Morgunblaðið - 24.06.2015, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2015
POWERSÝNING
KL. 10:35
BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND MEÐ
OWEN WILSON, IMOGEN POOTS
OG JENNIFER ANISTONÍSLENSKT TAL
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus
Tónskáldin Val-
geir Sigurðsson,
Hlynur Aðils
Vilmarsson og
Úlfur Hansson
og tónlistarhóp-
urinn Nordic Af-
fect vinna nú
saman að plötu
sem heita mun
Raindamage og
hófst í fyrradag hópfjármögnun á
henni á vefnum Karolinafund.
Hugmyndina á bak við plötuna
má rekja til tónleika sem þau
unnu að í fyrra í Vatnasafninu í
Stykkishólmi og voru hluti af
Listahátíð í Reykjavík og nefndust
Flæði. Á þeim frumflutti Nordic
Affect verkin „Raindamage“ eftir
Valgeir, „[:n:]“ eftir Hlyn og
„Þýð“ eftir Úlf og tengdust þau öll
náttúrunni með einum eða öðrum
hætti og kölluðust á við innsetn-
ingu Roni Horn í safninu, þ.e. veð-
urlýsingar prýða gólfin og vatn úr
jöklum Íslands í glersúlum. Í
framhaldi var ákveðið að ráðast í
gerð plötunnar Raindamage og
ákveðið að stefna nýjum rafverk-
um eftir Valgeir, Hlyn og Úlf
gegn hljóðfæraverkunum, eins og
segir í tilkynningu. Platan verður
hljóðrituð í Gróðurhúsinu af Val-
geiri og hefur þegar verið lýst yf-
ir áhuga á því að gefa hana út í
Bandaríkjunum.
Vinna saman og
safna fyrir plöt-
unni Raindamage
Úlfur Hansson
Bandaríska tón-
skáldið James
Horner fórst í
fyrradag í flug-
slysi í Kaliforníu.
Horner var
reyndur flug-
maður og var
einn í lítilli
einkaflugvél sem
hrapaði skammt
frá Santa Barbara. Horner hlaut
tvenn Óskarsverðlaun á ferli sínum,
fyrir tónlist sína við kvikmyndina
Titanic og besta frumsamda lagið í
kvikmynd, „My Heart Will Go On“
úr sömu kvikmynd. Horner var til-
nefndur til Óskarsverðlauna níu
sinnum, fyrir tónlist við Titanic,
Avatar, House of Sand and Fog, A
Beautiful Mind, Apollo 13, Brave-
heart, Field of Dreams, An Americ-
an Tail og Aliens. Hann var eitt af
eftirsóttari kvikmyndatónskáldum
Hollywood.
Tónskáldið James
Horner látið
James Horner
Almennar sýningar í Norður-
Ameríku á kvikmyndinni Everest
sem Baltasar Kormákur leikstýrir
hefjast viku seinna en áætlað var,
25. september í stað 18. september,
að því er fram kemur á vef Holly-
wood Reporter. Er þar átt við
frumsýningar í hefðbundnum kvik-
myndahúsum en myndin verður
frumsýnd 18. september í Imax-
kvikmyndahúsum og öðrum með
kvikmyndatjöldum í sérstaklega
stóru sniði, „premium large-
format“ eins og það er nefnt á
ensku.
Í frétt Hollywood Reporter kem-
ur fram að myndin hafi verið sýnd í
gær, 23. júní, fyrir gesti Cine-
Europe, samkomu alþjóðlegra
dreifingaraðila kvikmynda í Barce-
lona, og að með því að sýna mynd-
ina fyrst í Imax og „premium large-
format“ kvikmyndahúsum 18. sept-
ember vilji framleiðendur vekja
umtal um hana áður en almennar
sýningar hefjast.
Hættuför Stilla úr kvikmyndinni Everest sem er byggð á sannsögulegum
atburði, þegar átta fjallgöngumenn fórust í aftakaveðri á Everest árið 1996.
