Morgunblaðið - 11.06.2015, Qupperneq 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015
Vandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
JAVA 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Einhver ótti steðjar að þér í sambandi
við það að þú náir ekki takmarki þínu. Sam-
komulag virðist óhugsandi en gefstu ekki
upp.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú munt eiga mikilvægar samræður við
foreldra þína, yfirmenn eða aðra yfirboðara í
dag. Allt blessast að lokum og alveg óþarfi að
æsa sig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að gera einhverjar ráðstaf-
anir varðandi heilsu þína. Dagurinn í dag ætti
að vera tilvalinn til þess. Gerðu það sem þú
hefur ánægju af, þú átt það skilið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er engin ástæða til að óttast
skuldbindingar. Varastu að vanrækja vin sem
þarf á þinni aðstoð að halda.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gagnrýni á að vera mild. Reyndu að
njóta alls þess fallega og rómantíska sem
gæti orðið á vegi þínum í dag. Ekki hafa
áhyggjur af öllum heiminum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gættu þess umfram allt að vanda
framkomu þína í orði og á borði. Vertu
nægjusamur/nægjusöm og taktu þér tíma til
að hlæja.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú laðar fram það besta í öðrum með því
að hrósa og uppörva. Reyndu að halda ró
þinni og bíða til morguns.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gakktu frá öllum reikningum áð-
ur en þú svo mikið sem lætur þig dreyma um
að eyða peningum í aðra hluti. Hamingjan er
jákvætt hugarfar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Mundu að allt sem þú gerir hefur
sínar afleiðingar bæði fyrir sjálfa/n þig og oft
aðra líka. Vertu heiðarleg/ur og hlúðu að ætt-
ingjum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Forðastu að taka mikilvægar
ákvarðanir og farðu varlega í samskiptum við
aðra í dag. Láttu alla sjálfsmeðaumkun lönd
og leið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur gott af því að breyta til á
einhvern hátt hvort sem það er heima fyrir
eða í vinnunni. Vertu óhrædd/ur við að kanna
nýjar leiðir og taka einhverja áhættu því allt
mun fara vel að lokum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gættu þess að ganga ekki til samn-
inga við aðra en þá sem þú treystir og að
texti samkomulagsins sé réttur og tæmandi.
Taktu á þig rögg en ekki stinga höfðinu í
sandinn.
Sigurlín Hermannsdóttir kvart-aði yfir því á Leirnum á
þriðjudag að það væri vætutíð og
„víst bara rigning í veðurkortum
fram undan“:
Rigning á Ragnheiði dundi
rennblaut hún emjaði og stundi:
Vosbúð mig vekur
og vatnsrúmið lekur
ég sekk eins og hundur á sundi.
Davíð Hjálmar Haraldsson er
leikinn í því, sem gjarna er skil-
greint sem „leikur að orðum“:
Hjá ilmandi ungmeyju lá Karl
er óspurð hún byrjaði: „Já Karl,
ef langar þig að
strax leyfi ég það“
og óðara heimtað’ann hákarl.
Páll Imsland sagði: „Hér er ein
orðsifjalimra, æfing í merkingar-
fræðilegri leikfimi, sem óvíst er að
nokkru sinni hljóti vinsældir.
Ef hugsarðu’ um hugtakið fyndni
í hugann upp strax kemur lyndni,
sem rituð með y
ríma eins og með i,
svo að þarf ekki’ að ríma með
þyndni.“
Aftur var Páll á ferðinni og
heilsaði leirliði undir alskýjuðum
himni.
Að málverkið málaði Scheving
má teljast sannað án efing,
en aulinn Sig. Gamm
hélt allt öðru fram
og þjösnaði málinu’ í þrefing.
Fyrir réttri viku orti Jón Ingvar
Jónsson á Boðnarmiði:
Heyr þú, mín hjáróma köll,
minn Herra, þó stunduðu spjöll,
Hitler, Stalín,
Hlín og Malín,
já, blessa þú börnin þín öll.
