Morgunblaðið - 11.06.2015, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Við munum gera allt sem í okkar
valdi stendur til að tryggja öryggi
keppenda og vegfarenda, þannig að
allir skili sér heilir heim. Það er
markmiðið,“ segir Benedikt Tóm-
asson, einn skipuleggjenda hjólreiða-
keppninnar WOW Cyclothon sem
fram fer síðar í mánuðinum. Hjólað
er hringinn í kringum landið, rúma
1.300 kílómetra, og þátttakendur
hafa aldrei verið fleiri, um 1.100 tals-
ins. Eru hjólreiðamenn, bílstjórar og
aðrir aðstoðarmenn meðtaldir.
Benedikt segir samráð hafa verið
haft við Vegagerðina og lögregluna,
einkum varðandi skipulagið í upphafi
og enda keppninnar, til að valda ekki
umferðaröngþveiti á fjölförnum leið-
um. Leyfi hefur fengist til að tak-
marka umferð í Hvalfirði og síðan við
endastöðina í Hafnarfirði. Keppn-
ishaldarar sjá sjálfir um vegamerk-
ingar en þurfa að skila inn grein-
argerð til Vegagerðarinnar um þær
merkingar, að sögn Svans G. Bjarna-
sonar, svæðisstjóra Vegagerðarinnar
á suðursvæði.
Þá hefur eftirlitsbílum verið fjölg-
að, til að fylgjast með því að allt fari
fram samkvæmt settum reglum.
Tugir starfsmanna og sjálfboðaliða
verða að störfum í tengslum við
keppnina.
Endastöðin í Vallahverfi
Rásmarkið var fært frá Hörpu upp
í Laugardal og endastöðin verður á
Krýsuvíkurvegi í Vallahverfinu í
Hafnarfirði, en var við Rauðavatn í
fyrra.
Að sögn Benedikts munu kepp-
endur hjóla frá Laugardal í lög-
reglufylgd að Esjurótum og sem fyrr
segir hefur heimild fengist fyrir um-
ferðartakmörkunum um hluta Hval-
fjarðar fyrsta keppnisdaginn. Þegar
komið er úr Hvalfirði er búist við að
greiðist betur úr umferðinni. Bæði
keppendur og ökumenn eru hvattir
til að gæta varúðar. Ræst verður
þriðjudaginn 23. júní og búist er við
fyrstu keppendum til baka tveimur
sólarhringum síðar.
„Við fengum nokkrar kvartanir
eftir síðustu keppni, lögðumst vel yfir
þær og teljum okkur hafa komið til
móts við þessar ábendingar,“ segir
Benedikt og bendir m.a. á breytta
leið undir lok keppninnar. Ekki verð-
ur hjólað yfir Hellisheiði heldur
beygt til suðurs frá Selfossi, niður að
Eyrarbakka og um Suðurstrand-
arveg inn á Krýsuvíkurveg, framhjá
Kleifarvatni og til Hafnarfjarðar.
Áheitum safnað
Ræst verður út í hollum en WOW
Cyclothon gengur aðallega út á liða-
keppni, þar sem einn hjólar í einu og
keppendur skiptast á. Benedikt segir
fjölda fyrirtækja hafa skráð sig til
leiks, sem og einstaklingar, en kepp-
endur safna áheitum í góðgerð-
arskyni. Í fyrra söfnuðust um 15
milljónir króna, en þá voru þátttak-
endur um 500 talsins. Miðað við
skráninguna í ár má búast við enn
meiri áheitum.
Keppnisleið WOW Cyclothon breytt til að valda ekki umferðaröngþveiti Keppendur yfir 1.000
eða tvöfalt fleiri en í fyrra Hjólað hringinn og Suðurstrandarvegur valinn í stað Hellisheiðar
Samráð við Vegagerð og lögreglu
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hjól Keppendum fjölgar stöðugt í WOW Cyclothon en að meðtöldum aðstoð-
armönnum verða þátttakendur nú um 1.100. Ræst verður 23. júní nk.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Nýi Hljómalindarreiturinn í Reykjavík er farinn að taka
á sig mynd og er búið að steypa upp 60% af fyrirhuguðu
byggingarmagni Icelandair Hótel Reykjavík Cultura.
Reiturinn afmarkast af Laugavegi, Smiðjustíg,
Hverfisgötu og Klapparstíg.
Þingvangur byggir upp reitinn og segir Pálmar
Harðarson, framkvæmdastjóri félagsins, að steypuvinnu
ljúki í september eða október.
„Stefnan er að ljúka við allar byggingarnar og torg-
ið á milli þeirra um vorið 2016. Við erum byrjaðir að
grafa grunn fyrir síðasta húsið, sem verður reist að
Klapparstíg 30. Húsin að Laugavegi 17 og 19 og viðbygg-
ingar eru uppsteypt og er verið að ganga frá þeim að inn-
an og utan. Hótelið er í uppsteypu og er á áætlun. Inni-
vinna er að hefjast í kjallara og á jarðhæð,“ segir Pálmar.
