Morgunblaðið - 24.06.2015, Side 26

Morgunblaðið - 24.06.2015, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2015 Haraldur Dean Nelson er framkvæmdastjóri íþróttafélagsinsMjölnis sem sinnir bardagaíþróttum, en félagið á tíu ára af-mæli í haust. „Við vorum tíu sem stofnuðum félagið og nú eru milli 1.200 og 1.300 manns sem æfa hjá félaginu.“ Haraldur er einnig umboðsmaður fyrir bardagaíþóttamenn og þar á meðal fyrir son sinn, Gunnar Nelson. „Það getur verið ansi mikil vinna en hún kemur í skorp- um. Þegar bardagi er fram undan þá er gjarnan mikið að gera en við erum komnir með umboðsskrifstofu í Ameríku sem sér um hans mál þar og það hjálpar heilmikið. Næsti bardagi hjá honum er 11. júlí en þá verður haldin stærsta keppni í sögu sambandsins UFC og verður bar- dagi Gunnars einn af fimm aðalbardögunum.“ Bardagaíþróttir hafa verið ástríða hjá Haraldi frá unga aldri. „Ég var í karate og svo stunduðum við nokkrir félagar sem vorum frá Kefla- vík kickbox á Keflavíkurflugvelli. Ég hef einnig verið í brasilísku jiu jitsu sem er gólfglíma og byggist mikið á tækni. Ég hef reyndar ekki farið á dýnuna í svolítinn tíma en stefni á það fljótlega.“ Eiginkona Haraldar er Guðrún Hulda Gunnarsdóttir, sjúkraliði á Hrafnistu, og börn þeirra eru Gunnar Lúðvík, f. 1988 og María Dögg, f. 1992 en hún var að ljúka sínu öðru ári í leiklistardeild Listaháskólans. Haraldur verður á Ólafsfirði á afmælisdaginn. „Tengdaforeldrarnir búa þar og við hjónin verðum þar ásamt góðum vinum. Það verður ekk- ert húllumhæ heldur verður slakað á í sveitinni.“ Mjölnismaður „Við erum mjög ánægðir með móttökurnar sem Mjölnir hefur fengið og stefnum á að gera félagið enn betra en það er í dag.“ Bardagaíþróttir lengi verið ástríða Haraldur Dean Nelson er fimmtugur í dag É g fæddist í Reykjavík 24.6. 1945 og ólst upp á Laugateig 27 í Reykja- vík, skammt frá mýrum og kartöflugörðum. Á þessum árum var skemmtilegt að vera krakki á Laugateignum. Besti vinur minn á þessum árum var Magn- ús Eiríksson tónlistarmaður. Bröll- uðum við margt saman ásamt skemmtilegum krökkum í hverfinu.“ Leifur var í Laugarnesskólanum og síðan í Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Á sumrin vann hann síðan í Breið- fjörðs blikksmiðju, en Guðmundur J. Breiðfjörð, afi hans, stofnaði blikk- smiðjuna og tók faðir hans við henni og allir bræður Leifs unnu þar: „Ég fékk þarna veganesti sem hefur verið ómetanlegt.“ Myndlist og teikning höfðaði strax mikið til Leifs og lá beint við að hann færi í Myndlista- og Handíðaskóla Ís- lands. Eftir fjögurra ára nám í mynd- listardeild fór hann í Listaháskólann í Edinborg í framhaldsnám í teikningu og steindu gleri. Auk þess stundaði hann nám hjá þekktum listamönnum sem voru í fararbroddi í steindu gleri. Leifur kenndi í Myndlista- og handíðaskólanum í nokkur ár en hef- ur síðan eingöngu unnið við myndlist á eigin vinnustofu: „Þegar ég var við kennslu hitti ég unga fallega stúlku á árshátíð skólans sem var að læra vefnað. Varð hún síðan konan mín. Hún var nemandi og ég kennari en það bjargaðist því ég kenndi henni ekki. Við erum mjög samrýnd, deilum vinnustofu og höfum unnið saman í yfir 40 ár.“ Leifur hefur haldið margar einka- sýningar hér á landi og erlendis og einnig tekið þátt í mörgum samsýn- ingum, m.a. stórri sýningu með tékk- neskum listamönnum í Prag í Tékk- landi. Leifur og Sigríður, kona hans, hafa haldið einkasýningar saman, m.a. stóra sýningu í Skissernars Museum í Lundi í Svíþjóð. Leifur hefur verið brautryðjandi í íslenskri glerlist, hefur verið virtasti og mikilhæfasti listamaður á því sviði hér á landi um langt árabil og er ekki Leifur Breiðfjörð myndlistarmaður – 70 ára Að störfum Leifur er einn víðkunnasti listamaður okkar. Verk hans í St. Giles Cathedral í Edinborg er hrein snilld. Hinn hógværi snilling- ur lita, forms og birtu Samhent Leifur og Sigríður hafa unnið saman að listsköpun í 40 ár. Akranes Mark Adam Daníelsson fæddist 24. júní 2014 á Sjúkrahús- inu á Akranesi. Hann vó 3.366 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans heita Kristjana Hákonía Hlynsdóttir og Daníel Rodrigues Jónsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.