Morgunblaðið - 11.06.2015, Page 32

Morgunblaðið - 11.06.2015, Page 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015 Listhópar Hins hússins hafa nú hafið sína árlegu sumargöngu. Ungu fólki gefst þar kostur á að sækja um og koma með hug- myndir að skapandi verkefnum og eru valdir hópar eða einstaklingar sem fá síðan tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum í átta vikur. Í tilkynningu segir að verkefnin séu afar fjölbreytt, skapandi og skemmtileg og að þau verði sýni- leg vegfarendum Reykjavík- urborgar. Hóparnir að þessu sinni eru mjög fjölbreyttir en þar má nefna Bláeygðu vofuna sem er listanafn Tryggva Geirs Torfasonar, nema við sviðslistabraut Listaháskóla Ís- lands. Markmið Bláeygðu vof- unnar er að búa til senu af litlum danssýningum sem leika við til- finningar áhorfenda, sjónarfegurð og þá dýrð sem hreyfingar og leikræn tjáning getur vakið. Hóparnir eru tíu talsins og má fyrst sjá verk þeirra á fyrsta föstudagsfiðrildi sumarsins sem fram fer í miðbænum á morgun á milli klukkan 12 og 14. Þar má til að mynda sjá hópinn Náttsól, sem skipaður er þremur ungum tónlist- arkonum, Elínu Sif Halldórs- dóttur, Guðrúnu Ólafsdóttur og Hrafnhildi M. Ingólfsdóttur. Í til- kynningu segir að markmið þeirra sé að gera hlut íslenskra kvenna í dægurlagatónlist tuttugustu aldar sýnilegri. Hópurinn mun færa verk eftir íslensk kventónskáld í nýjan búning, auka veg þeirra og virðingu og benda á fyrirmyndir fyrir ungar konur sem eru að feta sín fyrstu spor á sviði dæg- urtónlistar. Morgunblaðið/Eggert Sumargleði Listhópar Hins hússins hafa verið ansi skrautleg síðustu ár. Fyrstu föstudagsfiðr- ildin flögra á morgun Tónlistarkonan Sóley fagnar útkomu breiðskífu sinnar Ask the Deep í Frí- kirkjunni í Reykjavík í kvöld. Húsið verður opnað kl. 20 og hefjast tón- leikarnir um hálftíma síðar. Um plöt- una segir á Facebook-síðu viðburð- arins að hún sé dimm og djúp brottför frá lágstemmdum píanótón- um Krómantíkur og mjúk rödd Sól- eyjar leiði hlustendur dýpra inn í dökka ævintýraheima sem hún hafi áður vísað í á fyrri plötum. „Á Ask the Deep opnar Sóley box Pandóru með fyrstu nótunum sem lokast síðan aftur við síðustu tóna plötunnar. Á henni fer Sóley með áheyrendur í ferðalag á ímyndaðar slóðir og er hún bæði margbrotnari og fjölbreyttari í hvernig platan er samin og útsett, og skáldskapurinn er margslungnari,“ segir þar. Ask the Deep er önnur sólóplata Sóleyjar en sú fyrri, We Sink, kom út árið 2011 og hlaut lofsamlega dóma. Í viðtali við Morgunblaðið sem birtist 20. maí sl. sagði Sóley að platan hefði fyrst átt að vera um hafið og hversu djúpt og óhugnanlegt það væri en eftir því sem liðið hefði á upptökur og textasmíði hefði hún farið að skrifa meira um hvernig henni liði persónu- lega. „Mér fannst það vera svipuð til- finning og það væri að búa á hafs- botninum,“ sagði Sóley. Sóley heldur útgáfutón- leika í Fríkirkjunni Ljósmynd/Ingibjörg Birgisdóttir Fögnuður Sóley heldur upp á út- gáfu Ask the deep í Fríkirkjunni. Sýning á verkum myndlistar- mannsins Húberts Nóa Jóhann- essonar, Innviðir/Within, verður opnuð í Týsgalleríi í dag kl. 17 og stendur til 27. júní. Húbert Nói hef- ur í höfundarverki sínu gaumgæft staðsetningar og minni og lögmál þeim tengd, kyrrstöðu og hreyf- ingu, segir í tilkynningu frá gall- eríinu. Húbert Nói útskrifaðist úr Ný- listadeild Myndlista- og handíða- skóla Íslands árið 1987, hefur hald- ið yfir 30 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Verk eftir hann má finna í öllum helstu söfnum landsins og einnig einkasöfnum viðsvegar um heim. Týsgallerí er að Týsgötu 3 og er opið frá fimmtudegi til sunnudags kl. 13-17. Innviðir Húbert Nói Jóhannesson. Húbert Nói sýnir í Týsgalleríi San Andreas 12 Jarðskjálfti ríður