Verslanir á jarðhæð en íbúðir á efri hæðum
Til viðbótar er búið að steypa upp Hverfisgötu 28,
en í húsinu númer 26 er skemmtistaðurinn Celtic Cross á
jarðhæð, á horni Smiðjustígs og Hverfisgötu.
Á Laugavegi 17 og 19 og Klapparstíg 28 og 30 verð-
ur þjónusta og verslanir á jarðhæð en íbúðir á efri hæð-
um. Pálmar segir húsin að Laugavegi 17 og 19 verða
tilbúin eftir hér um bil fjóra mánuði.
Þegar fyrst var greint frá verkefninu var rætt um að
framkvæmdum myndi ljúka fyrir sumarið 2015 þannig
að hægt yrði að taka á móti fyrstu gestum hótelsins í
sumarbyrjun. Sú áætlun breyttist og var þá áformað að
ljúka verkefninu fyrir árslok 2015. Þeirri áætlun var svo
breytt og er nú sem fyrr segir miðað við að reiturinn
verði tilbúinn næsta vor.
Fækkuðu herbergjunum úr 144 í 115
Pálmar segir það eiga þátt í að uppbyggingin tafðist
að Icelandair-hótelin hafi ákveðið að fækka herbergjum
á Cultura-hótelinu úr 144 í 115. Með því sé hægt að
stækka herbergin og bjóða meiri gæði.
„Hótelið breyttist. Það þurfti að hanna hluta þess
upp á nýtt. Það hægði á framkvæmdunum um fjóra mán-
uði. Þessi ákvörðun var tekin af leigjanda okkar,“ segir
Pálmar, en Icelandair-hótelin munu gera 25 ára leigu-
samning vegna hótelsins.
Að sögn Pálmars vinna að jafnaði um 50 manns að
uppbyggingu reitsins. Hann segir iðnaðarmönnum munu
fjölga þegar nær dragi verklokum.
Fram kemur á vef arkitektastofunnar Arkþings,
sem hannar nýja Hljómalindarreitinn, að þar verði hótel,
veitingastaðir, verslanir og íbúðir. Bæði sé um nýbygg-
ingar að ræða sem og viðbyggingar við eldra húsnæði og
endurbætur. Nýtt almenningstorg verður á reitnum með
aðgengi frá Laugavegi og Smiðjustíg.
Opnun miðbæjarhótels
tefst um tíu mánuði
Hönnun Cultura-hótelsins var breytt í miðjum klíðum
Morgunblaðið/Júlíus
Hljómalindarreiturinn úr lofti Uppbyggingin felur í sér verulega þéttingu byggðar á grónu svæði í miðborginni.
Ríkissaksóknari hefur ákært fimm
pilta á aldrinum 17 til 19 ára sem
grunaðir eru um að hafa nauðgað
16 ára stúlku í samkvæmi í Breið-
holti í maí á síðasta ári.
Málið hefur verið á borði ríkis-
saksóknara síðan í júní í fyrra þeg-
ar lögregla lauk rannsókn á því.
Stúlkan lagði fram kæru á hend-
ur piltunum þann 7. maí á síðasta
ári. Þeir voru handteknir samdæg-
urs og sátu í gæsluvarðhaldi í eina
viku. Þeir hafa allir gengist við því
að hafa haft samfarir við stúlkuna
en segjast hafa talið að hún væri því
samþykk. Þeim ber þó ekki saman
um atburðarásina. Við rannsóknina
var m.a. lögð fram myndbands-
upptaka sem einn piltanna tók og
teknar voru skýrslur af fjölda fólks.
Fimm piltar ákærðir fyrir hópnauðgun
sjálfstæðisflokkurinn
Afnámhafta, efnahagsmál
& lækkun skatta
Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins
fjallar um ástand og horfur á hádegisfundi
íValhöll, föstudaginn 12. júní 2015, kl. 12.10.
Húsið opnað kl. 11.40. Kaffiveitingar, allir velkomnir!
Mannanafnanefnd hefur samþykkt
að skrá kvenmannsnöfnin Sylvia,
Aríana, Móa, Hleiður, Karún,
Hebba, Indí og Þjóðar, og karl-
mannsnöfnin Sigurörn og Cæsar.
Í rökstuðningi nefndarinnar um
samþykkt nafnsins Sylvia segir að
samkvæmt gögnum Þjóðskrár beri
fimm konur eiginnafnið Sylvia í
þjóðskrá sem uppfylli skilyrði
vinnulagsreglnanna. Nafnið kemur
jafnframt fyrir í manntölum á tíma-
bilinu 1840 til 1920. Nöfnunum Ei-
leithyja og Cris var hafnað en engin
ber nafnið Eileithyja og Cris telst
ekki hafa öðlast hefð hér á landi.
Mannanafnanefnd samþykkir nafnið Karún