Morgunblaðið - 11.06.2015, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Enginn staður – íslenskt landslag
nefnist sumarsýning Hafnarborgar
sem opnuð verður í aðalsal safnsins
laugardaginn 13. júní kl. 15. Þar get-
ur að líta verk átta samtímaljós-
myndara sem allir eru búsettir á Ís-
landi og beina sjónum sínum að
íslenskri náttúru. Þau eru Björn
Árnason, Claudia Hausfeld, Daniel
Reuter, Edda Fransiska Kjarval,
Ingvar Högni
Ragnarsson,
Katrín Elvars-
dóttir, Pétur
Thomsen og Stu-
art Richardson og
eiga það öll sam-
eiginlegt að nota
ljósmyndina sem
miðil. Sýningar-
stjórar eru Ás-
laug Íris Frið-
jónsdóttir og
Unnur Mjöll S. Leifsdóttir.
„Okkur langaði á sýningunni að
gefa ljósmyndum meira vægi. Verkin
á sýningunni endurspegla innra og
ytra landslag. Listamennirnir horfa
á náttúruna hver með sínum augum
og verkin kalla fram hjá hverjum og
einum meðvitund um staði sem koma
kunnuglega fyrir sjónir. Þetta er
landslagið sem er okkur öllum svo
kunnugt, myndin sem við sjáum þeg-
ar við lítum út um bílglugga á ferð
okkar um landið, staðirnir sem bera
engin nöfn, umhverfið sem við sjáum
á milli merkilegu áfangastaðanna,“
segir Áslaug og tekur fram að allar
eigi myndirnar það sameiginlegt að
vera lágstemmdar.
Engir sparidagar
„Þarna fá gulnaða grasið, svörtu
sandarnir, hraunið og bláa birtan að
njóta sín,“ segir Áslaust og rifjar upp
að náttúra og landslag hafi löngum
verið umfjöllunarefni listamanna.
„Meðvitað eða ómeðvitað hefur land-
ið verið upphafið með því að beina
sjónum að stórbrotnu og nánast há-
leitu landslagi þar sem þekkt kenni-
leiti og sögufrægir staðir eru áber-
andi,“ segir Áslaug og tekur fram að
hvað þetta varði sé ljósmyndin engin
undatekning. „Undanfarin ár hefur
sá miðill gegnt mikilvægu hlutverki
við ímyndarsköpun landsins einkum
þegar litið er til ferðaþjónustu. Hvar-
vetna sjáum við landslagsmyndir af
leiftrandi norðurljósum, stór-
brotnum jöklum, spegilsléttum vötn-
um og litríkum fjöllum,“ segir Áslaug
og tekur fram að á sýningunni Eng-
inn staður sé horft til verka lista-
manna sem líta landið öðum augum
og leitast við að fanga fegurðina í
þeim augnablikum sem við veitum
oft ekki eftirtekt.
Unnur bendir á að veðrið spili
stórt hlutverk í mörgum myndanna á
sýningunni. „Þegar maður lítur til
baka yfir íslenska listasögu og lands-
lagsmálverk þá er alltaf sól og blíða,
en með því móti er verið að upphefja
náttúruna. En með greiðara aðgengi
að landinu verður það hversdags-
legra fyrir vikið. Á sýningunni er
ekki verið að draga fram sparidag-
ana eða -staðina heldur hversdags-
leikann.“
Að sögn Áslaugar birtast í verkum
sýningarinnar ólík hugmyndaleg
nálgun við landið og afstöðu manns-
ins til þess. „Claudia Hausfeld, Katr-
ín Elvarsdóttir og Pétur Thomsen
horfa með rannsakandi hætti á nátt-
úruna. Claudia myndar náin og oft á
tíðum persónuleg tengsl við við-
fangsefni sín, Katrín skoðar hvernig
verksummerki mannsins mæta nátt-
úrunni og Pétur gerir ítarlega rann-
sókn á afmörkuðu svæði í sínu nær-
umhverfi. Edda Fransiska Kjarval
og Ingvar Högni Ragnarsson velja
myndefni sín af ólíkum ástæðum,
Edda eftir tilfinningu í ferð sinni um
landið en Ingvar finnur staði þar sem
löngu gleymdir eða leyndir sögulegir
atburðir hafa átt sér stað. Björn
Árnason virðir fyrir sér víðáttuna og
fangar um leið veður og birtu. Í öðr-
um verkum horfir hann niður fyrir
sig og grandskoðar jörðina sem hann
stendur á. Daniel Reuter og Stuart
Richardson velja sér afmörkuð svæði
úr landslaginu. Með því að útiloka liti
undirstrikar Daniel myndbyggingu,
form og áferðir í verkum sínum á
meðan Stuart horfir yfirvegað og úr
fjarlægð yfir landið og skoðar hvern-
ig það tekur breytingum yfir tíma.“
Lágstemmdar landslagsmyndir
Enginn staður – íslenskt landslag er sumarsýning Hafnarborgar sem opnuð verður nk. laugardag
Ljósmynd/Daniel Reuter
Urð Hraunið er áberandi í mynd Daniels Reuter án titils frá árinu 2013.