Og bætti síðan við: „Það kann
samt að vera að tveir fyrstu hafi
aldrei iðrast og því erfitt að gera
mikið fyrir þá, og enginn ætti
(enn) að setjast í dómarasæti
vegna hinna.“
Kristján Karlsson orti:
Mælti Einar á Eyrarlandi,
„mikið andskotans djöfuls fjandi
er Suðurland ljótt
þegar svörtust er nótt
hjá sumrinu á Norðurlandi.“
Og í lokin gömul vísa:
Þessar klappir þekkti ég fyrr
þegar eg var ungur.
Átti ég víða á þeim dyr;
eru þar skápar fallegir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Leikur að limrum
og orðum
Í klípu
,,ÞEIR LEYFA OKKUR BARA AÐ HRINGJA
EINU SINNI Á VIKU. ÞAÐ ER EINS GOTT
AÐ ÞÚ ERT EKKI SÍMSVARINN.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
,,MEIRA AÐ SEGJA ÞEGAR ÉG VAR KRAKKI,
ÞÁ BORÐAÐI ÉG HÆGT.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að nota dúndrandi
rakspírann þinn.
MANSTU Í GÆR...
ÞEGAR ÉG ÁT
NÆSTUM ÞVÍ
KLEINUHRING!?
VAR ÞAÐ NOKKUÐ EINHVERN-
TÍMANN UM ÞAÐ LEYTI SEM
ÉG BORÐAÐI KLEINUHRING?
EN AFTUR Á MÓTI,
ÞÁ ER ÉG FJÓRUM
KLUKKUTÍMUM
OF SNEMMA Í
MORGUNMAT!
,,DÆS” ER ÞAÐ NÚ NÓTTIN TIL
AÐ VERA FJÓRUM KLUKKUTÍMUM
OF SEINN Í MAT!
Fáir staðir reyna eins mikið á þolrifsambanda fólks og húsgagnavöl-
undarhúsið IKEA og vídeóleigur.
IKEA heldur áfram að gera sitt
besta til að stía pörum um allan heim
í sundur en vídeóleigurnar hafa hins
vegar dáið drottni sínum á gervi-
hnattaöld og lækkað skilnaðartíðni á
landinu.
x x x
Oft gat það virst einfaldara aðfinna lausn á deilum fyrir botni
Miðjarðarhafs en að komast að sam-
eiginlegri niðurstöðu um hvaða
mynd skyldi leigja. Í samninga-
umleitununum voru iðulega dregnar
fram gamlar ýfingar og nákvæm töl-
fræði um hversu oft hvor um sig
hafði fengið að ráða var borin á borð
af þeim sem töldu sig hafa orðið fyrir
barðinu á velgjulegri rómantískri
gamanmynd eða heilalausri hasar-
mynd einum of oft.
x x x
Eftir dauða vídeóleiganna eru hinsvegar fá fyrirtæki eftir sem láta
sig innri mann viðskiptavinarins eins
miklu varða. Þannig er Víkverji nán-
ast aldrei beðinn um kennitölu, þess-
ar helgustu persónuupplýsingar
hvers Íslendings, lengur.
x x x
Fastur liður í nær hverri heimsókná vídeóleigu var aulahrollurinn
þegar bólugrafni unglingurinn við
kassann bar upp hina tilvistarlegu
spurningu „Hvað er kennitalan
þín?“ eins og fyrirbærið væri honum
algerlega framandi. Hann hefur lík-
lega verið litlu nær um eðli þess þeg-
ar einu svörin sem hann fékk voru
endalausar bunur af tölum sem voru
þar að auki mismunandi eftir því
hvern hann spurði.
x x x
Félagi Víkverja, orðheppinn maðurmeð glöggt auga fyrir alvar-
legum þjóðfélagsmeinum eins og
rangri notkun spurnarfornafna,
hafði fundið viðeigandi svar við svo
heimspekilegum vangaveltum sem
gat svalað fróðleiksþorsta starfs-
mannsins. „Kennitalan mín er tákn.
Hún er tákn um þátttöku mína í
þessu samfélagi manna.“
víkverji@mbl.is
Víkverji
Og orð hans býr ekki í yður, því að þér
trúið ekki þeim, sem hann sendi.
(Jóh. 5:38.)