Morgunblaðið - 24.06.2015, Qupperneq 15
Samsung Galaxy Áætlað er að 600
milljón Samsung-símar séu í notkun.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Greiningarfyrirtækið NowSecure
steig nýlega fram og benti á örygg-
isgalla í Samsung-símum. Arnaldur
Axfjörð hjá Admon ehf. segir að
gallinn sé tengdur Swiftkey-forriti,
sem er lyklaborð sem hjálpar not-
endum að skrifa texta. Enn sem
komið er hafa engar fregnir borist
af notendum sem orðið hafa fyrir
skaða vegna veikleikans og segir
Arnaldur að erfitt sé fyrir tölvu-
þrjóta að nýta sér gallann til að
sækja upplýsingar í símana. Hann
segir Samsung hafa breytt kóð-
anum á Swiftkey þegar hann var
innleiddur í símann og við það hafi
myndast veikleiki. „Samsung út-
færir kóða fyrir forritið í sínum
símum og það fannst galli í því
hvernig þeir gera það. Kóðinn sem
er gallaður er í raun hluti af Swift-
key-forritinu sem er í símanum
þegar þú kaupir hann,“ segir Arn-
aldur. Samkvæmt fregnum af ör-
yggisgallanum er einungis hægt að
nýta sér gallann á meðan uppfærsla
á Swiftkey-forritinu fer fram. „Það
verður að hafa það í huga að veik-
leikinn er langsóttur. Þeir sem vilja
nýta sér hann þurfa að grípa inn í
uppfærslu á hugbúnaðinum. Þú
þarft eiginlega að vera búinn að
brjótast inn í símann og vera tilbú-
inn að nýta þér veikleikann þegar
notandinn byrjar að uppfæra sím-
ann eða forritið. Þá fyrst geturðu
gert einhvern skaða,“ segir Arn-
aldur. NowSecure ályktar að 600
milljón Samsung-símar séu í um-
ferð í heiminum. Samkvæmt til-
kynningu frá Samsung er unnið að
því að koma í veg fyrir gallann. Að-
spurður segir Arnaldur að í raun sé
ómögulegt að búa til símtæki sem
ekki hafi veikleika. Þó sé það sitt
mat að símar séu ekki veikari fyrir
tölvuárásum en önnur samskipta-
tæki og nefnir fartölvur í því sam-
hengi.
Erfitt að nýta sér veikleikann 600 milljón Samsung-símar í heiminum
Öryggisgalli í símum frá Samsung
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2015
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra átti í gær fund með Didier
Burkhalter, utanríkisráðherra Sviss,
í Bern. Ráðherrarnir ræddu alþjóða-
og Evrópumál og samskipti og sam-
vinnu ríkjanna. Þetta var fyrsti tví-
hliða fundur utanríkisráðherra land-
anna síðan árið 2002.
Gunnar Bragi greindi frá stöðunni
í samskiptum Íslands og ESB og
Burkhalter upplýsti jafnframt um
samskipti Svisslendinga við Evrópu-
sambandið, einkum viðræður þeirra
um tvíhliðasamninga Sviss við ESB.
Samstarf ríkjanna var rætt og vilji
til að efla það. Bauð Gunnar Bragi
svissneska ráðherranum að heim-
sækja Ísland.
Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið
Sviss Gunnar Bragi ásamt Didier
Burkhalter, svissneskum kollega.
Fyrsti fund-
urinn frá
árinu 2002
Héraðsdómur
Reykjavíkur
sýknaði í gær
Braga Guð-
brandsson, for-
stjóra Barna-
verndarstofu, í
meiðyrðamáli
sem Týr Þór-
arinsson höfðaði.
Áður var dæmt í sama máli í októ-
ber á síðasta ári og þá var Bragi
fundinn sekur þar sem hann mætti
ekki fyrir dóminn. Bragi fékk málið
síðan tekið upp aftur á þeirri for-
sendu að hann hefði ekki vitað af
stefnunni og því ekki mætt í dóminn.
Týr rak meðferðarheimili Götu-
smiðjunnar að Brúarholti, sem var
lokað að beiðni barnaverndaryfir-
valda í júní árið 2010. Týr krafðist
fyrir dómi að átta ummæli sem höfð
voru eftir Braga á visi.is og RÚV um
ástæður lokunarinnar yrðu dæmd
dauð og ómerk.
Í niðurstöðu héraðsdóms segir að
umfjöllun fjölmiðla um málið verði
talin hluti af þjóðfélagsumræðu sem
hafi erindi átt við almenning og
Braga hafi því bæði verið rétt og
skylt að svara spurningum um mál-
ið. Týr hafi sjálfur komið því á fram-
færi með yfirlýsingum til fjölmiðla
að málið varðaði hann sjálfan. Þá
hafi ummæli Braga að hluta verið
gildisdómar sem ekki yrðu sannaðir
eða afsannaðir.
Bragi sýkn-
aður í meið-
yrðamáli
Hoist Vinnulyftur • Víkurhvarf 4 • Sími 517 6000 • hoist@hoist.is • www.hoist.is
Umboðsaðili Alimak Hek á Íslandi
Turnlyftur
Sala og þjónusta
Sérhæfum okkur
í sölu og þjónustu
á lyftum af öllum
stærðum og gerðum
517 6000