Morgunblaðið - 24.06.2015, Side 21

Morgunblaðið - 24.06.2015, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2015 ✝ Einar Þór Ein-arsson fæddist í Reykjavík 6. september 1954. Hann lést á Líkn- ardeild Landspít- alans 11. júní 2015. Foreldrar hans voru Einar Karel Torfason, f. 4. desember 1925, d. 13. janúar 2009, og Valgerður Jóndís Guðjóns- dóttir, f. 17. janúar 1931. Systkini Einars eru Þórhild- ur Jóna Einarsdóttir, f. 2. september 1949, Guðjón Stein- ar Einarsson, f. 12. mars 1951, eru Arnar Þór, Rakel Ósk og Lilja Karen. Hafsteinn Hjálmarsson, f. 10. nóvember 1976, maki Ann- Charlotte Fernholm, f. 17. ágúst 1985, börn þeirra eru Carl Mikael og Ísabella Ásrún. Synir Hafsteins og Ernu Stef- ánsdóttur eru Brynjar Freyr og Bergþór Logi. Einar sleit barnsskónum að mestu leyti í Kópavogi og vildi helst hvergi annars stað- ar búa. Hann starfaði við bif- reiðarstjórn, m.a. hjá Kópavogsbæ, var leigubifreið- arstjóri og vann við þunga- flutninga hjá GG Flutningum þar til hann stofnaði eigið fyr- irtæki, EÞ flutninga ehf. og rak það þangað til hann þurfti að hætta vegna veikinda sinna. Útför Einars fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi í dag, 24. júní 2015, kl. 15. d. 6. október 1996, og fósturbróðir er Þorsteinn Valur Baldvinsson, f. 25. ágúst 1957. Einar kvæntist 23. maí 1998 Guð- rúnu Ingibjörgu Kristinsdóttur, f. 4. desember 1953. Foreldrar hennar eru Sigríður Frið- riksdóttir, f. 4. júlí 1926, og Sverrir Símonarson, f. 19. desember 1930. Börn Guðrúnar og stjúp- börn Einars eru Margrét Sig- ríður Hjálmarsdóttir, f. 24. september 1973, börn hennar Fyrir ríflega 20 árum kom þessi elskulegi karl inn í líf mitt þegar hann og mamma tóku sam- an. Við urðum strax góðir vinir og gengum í gegnum ýmislegt á þessum langa en samt allt of stutta tíma. Einar var leigubílstjóri þegar við kynntumst fyrst og það var ekki ónýtt fyrir djammara sem voru að klára menntaskólann að hafa símanúmerið hans. Það voru ófá skiptin sem hann skutlaði okkur vinkonunum í gleðskap – og heim aftur. Honum fannst við alveg ótrúlega miklir vitleysingar (skemmtilegir vitleysingar þó) og fékk ég „að heyra það“ í lengri tíma á eftir ef við álpuðumst til að fara yfir strikið. Það var alltaf gaman að spjalla við Einar um menn og málefni og hlusta á hann segja frá. Skemmtilegast var þó að æsa hann aðeins upp í spjalli um stjórnmálin með því – stundum að þykjast – að vera ósammála honum bara til að fá hann upp á háa c-ið og heyra nokkur vel valin orð falla. Hann talaði hátt og mik- ið en hló líka innilega þegar hon- um fannst eitthvað fyndið enda leitaði hann sérstaklega eftir því að sjá spaugilegu hliðarnar á málunum. Einar var ótrúlega iðinn og fann sér alltaf eitthvað til dund- urs, hvort sem það var að græja eitthvað úti í skúr eða hnýta flug- ur. Hann kom iðulega fyrstur til hjálpar þegar ég skipti um hús- næði, vopnaður verkfærum og málningargræjum til að aðstoða við að koma slotinu í lag. Hann kenndi mér að sparsla, pússa, mála, negla, bora o.fl. og þó við værum ekki blóðskyld þótti mér alltaf vænt um að heyra hann segja – t.d. þegar hann var að redda mér afslætti í málningar- búð eða af dekkjum undir bílinn – að hann væri að biðja um þetta fyrir hana