Ljósmynd/Stuart Richardson
Landslag Lagskipt landslag nefnist mynd Stuarts Richardson frá 2013.
Ljósmynd/Ingvar Högni Ragnarsson
Gras Gulnað gras í mynd án titils eftir Ingvar Högna frá árinu 2014.
Áslaug Íris
Friðjónsdóttir
Ljósmynd/Katrín Elvarsdóttir
Sumar Horfið sumar 5 nefnist mynd Katrínar Elvarsdóttur frá árinu 2009.
Sindri Bergmann
Þórarinsson hef-
ur verið valinn
úr hópi 89 um-
sækjenda til þess
að stýra þjón-
ustu RÚV við
börn og ung-
menni. Í tilkynn-
ingu frá RÚV
segir að Sindri
muni leiða fag-
hóp RÚV um barnaþjónustu, sam-
hæfa innkaup, gerð og miðlun alls
barnaefnis. Auk þess verður hann
tengiliður við utanaðkomandi aðila
á þessu sviði. Þá mun hann ritstýra
nýjum vef og hafa umsjón með
nýrri stafrænni barnaútvarpsrás,
KrakkaRÚV.
Sindri hefur rekið kvikmyndafyr-
irtæki, unnið sem tæknimaður,
hugmyndasmiður og fram-
kvæmdastjóri og er fyrrverandi
deildarstjóri í Kvikmyndaskóla Ís-
lands. Hann á að baki nám í frum-
kvöðlafræðum og hljóðtækni.
Mun stýra
KrakkaRÚV
Sindri Bergmann
Þórarinsson
Arnljótur, portal 2xtacy og Hekla
munu koma fram á skemmtistaðnum
Húrra í kvöld. Arnljótur Sigurðsson
gaf út rafdiskinn Til einskis snemma
á þessu ári en í tilkynningu segir að
hann muni stefna á ný svæði í kvöld.
Hann er einn af forsprökkum reggí-
sveitarinnar Ojba Rasta, en leitar
yfir í raftónlist þegar hann kemur
fram einsamall.
Portal 2xtacy er tríó sem sam-
anstendur af Áslaugu Brún Magnús-
dóttur, Ásthildi Ákadóttur og Jófríði
Ákadóttur. Í tilkynningu segir að
þær hafi allar víðfeðman bakgrunn í
listum ýmiss konar og hafi komið
víða við í menningarlífi landsins en
þess má geta að Jófríður og Ásthild-
ur mynda tvíeykið Pascal Pinon auk
þess sem sú fyrrnefnda er meðlimur
Samaris. Þá er Hekla ein fárra þere-
mínleikara á Íslandi. Hún gaf út
stuttskífuna Hekla EP fyrir ári og
hlaut Kraumsverðlaun fyrir. Húsið
verður opnað klukkan 20 og hefjast
tónleikarnir klukkan 21.
Tónleikar Arnljótur mun koma fram á Húrra auk Portal 2xtacy og Heklu.
Raftónlist og þeremín-
leikur á Húrra í kvöld
Gíslastofa verður formlega opnuð
við hátíðlega athöfn á morgun
klukkan 17 í húsnæði Myndhöggv-
arafélagsins í Reykjavík á Nýlendu-
götu 15. Gíslastofa er vinnustofa á
annarri hæð húsnæðisins sem út-
hlutað verður til nýliða innan félags-
ins til eins árs í senn. Þetta er gert
til að heiðra minningu Gísla Krist-
jánssonar sem lést fyrr á þessu ári.
Gísli tengdist félaginu og húsnæði
þess að Nýlendugötu marg-
slungnum böndum og fæddist hann
til að mynda í húsinu árið 1924.
Hinn 9. júlí árið 1993 afhenti
Reykjavíkurborg Myndhöggvara-
félaginu húsnæðið á Nýlendugötu og
var Gísla í framhaldinu boðið að
setja upp aðstöðu til járnsmíði á
staðnum. Í tilkynningu félagsins
segir að Gísli hafi verið óþreytandi
við að deila reynslu sinni og þekk-
ingu með félagsmönnum. Árið 2010
var Gísli Kristjánsson gerður að
heiðursfélaga Myndhöggvarafélags-
ins í Reykjavík.
Morgunblaðið/Kristinn
Minning Árið 2010 var Gísli Kristjánsson gerður að heiðursfélaga Mynd-
höggvarafélagsins í Reykjavík. Stofan verður opnuð honum til heiðurs.
Gíslastofa opnuð til minn-
ingar um heiðursfélaga