yfir Kali- forníu og þarf þyrluflug- maðurinn Ray að bjarga dóttur sinni. Metacritic 43/100 IMDB 6,7/10 Laugarásbíó 22.00 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00 Tomorrowland 12 Metacritic 60/100 IMDB 6,9/10 Sambíóin Álfabakka 17.20, 20.00, 22.40 Sambíóin Egilshöll 17.20 Sambíóin Kringlunni 17.20 Sambíóin Akureyri 17.30 Spy 12 Susan Cooper í greining- ardeild CIA er í rauninni hug- myndasmiður hættulegustu verkefna stofnunarinnar. Morgunblaðið bbbmn Metacritic 84/100 IMDB 7,4/10 Laugarásbíó 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.35 Sambíóin Keflavík 22.20 Smárabíó 17.30, 20.00, 22.40 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20 Good Kill 16 Herflugmaðurinn Thomas Eg- an hefur þann starfa að ráð- ast gegn óvinum Bandaríkj- anna með drónum sem hann flýgur úr öruggu herstöðv- arskjóli, fjarri átakasvæðinu sjálfu. Metacritic 65/100 IMDB 6,3/10 Sambíóin Álfabakka 22.55 Hot Pursuit 12 Vanhæf lögreglukona þarf að vernda ekkju eiturlyfjasala fyrir glæpamönnum og spilltum löggum. Metacritic 49/100 IMDB 3,2/10 Sambíóin Kringlunni 18.00, 20.00 Avengers: Age of Ultron 12 Þegar Tony Stark reynir að endurvekja gamalt friðar- gæsluverkefni fara hlutirnir úrskeiðis og það er undir Hefnendunum komið að stöðva áætlanir hins illa Ultrons. Morgunblaðið bbbmn IMDB 9,3/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 20.00. Bakk Tveir æskuvinir ákveða að bakka hringinn í kringum Ís- land til styrktar langveikum börnum. Bönnuð yngri en sjö ára. Morgunblaðið bbbbn Háskólabíó 20.00, 22.10 Pitch Perfect 2 12 Morgunblaðið bbbmn IMDB 7,2/10 Laugarásbíó 17.00 Smárabíó 20.00, 22.30 Child 44 16 Brottrekinn sovéskur herlög- reglumaður rannsakar rað- morð á börnum. Morgunblaðið bmnnn IMDB 5,8/10 Sambíóin Kringlunni 22.00 Loksins heim Metacritic 48/100 IMDB 6,7/10 Smárabíó 15.30 Ástríkur á Goðabakka Júlíus Sesar ákveður að reisa glænýja borg til að um- kringja Gaulverjabæ. IMDB 7,0/10 Smárabíó 15.30 Fúsi 10 Fúsi er liðlega fertugur og býr einn með móður sinni. Líf hans er í afar föstum skorðum og fátt kemur á óvart. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 64/100 IMDB 7,7/10 Háskólabíó 17.30 Bíó Paradís 18.00 Wild Tales Bíó Paradís 17.45 Human Capital Bíó Paradís 17.45, 22.15 Birdman Bíó Paradís 20.00 Leviathan Bíó Paradís 20.00 Hross í oss Bíó Paradís 20.00 Vonarstræti Bíó Paradís 22.00 Blind Bíó Paradís 22.30 Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is Kvikmyndir bíóhúsanna Eftir að heimurinn hefur gengið í gegnum mikla eyðileggingu er hið mannlega ekki lengur mannlegt. Í þessu umhverfi býr Max, fámáll og fáskiptinn bardagamaður. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 88/100 IMDB 9,3/10 Sambíóin Álfabakka 17.20, 20.00, 22.40 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.40 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30 Mad Max: Fury Road 16 Bræðurnir Gummi og Kiddi hafa ekki talast við áratugum saman. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 83/100 IMDB 8,2/10 Laugarásbíó 16.00, 18.00, 20.00 Smárabíó 17.45, 20.00, 22.10 Háskólabíó 17.30, 20.00, 22.10 Borgarbíó Akureyri 17.40 Hrútar 12 Á eyjunni Isla Nublar hefur nú verið opnaður nýr garður, Jurassic World. Viðskiptin ganga vel þangað til að nýræktuð risaeðlutegund ógnar lífi fleiri hundruð manna. Metacritic 63/100 IMDB 8,6/10 Laugarásbíó 17.00, 20.00, 22.35 Sambíóin Álfabakka 17.20, 17.20, 20.00, 20.00, 22.40, 22.40 Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.35 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30 Smárabíó 15.30, 17.15, 17.15, 20.00, 20.00, 22.40, 22.40 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.40, 20.00, 22.20 Jurassic World 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.