dóttur sína. Börnunum mínum var hann besti afi í heimi og hann bókstaf- lega gekk á skýjum þegar þau komu í heiminn. Hann var afi sem alltaf var gott að leita til og var með sögur og brandara á færi- bandi. Hann fór með þeim á fæt- ur fyrir allar aldir þegar þau gistu og eldaði ýmist brimsaltan hafragraut með rúsínum og rjóma (og gaf auka rúsínur á meðan beðið var eftir grautnum) eða gaf þeim sem ekki vildu grautinn „Lucky charms“. Hann var óþreytandi í ærslagangi með þeim og átti alltaf til nammi og ís, bláber og vínber til að stinga upp í litla munna. Eldri börnin áttu margar góðar stundir með hon- um og mömmu í veiði- og sum- arbústaðaferðum, þar sem til- heyrði að fá íspinna á meðan svamlað var í heita pottinum. Eftirminnilegust er þó ferðin okkar saman til Rimini á Ítalíu fyrir 10 árum þar sem synt var í „dónaöldum“ og þreytt smáfólk borið heim á kvöldin eftir anna- sama daga. Sumir gerðu sér nú sérstaklega upp örþreytu þegar halda átti heim, bara til að láta afa halda á sér. Ég og krakkarnir þökkum góðum vini, stjúpa og afa fyrir samfylgdina og vitum að það verður vel tekið á móti honum á nýjum stað. Við erum jafnframt viss um að hann á eftir að fylgjast vel með okkur og banka í öxlina á okkur ef honum finnst eitthvað mega betur fara, segja „hey!“ og hnussa hátt. Margrét Hjálmarsd. (Dúdda), Arnar Þór, Rakel Ósk og Lilja Karen. Ég veit ekki hvort þú hefur, huga þinn við það fest að fegursta gjöf sem þú gefur er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær, hlýja í handartaki, hjarta sem örar slær. (Úlfur Ragnarsson.) Þetta ljóð fannst okkur segja býsna margt um Einar. Hann var alltaf til í að koma og hjálpa til ef þurfti að flytja eða færa til hluti, það var ekkert mál eins og hann sagði, fannst ekki ástæða að vera að þakka fyrir það. Það sem við mátum þó mest í fari hans var hvað hann var góður við börnin í fjölskyldunni. Þau sóttu mikið til Einars afa. Hann lék við þau og hélt uppi fjörinu löngum stund- um og gekk stundum mikið á. Við þökkum ótal ánægjustundir og eigum öll eftir að sakna hans mik- ið. Við sendum innilegar samúð- arkveðjur til fjölskyldu Einars. Sigríður (Dúdda) og Sverrir. Einar Þór Einarsson Við höfum þekkst síðan í grunnskóla í Vestmannaeyjum, spilað óteljandi fót- boltaleiki í frímínútum, óteljandi leiki fyrir Íþróttafélagið Þór og svo síðast en ekki síst deilt óbil- andi áhuga okkar á sömu hljóm- sveitinni alla tíð og í ófá skipti höfum við sungið lög eftir þá þeg- ar við hittumst. Þegar ég fékk símtalið um að þú værir kominn á spítala og staðan væri alvarleg ferðaðist ég hratt í huganum til septembermánaðar árið 2007, þá hafði ég einmitt fengið svipað símtal. Þá varð ég mjög hræddur enda við skólabræðurnir enn það ungir að þetta var ekki eitthvað sem við eigum að vera að upplifa á þessum aldri. Við tóku margir dagar í óvissu og við vinir, fjöl- skylda, ættingjar og skólafélagar sameinuðumst öll í kringum þig og stóðum við hlið sjúkrarúmsins og sendum sterka strauma til þín. Þú sigraðir í það skiptið. Þetta hélt ég þennan sunnudag í síð- ustu viku að við værum að fara að gera aftur enda hafðir þú sannað það sjö árum fyrr að gamla góða keppnisskapið þitt var enn til staðar. Í þetta skiptið leið ekki langur