist upp úr undankeppninni. „Við förum út með núll væntingar. Við ætlum fyrst og fremst að hafa gaman og gera þetta vel, allt annað er bara bónus.“ Lagið Unbroken er sem fyrr segir samið af Pálma og félögum hans í StopWaitGo. Þeir hafa látið mikið að sér kveða í íslensku tónlistarlífi og stefna hátt. Lagið sníða þeir sérstak- lega að tónlistarmönnunum sjálfum, líkt og í tilfelli Maríu. „Við höfum þekkt Maríu lengi. Við vildum sýna hvað hún gæri góð söng- kona en það þarf að sníða lögin þannig að söngvararnir skíni og það var það sem við lögðum upp með í þessu lagi. Við vildum sýna hvað í henni býr og löngu flottu power-nóturnar hennar og það var það sem við höfðum í huga þegar við sömdum lagið,“ segir Pálmi. Textinn er hádramatískur. Hann fjallar um sambandsslit og ástarsorg sem þeim fylgir en aðspurður segir Pálmi þá ekki hafa sótt í þeirra eigin reynslubanka. Textinn sé þó eitthvað sem flestir tengi við. „Þetta er í raun bara einhver inspírasjón sem stundum kemur til manns. Stundum kemur það ekki en þarna gerðist það. Við búum í Bandaríkjunum og lagið var þar af leiðandi samið þar en það eina sem við lögðum upp með í þessu lagi var trommutakturinn; hljómarnir og takturinn og í kjölfarið fórum við í það að finna hvaða orð pössuðu þar inn í.“ Þá segist Pálmi hafa mikla trú á Maríu. „Hún verður stórkostleg eins og alltaf. Hún mun hljóma vel og standa sig frábærlega á sviðinu,“ segir hann. Allt annar heimur blasir við María segist finna fyrir mikilli ábyrgðartilfinningu. Pálmi Ragnar er einn af þeim sem bera ábyrgð á Eurovision-laginu í ár. Hér er hann ásamt hópnum. „Við höfum alltaf lagt upp með það á þessu heimili að leggja okkur fram og gera okkar besta og sættum okkur svo við hverju það skilar. María hefur alltaf haft gaman af leiklist, söng og dansi og maður áttaði sig fljótt á því hversu fær og hæfileikarík hún væri. Þetta er hennar áhugamál og bara lífið hennar,“ segir Anna Hjálmarsdóttir, móðir Maríu. Anna segist ekki ætla að gera sér neinar væntingar og ætlar þess í stað að fylgjast stolt með á hliðarlínunni og njóta. „Þetta er tækifæri og áskorun fyrir hana að takast á við. Mér líst ljómandi vel á þetta og bara orðin spennt,“ segir hún og bætir við að hún hafi fulla trú á dóttur sinni. María verði sem áður með einlægnina að leiðarljósi. „Hún er svo góð manneskja og er jafnfalleg að utan og innan en það eru ekki allir sem hafa það. Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og það er þessi einlægni og heiðarleiki sem María hefur til að bera sem ég held að muni skila henni miklu,“ segir Anna, en hún og nánasta fjölskylda eru nú stödd í Vín með Maríu. Með einlægnina að leiðarljósi NÆRANDI ÞÆTTIR Á NÝJU VEFSVÆÐI VÍSIS Fylgstu með þessum fróðlegu örþáttum á visir.is/heilsuvisir. Vísir.is er hluti af 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 F -D 9 8 C 1 7 5 F -D 8 5 0 1 7 5 F -D 7 1 4 1 7 5 F -D 5 D 8 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.