Fréttablaðið - 19.05.2015, Síða 44
19. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24
AUÐVELDARI
GERÐU VINNUNA
CITROËN SENDIBÍLAR.
HAGKVÆMIR, ÁREIÐANLEGIR OG Á GÓÐU VERÐI.
Citroën Nemo
2.550.000 kr. m. VSK
2.056.452 kr. án VSK
Citroën Berlingo
2.950.000 kr. m. VSK
2.379.032 kr. án VSK
Citroën Jumpy
3.890.000 kr. m. VSK
3.137.097 kr. án VSK
NÝR Á ÍSLANDI
KYNNTU ÞÉR FRÁBÆRA VIÐBÓT VIÐ STERKA
SENDIBÍLALÍNU CITROËN.
Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
Brimborg er stærst í sölu atvinnubíla á Íslandi.
Veldu traust umboð með einstöku þjónustuframboði fyrir bíla- og tækjaflota.
15á
ra afmæli
Citroën
Nýir og notaðir bílar: Söludeild er opin alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Skoða
ðu
citroen.is
Næstkomandi föstudag verður
opnuð í Listasafni Íslands sýningin
SAGA Þegar myndirnar tala. All-
sérstæð sýning á verkum íslenskra
listamanna sem var fyrst sýnd
í Kunsthalle Recklinghausen og
heldur héðan í Samtímalistasafnið
í Tallinn í Eistlandi. Halldór Björn
Runólfsson er annar tveggja sýn-
ingarstjóra og hann segir þetta
verkefni hafa í raun hafist fyrir
um tveimur árum. „Það er hald-
in gríðarlega stór leiklistarhátíð
á hverju sumri þarna í Reckling-
hausen og safnið þar hefur verið
samhliða með þematískar sýning-
ar á hverju ári. Að þessu sinni var
leitað til okkar með að taka virk-
an þátt í sýningunni. Við settumst
yfir þetta ásamt Norbert Weber
sýningarstjóra frá þeim og vorum
almennt á því að fara ekki þessa
hefðbundnu landslagsnálgun frá
Íslandi. Við ákváðum að fara frek-
ar þá leið að verkin segðu sögu og
út frá því fórum við að velja inn
listamenn. Þetta er í raun mynd-
list sem segir frá.“
Halldór Björn segir að þessi
nálgun geri sýninguna óneitanlega
nokkuð sérstaka og fjölbreytta
í senn. „Þarna er til að mynda
að finna eitt af öndvegisverkum
Kjarvals, magnað frásagnarverk
sem safnið eignaðist fyrir tveim-
ur árum. Þetta er verk sem kallast
Lokasenna og segir frá því þegar
Loki mætir í veislu til guðanna og
hleypir þar öllu í bál og brand með
slúðri og stælum. Svo er reyndar
eitt verk eftir þýskan listmálara
og er það elsta málverkið sem til
er af Þingvöllum málað árið 1862.
Við erum reyndar með stóra ljós-
myndaprentun af frumverkinu
sem er stórt og viðkvæmt fyrir
ferðalög. En það er eftir þýskan
málara að nafni Johann Heinrich
Hasselhorst sem var hér á ferð og
hitti Sigurð málara og varð mjög
uppnuminn af samtali við hann.
Sigurður sagði honum frá Þing-
völlum og þar með var hann rok-
inn af stað en þetta er einn þekkt-
asti 19. aldar málari Þýskalands.
En svo erum við nú aðallega í
nútímanum. Erum með frábært
verk eftir Hrafnkel Sigurðsson.
Rokkverkið Mercy eftir Ragnar
Kjartansson. Gabríela Friðriksdótt-
ir er með risastórt verk – magnaða
innsetningu. Hulda Hákon og Ólaf-
ur Elíasson eru bæði með leiftrandi
skemmtileg verk sem segja sögur
úr efnahagshruninu, og svo mætti
lengi telja enda eigum við Íslend-
ingar ógrynni af frábærum mynd-
listarmönnum.“
Halldór Björn fer fögrum orðum
um íslenska myndlistarmenn í dag
og því er ekki úr vegi að forvitnast
um afstöðu hans til þeirra þungu
orða sem myndlistarrýnir RÚV
lét falla frá Feneyjum í síðustu
viku. „Mér finnst þetta nú gróf-
lega ályktað og hrekk við þegar
ég heyri svona lagað. Því miður
komst ég ekki til Feneyja í ár en
hef eins og aðrir reynt að fylgjast
með og skoða úr fjarska. Mér sýn-
ist moska Christophs Büchel gott
verk en það gefur þó ekkert tilefni
til þess að láta falla svona hroka-
fullan sleggjudóm. Ég ætla bara að
líta á þetta sem einhvern bölvaðan
misskilning.
Ég vil frekar hvetja fólk til þess
að koma hingað á Listasafn Íslands
og sjá allt það góða sem íslensk
myndlist hefur að bjóða. Þegar
sýningin SAGA verður opnuð þá
byrja myndirnar að tala.“
magnus@frettabladid.is
Myndir segja sögur
Halldór Björn Runólfsson er annar sýningarstjóra SAGA Þegar myndirnar tala.
Hann fer fögrum orðum um íslenska myndlist og lítur á harðorða gagnrýni
myndlistarrýnis RÚV á íslenska listamenn sem einhvern bölvaðan misskilning.
LOKASENNA Halldór Björn með verk Kjarvals þar sem segir frá uppnáminu sem
Loki olli í veislu guðanna með slúðri og vitleysisgangi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
INNSETNING Halldór Björn við verk Gabríelu Friðriksdóttur sem er á meðal fjöl-
margra nútímaverka í sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNING
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
E
-E
C
8
C
1
7
5
E
-E
B
5
0
1
7
5
E
-E
A
1
4
1
7
5
E
-E
8
D
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K