tími þar til ljóst var að þetta væri tapaður leikur og því voru það þung skref að stíga inn til þín á mánudeginum til þess að kveðja þig. Við höfðum spjallað saman þremur dögum fyrr og stefnan var sett á að hittast á litlu golfmóti þann 16. júní. Það að sitja á þeim degi og skrifa minn- ingargrein um þig í staðinn er ágæt áminning um að við vitum aldrei hvenær kallið kemur, hvorki hjá okkur sjálfum né fólk- inu í kringum okkur. Við lifum sem betur fer ekki í ótta um að dagurinn í dag sé sá síðasti en við ættum þó að njóta lífsins líkt og um síðasta dag sé að ræða á með- an við getum. Því eins og við er- Þorsteinn Elías Þorsteinsson ✝ Þorsteinn ElíasÞorsteinsson fæddist 14. janúar 1978. Hann lést 8. júní 2015. Útför Þorsteins Elíasar var gerð 20. júní 2015. um minnt á núna, þá geta hlutirnir sem við göngum að vís- um í dag verið horfnir á morgun. Það eru þung spor að fylgja þér til grafar, elsku Þor- steinn, og hugsa til þess að við hittumst ekki aftur, en ég mun varðveita minningarnar um þig vel. Til fjölskyldu þinnar hugsa ég og sendi þeim samúðar- kveðjur mínar og um leið bið ég þau að styðja hvert annað í sorg- inni. Stefán Þór Steindórsson. Elsku Steini. Það tekur mikið á að reyna að koma orðum að því hversu mikið þín verður saknað. Þið Hrefna hafið alltaf verið til staðar fyrir okkur þegar á þurfti að halda. Þegar faðir Helga fór frá okkur var minnsta mál fyrir ykkur að taka Gabríel Inga son okkar og vera með hann svo að við gætum farið og kvatt. Þegar við hugsum til baka um allar dásamlegu minningarnar sem við eigum, sumarbústaðar- ferðir, matarboð, „Hákonshitt- inga“, partí, spilakvöld og heim- sóknir þar sem legið var í sófanum og fótbolti í sjónvarpinu, er svo ótalmargt sem kemur upp í hugann. Það var allt leyfilegt í okkar samskiptum, allt frá um- ræðu um táfýlu, matarrétti, fót- bolta og meira að segja í fyrri veikindum þínum klöppuðum við fyrir auknu þvagmagni sem sagði okkur að kerfið væri farið að virka aftur og skáluðum því með gosi og pitsu. Við teljum okkur svo lánsöm að hafa fengið að kynnast ykkur og ykkar dásamlegu fjölskyldu. Fallegt að sjá hversu mikill styrkur og samheldni er innan fjölskyldna ykkar Hrefnu á þess- um erfiðu tímum. Hugur okkar er hjá nánustu ættingjum og vin- um. Þín verður sárt saknað. Þínir vinir, Helgi, Anna Ósk, Gabríel Ingi og Matthildur Thea. Vinkona mín og samherji til ára- tuga, Þóra Kristins- dóttir, er látin eftir erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm. Hún var jarð- sungin frá Seljakirkju hinn 3. júní sl. Mín fyrstu kynni af Þóru voru á árinu 1985 þegar hún tók sæti í stjórn Bandalags kvenna í Reykjavík. Það leyndi sér ekki að þar var komin mikil mannkosta- kona, hógvær og prúð í fram- komu, vel gefin, smekkleg og myndarleg. Síðan eru liðnir þrír áratugir og öll þessi ár höfum við haldið traustu sambandi okkar á milli, þessar sautján konur sem sæti áttum í stjórn BKR í for- mennskutíð undirritaðrar. Með hópnum hefur allan tímann ríkt góð vinátta og við meðal annars skipst á um að halda árlegt kvöld- verðarboð þar sem rætt hefur verið um landsins gagn og nauð- synjar. Auk félagsmálanna áttum við Þóra það sameiginlegt að hafa áhuga á handavinnu og stofnuð- Þóra Kristinsdóttir ✝ Þóra Krist-insdóttir fædd- ist 4. desember 1942. Hún lést 23. maí 2015. Þóra var jarð- sungin 3. júní 2015. um því með okkur saumaklúbb fyrir nokkrum árum ásamt Sigurlaugu Viborg, fyrrverandi forseta Kvenfélaga- sambands Íslands. Þóra var sérlega mikil prjónakona, vandvirk og dugleg. Það var unun að sjá fallegu handavinn- una hennar og fylgj- ast með svo hröðum og öruggum handtökum. Þar áttu þær vel saman hún og Sigurlaug. Þóra var einnig mikill lestrarhestur og þau hjónin tíðir gestir á bóka- söfnum. Bókaáhugann áttu þau sameiginlegan með eiginmanni mínum og oft var rætt um slík efni er við hittumst. Við fyrrverandi stjórnarkonur í BKR þökkum Þóru ógleyman- legar samverustundir á þessum þrjátíu árum. Ég og eiginmaður minn, Guðjón Albertsson, þökk- um Þóru fyrir dýrmæta vináttu. Það var sannkölluð gæfa að fá að kynnast og eiga svo frábæra vin- konu sem Þóra var. Við sendum Árna, eftirlifandi eiginmanni hennar, og fjölskyldu þeirra innilegustu samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning Þóru Kristinsdóttur. Kristín Guðmundsdóttir. Í janúar 2008 kynntist ég Völu. Við fundum hvor aðra í Myndlistar- skólanum í Reykja- vík. Vala var ekkert lík mínum vin- konum eða neinum sem ég þekkti eða hafði umgengist um ævina. Við vorum hvor af sínu sauðahús- inu. Gjörólíkur bakgrunnur og gjörólíkar manneskjur en smull- um fullkomlega saman. Vala hafði menntað sig vel og mikið um ævina en ég var að stíga mín Vala Ingimarsdóttir ✝ Vala Ingimars-dóttir fæddist 28. janúar 1974. Hún lést 1. júní 2015. Útför Völu fór fram 10. júní 2015. fyrstu skref í menntun. Vala var vel gift og bjó í stóru fallegu einbýlishúsi í Vesturbænum en ég var einstæð og bjó í blokkaríbúð- inni minni í Breið- holtinu. Hún var fáguð kona, glæsi- lega klædd og bar fallega skartgripi, það leyndi sér ekki að hún var vel stæð, ólíkt því sem ég var. Við vorum reyndar báðar mjög pólitískar en að sjálfsögðu hvor á sinni skoðuninni og gátum því rökrætt pólitík tímunum sam- an, fólki til lítillar skemmtunar í kringum okkur. Samband okkar varð sterkt og gott og engu líkara en okkur hefði verið ætlað að kynnast. Það var ekki fátt sem við tókum upp á og var mikið hlegið hvort sem það var að vit- leysunni í okkur sjálfum eða allt það spaugilega sem við gátum alltaf séð í fólki eða hlutum í kringum okkur. Vala var ráðagóð og stanslaust í því að græja málin fyrir aðra. Því var það svo að þeg- ar ég hélt að nú gæti hún ekki lengur komið mér á óvart þá toppaði hún það yfirleitt viku síð- ar eða svo. Hugmyndaflug henn- ar og leiðir til að redda málunum fyrir aðra og kannski líka svolítið fyrir sjálfa sig voru ekki neitt venjulegar. Þegar ég kynntist Völu hafði hún barist við krabbamein í fimm ár og á þeim sjö árum sem ég fékk að vera vinkona hennar sá ég alltaf betur og betur hvað ég var heppin. Þau voru ófá skiptin sem ég kom heim í gömlu blokk- aríbúðina mína eftir að hafa verið heilan dag í glæsilegu húsi henn- ar þar sem ekkert vantaði á að ég táraðist og þakkaði guði fyrir að ég ætti heilsu mína. Ég var ekki í nokkrum vafa um að það ríki- dæmi að eiga heilsu sína í lagi væri dýrmætara en nokkuð ann- að. Ég og yngsti sonur minn vor- um líka það heppin að kynnast fjölskyldu