Fréttablaðið - 19.05.2015, Page 54

Fréttablaðið - 19.05.2015, Page 54
19. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 34 MORGUNMATURINN SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is FA S TU S _H _3 3. 05 .1 5 Fastus ehf., - Velkomin í verslun okkar. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Resorb Sport Fæst í fjölmörgum apótekum Stærsti fasteignavefur landsins fasteignir.is „Við höfum ekki verið þekktir fyrir það að vera neitt of hressir en nýja lagið er samt mjög hresst,“ segir Magnús Trygvason Elias- sen, trommuleikari hljómsveitarinnar Moses Hightower. Sveitin sendir í dag frá sér fyrsta smáskífulagið af væntanlegri plötu sveitar- innar en lagið ber nafnið Snefill. Moses Hightower hefur að undanförnu unnið af kappi í hljóðveri við að hljóðrita nýja plötu en gert er ráð fyrir að hún komi út í haust. „Það eru einhver þrjú eða fjögur lög svo gott sem tilbúin en við ætlum að reyna að klára allar upptökur í ágúst eða september,“ svarar Magnús spurður út í nýju plötuna. Allir meðlimir sveitarinnar eru einnig önnum kafnir í öðrum verkefnum og því oft erfitt að koma mönnum saman. „Við ætlum okkur samt að reyna að spila svolítið í lok sumars. Það er gaman að geta komið út lagi á þriggja ára fresti,“ bætir Magnús við og hlær. Fyrir hefur hljómsveitin gefið út tvær breiðskífur, Búum til börn árið 2010 og Aðra Mósebók árið 2012. „Við erum svo sannar- lega að bregða aðeins út af vananum í nýja efninu. Þetta nýja efni er svolítið hresst. Ég er allavega að fíla þetta,“ segir Magnús léttur í lundu. Hægt verður að nálgast lagið á helstu tónlistarveitum internetsins. - glp Óvenju hress smellur kominn út frá Moses Hljómsveitin Moses Hightower sendir frá sér fyrsta smáskífulagið í þrjú ár. Ný plata er væntanleg í haust. NÝ SMELLUR Moses Hightower stefnir á að klára nýja plötu fyrir haustið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Nú hugsa ég meira um mat og borða minna eftir matarhreinsunina. Ég fæ mér glútenlausan hafragraut með heimalagaðri möndlumjólk, bláberjum og mórberjum. Svo smá hampfræ og kókosflögur.“ Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur „Mig eiginlega bara langaði að gera eitthvað klikkað,“ segir Marólína Fanney Friðfinnsdóttir, sem hefur verið með „smiley“, eða bros-bling, síðan í lok síðasta árs. „Margar af vinkonum mínum eru með þetta og margar í viðbót sem ég veit að langar í svona,“ segir hún og bætir við að hún telji áhugann vaxandi meðal stelpna. „Ég hef ekki séð neinn strák með svona,“ skýtur hún að. Marólína segir einn helsta kost þess að fá sér „smiley“ vera hve auðvelt er að stjórna sýnileika skartsins. „Ég nota stálpinna, sem er byrjunarpinninn, en mun svo skipta yfir í plastpinna síðar,“ svarar hún aðspurð um ótta við áhrif á tannheilsuna. Marólína segist ekki finna fyrir lokknum þannig séð, hvorki þegar hún borðar né burstar tennnur. „Mér finnst þetta bara töff og langaði í einhverja breytingu. Það er auðvelt að fela þetta ef maður kærir sig um það,“ segir hún en undirstrikar að ætli stelpur sér að fá sér svona skuli þær fara á stofu. „Alls ekki vera að baksa við þetta sjálfar, það gæti stút- að á ykkur vörinni.“ Vont að bursta „Mér fannst ekkert vont að fá mér gatið, myndi segja svona tíu sinnum minna vont en að bíta fast í tunguna,“ segir Elín Ásta Finnsdóttir. Hún hefur þó þurft að taka sinn pinna úr. „Ég var alltaf svo aum þegar ég tók pinnann úr og það var vont að bursta tennurn- ar og svoleiðis,“ útskýrir Elín, sem þykir þó „smi- ley“ verulega smart og því svekkjandi að geta ekki nýtt gatið. Elín tekur undir með Mar- ólínu og segist geta ímyndað sér að „smiley“ verði vin- sælt vegna þess hve auðvelt er að stjórna hversu áber- andi það er. „Mér finnst satt að segja sjálfri töluverðir fordómar fyrir svona götunum, fullorð- ið fólk og foreldrar eru oft með athugasemdir,“ segir hún og bætir við að þó sé greinilegt að fólk sé að verða opnara fyrir svona götunum. gudrun@frettabladid.is Mögulega tannskemm- andi tíska í gangi Ungum konum þykir nú eft irsóknarvert að skarta svokölluðu „smiley“, þar sem húðfl ipinn milli efri varar og tannholds er gataður. Tannlæknir varar við æðinu. MEÐ PINNANN Elín Ásta varð að losa sig við pinnann og ekki leið ekki á löngu áður en gatið var gróið saman. TREND Írena Ösp Daníelsdóttir segist sjá sífellt fleiri stelpur með „smiley“ og fær margar spurningar. Hún segir Face- book loga af forvitni um þessar mundir. „Við mælum alls ekki með þessu. Lokkur sem nuddast við tennurnar hefur eyðileggjandi áhrif á glerunginn til lengri tíma litið,“ segir Hallfríður Gunn- steinsdóttir tannlæknir. Hún segir stálpinnana hættulega glerungnum, og það sé mýta að tala um að plastpinnarnir séu hættulausir þótt þeir séu skárri. Hallfríður segist ekki hafa fengið mörg tilfelli inn á borð til sín þar sem „smiley“ sé farið að hafa slæm áhrif, enda um nokkuð nýja tísku að ræða. Hins vegar hafi hún mikla reynslu af pinnum í tungum sem hafi haft afar slæmar afleið- ingar, svo sem tannbrot og fleira. „Svona aðskotahlut- ir hafa alltaf afleiðingar á tennurnar okkar, þó svo þær komi ekki endilega í ljós strax.“ ➜ Sérfræðingur segir: ÖÐRUVÍSI Marólína sér ekki eftir neinu og er afar sátt með sitt skart. Hún hefur ekki miklar áhyggjur af glerungnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 E -B B 2 C 1 7 5 E -B 9 F 0 1 7 5 E -B 8 B 4 1 7 5 E -B 7 7 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.