Morgunblaðið - 24.06.2015, Page 8

Morgunblaðið - 24.06.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2015 Umræðuhefðin á Alþingi hefurstórbatnað með nýjum þing- mönnum sem eru yfirlýstir tals- menn annars konar stjórnmála. Þeir vilja kveðja gamla tíma átaka- stjórnmála, langdregins karps sem engu skilar, en vilja þess í stað ræða málefni á málefnalegan hátt.    Þetta eru boð-berar lýðræðisins, vilja að vilji meirihlutans nái fram að ganga en ekki vilji þeirra sem fara sínu fram með yfirgangi og óeðlilegum vinnubrögðum.    Þess vegna hafa þessir boðberarnýja tímans og lýðræðisins náð þeim glæsilega árangri á Al- þingi á þessu ári að halda hátt í 1.500 ræður um fundarstjórn for- seta og gera til viðbótar hátt í 1.000 athugasemdir.    Þetta hefur tekið tæpa sex heilavinnudaga þingmanna og þar sem þingmenn eru 63 hafa farið í þetta um 16 mannmánuðir í vinnu.    Á síðasta kjörtímabili sýndistjórnarandstaðan þessari málefnalegu lýðræðisumræðu miklu minni skilning. Þá fóru að meðaltali vel innan við 600 ræður á samsvarandi tímabili í fund- arstjórn forseta og athugasemdir, sem er aðeins fjórðungur þess sem lýðræðisást málefnalegra þing- manna hefur krafist í ár.    Þessi jákvæða þróun sýnirglöggt mikilvægi samræðu- stjórnmálanna, þar sem skortur á tíma er ekki látinn hindra þing- menn í að ræða ýtarlega brýnustu hagsmunamál landsmanna, svo sem fundarstjórn forseta og dag- skrá Alþingis. Helgi Hrafn Gunnarsson Samræðustjórn- málin sanna sig STAKSTEINAR Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi | Opið virka daga 10-18, laugard. 11-15 Vor og sumar 2015 Veður víða um heim 23.6., kl. 18.00 Reykjavík 11 skýjað Bolungarvík 13 heiðskírt Akureyri 12 léttskýjað Nuuk 12 léttskýjað Þórshöfn 8 léttskýjað Ósló 16 skúrir Kaupmannahöfn 17 skýjað Stokkhólmur 15 skúrir Helsinki 15 skúrir Lúxemborg 17 léttskýjað Brussel 15 skýjað Dublin 20 skýjað Glasgow 18 skýjað London 18 léttskýjað París 17 heiðskírt Amsterdam 12 alskýjað Hamborg 16 skýjað Berlín 12 skúrir Vín 19 léttskýjað Moskva 22 heiðskírt Algarve 23 léttskýjað Madríd 30 léttskýjað Barcelona 25 léttskýjað Mallorca 28 léttskýjað Róm 25 léttskýjað Aþena 23 léttskýjað Winnipeg 20 léttskýjað Montreal 21 skúrir New York 31 léttskýjað Chicago 25 heiðskírt Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:57 24:05 ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36 SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19 DJÚPIVOGUR 2:11 23:49 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Suðurverk hefur lokið við að klæða seinni kaflann af nýjum Vestfjarðavegi um Múlasveit. Er nú kominn góðvegur alveg frá Bíldudal og til Reykjavíkur að undanskildum þrætukafl- anum í Gufudalssveit sem aðallega er kenndur við Teigsskóg. Nýi vegurinn er tæplega 16 kílómetrar að lengd, frá Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði, og liggur meðal annars yfir brýr á Kjálkafirði og Mjóafirði. Leysir hann af hólmi átta kílómetrum lengri veg sem lagður var um fjarðarbotnana. Gamli vegurinn var krókóttur og oft holóttur og snjóþungur á köflum. Suðurverk fékk verkið eftir útboð á árinu 2012 og var tilboðsfjárhæð um 2,5 milljarðar króna. Er þetta eitt stærsta vegagerðarverkefni hér á landi síðustu árin, fyrir utan jarð- gangagerð. Skilað mánuði fyrr „Verkið gekk vel,“ segir Guðmundur Ólafsson, verk- efnastjóri hjá Suðurverki. Hann segir að fyrirtækið eigið að skila verkinu í september en geri það vonandi mánuði fyrr. Nú þegar bundið slitlag er komið á veginn þarf að ganga frá vegköntum og námum. Reiknar Guðmundur með að ráðherra komi í byrjun ágúst til að taka mannvirkið formlega í notkun. Endar ná saman í Kjálkafirði  Lokið við að klæða 16 km Vestfjarðaveg um Múlasveit  Eitt stærsta verkið Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Klæðing Unnið í góðu veðri við að tengja saman malbikskaflana. Nú er hægt að aka á góð- vegi frá Bíldudal til Reykjavíkur, að undanskildum þrætukafla um Teigsskóg í Gufudalssveit.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.