Völu, þeim Bjarna, Bryndísi og Ingimar og að sjálf- sögðu henni Rosalindu. Síðustu stund mína með Völu átti ég föstudaginn 15. maí. Ég var í fríi þennan dag og dagurinn því vel skipulagður til ýmissa verka. Áð- ur en ég vissi af var sem eitthvað annað en ég tæki stjórnina og ég flýtti mér sem mest ég mátti á líknardeildina í Kópavogi, ég fann það svo sterkt að ekki væri um marga daga að ræða eftir þetta. Hún fagnaði mér og við byrj- uðum að sjálfsögðu að gera grín hvor að annarri en eini munurinn var sá að nú héldumst við í hend- ur. „Farðu vel með þig, prakk- ari,“ voru hennar síðustu orð til mín. Elsku Bjarni, Bryndís Líf, Ingimar Stefán og Rosalinda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og þakka fyrir allar góðu sam- verustundirnar með ykkur. Kolbrún Kjartansdóttir. Bróðir minn Brynjólfur Már, „Binni“, er látinn langt um aldur fram. Vegna veikinda móður okkar þegar ég var aðeins ársgömul, Kolbrún systir okkar fimm ára og hann þriggja mánaða, þurftum við að fara í fóstur. Þegar útséð var um að fjölskyldan gæti Brynjólfur Már Sveinsson ✝ Brynjólfur MárSveinsson fæddist 5. júlí 1956. Hann lést 23. maí 2015. Útförin fór fram 19. júní 2015. verið saman, bæði vegna veikinda og skilnaðar foreldra okkar, tóku afar og ömmur okkur að sér. Binni fór til föðurafa okkar og stjúpömmu í Reykjavík, ég fór til föðurömmu okkar og stjúpafa í Vík í Mýr- dal og Kolbrún til móðurforeldra okk- ar að Ögri við Ísa- fjarðardjúp. Öll fengum við gott atlæti hjá þeim og þau sáu til þess að við systkinin og hálfbróðir okk- ar, Hilmar Þór, ræktuðum sam- band okkar á milli og við foreldra okkar, þó svo að vegalengdirnar á milli okkar væru langar og sam- göngur lélegar, en þá tók u.þ.b. fjóra tíma að keyra til Reykjavík- ur frá Vík í Mýrdal. Við Binni hittumst flest sumur á okkar yngri árum en föðurafi okkar átti sumarhús á Brekkum í Mýrdal þar sem Binni dvaldi með þeim langdvölum. Þá fór ég í heimsókn til þeirra og við lékum okkar saman. Binni var fjörugur strákur og afi hafði orð á því að við værum eins og dagur og nótt, það lýsir vel hversu ólík við vorum í raun. Á unglingsárunum styttust vegalengdirnar á milli okkar systkinanna þar sem við systur gengum í skóla í Reykjavík og bjuggum hjá móður okkar. Þá hittumst við Binni iðulega í sundi í Sundhöll Reykjavíkur á sunnu- dögum. Einnig minnist ég margra kvöldstunda í Barmóinu, en það kölluðum við systur heimili Binna hjá föðurafa okkar við Barmahlíð 18. Íslenska sjónvarpið var nýtil- komið á þessum árum og var sá munaður ekki á hverju heimili, en á heimili Binna var sjónvarp. Þá gekk ég frá Háaleitisbraut yfir í Barmóið til að horfa á sjónvarp og til baka aftur eftir að hafa notið stundarinnar. Við stofnuðum okkar fjölskyld- ur, hann í Reykjavík en ég í Vík. Við vorum alltaf í ágætu sambandi hvort við annað þrátt fyrir fjar- lægð okkar á milli. Hann lauk námi sem vélstjóri og hefur stund- að sjómennsku mestan sinn starfsferil. Á sjónum endaði hann lífið í lok maí, hann varð bráð- kvaddur um borð í skipi sem hann var að fylgja til nýrra eigenda. Ég og fjölskylda mín vottum Jóhönnu, Binna Rafni, Hirti og fjölskyldu okkar samúð. Svanhvít Sveinsdóttir (Naní).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.