Almennum sýningum seinkað um viku
Skólafélagarnir SnævarSölvason og Logi Ingi-marsson úr Kvikmynda-skóla Íslands tóku höndum
saman og létu draum sinn um að
gera frásagnarkvikmynd í fullri
lengd verða að veruleika. Með vilj-
ann að vopni fengu þeir vini og
vandamenn úr átthögum Snævars í
Bolungarvík til að sjá um leik og
aðstoð við tökur en segja má að
bæjarfélagið í heild hafi skotið
skjólshúsi yfir teymið meðan á tök-
um stóð. Myndin var tekin upp á
hálfum mánuði sumarið 2013 en
eftirvinnslu hennar, sem var að
hluta fjármögnuð í gegnum hóp-
fjármögnunarsíðu Karolina Fund,
lauk fyrir skemmstu.
Albatross segir af Tomma (Ævar
Örn) sem stendur hálfáttavilltur á
krossgötum í lífinu. Hann hefur
lokið grunnnámi í háskóla en er
engu nær um hvað hann vill gera í
framtíðinni. Í limbói áræðir hann að
elta unnustu sína (Birna Hjaltalín)
vestur á firði þar sem hann ræður
sig í sumarvinnu hjá Golfklúbbi
Bolungarvíkur. Vinnufélagarnir
Kiddi (Gunnar Kristinsson) og
Finni (Finnbogi Dagur) eru vægast
sagt kynlegir kvistir og yfirmað-
urinn Kjartan (Pálmi Gestsson) er
ekki síður skrautlegur. Ástin er
hverful og fyrr en varir er Tommi
orðinn einmana strandaglópur í
framandi samfélagi. Glórulaus um
staðhætti og formgerð þess verður
hann að leiksoppi í átökum stríð-
andi aðliggjandi sveitarfélaga sem
kýta með tilheyrandi heima-
mannastolti og þvermóðskufullum
kaupstaðaríg um hvort stórmót í
golfi skuli háð í Bolungarvík eða á
Ísafirði. Inn í þessar kostulegu
drýgindaerjur blandar sér einnig
róttækur náttúruverndarsinni (Ár-
sæll Níelsson) í trássi við allt og
alla nema kannski verpandi kríurn-
ar.
Einlæg framsetning og eftir-
tektarvert fumleysi frásagnarinnar
er hrífandi. Kvikmyndagerðar-
teymið hafði vaðið fyrir neðan sig
og sinnti handritsundirbúningi og
forvinnu sjónrænnar útfærslu þess
vel. Sagan er í grunninn háðsk
samfélagsrýni í anda Oscars Wildes
þar sem einföld frásagnarfléttan
snýst um ærslafengið uppþot sem
er undirskipað afar hnyttnum sam-
tölum og krassandi mannlífslýs-
ingum. Tækjakostur teymisins var
greinilega ekki alltaf sá mesti eða
besti eins og sést til að mynda þeg-
ar tökuvélin skimar yfir sögusviðið í
stórbrotnum landslagsfjarmyndum
og við það tapast myndskerpa, dýpt
og stöðugleiki nokkuð. Slíkir ann-
markar koma ótrúlega lítið að sök
því ástríða og eldmóður skín úr
hverjum ramma.
Myndin kallast einnig greinilega
á við spaghetti-vestra Sergios
Leones, The Good, the Bad and the
Ugly, þar sem söguhetjan fer í
„villta“ vestrið og ratar inn í átök
stríðandi fylkinga. Kænska, kald-
hæðni, hrekkir og prettir takast á
og leiða til uppgjörs. Bandalög per-
sóna eru óstöðug, ryskingarnar
ærslafullar og húmorinn fremur
lágkúrulegur. Aðalpersónunum
þremur, Tomma, Kidda og Finna,
er til að mynda fátt meira hugleikið
en kúkur og klósettpappír. Þeir eru
ekki fræknir kappar í anda klass-
ískra kúreka heldur fremur sein-
heppnar andhetjur. Í átakasenum
er stuðst við klippingar milli skim-
andi fjarmynda og ýktra nærmynda
af andlitsdráttum í anda stílbragða
meistara Leones. Þannig birtast
stórbrotnar senur af hrjóstrugri há-
sléttunni á Bolafjalli og Bolungar-
vík sjálfri, nánast umluktri háum,
bröttum og skriðurunnum fjöllum,
innskotnar þröngum skotum af
gneistandi hatursfullu augnatilliti,
skelmislegu augntenntu glotti og
hnefum sem kreppast um úðabrúsa
og sinnepsflöskur í stað hulstraðra
skotvopna. Frumsamin undirleiks-
tónlist og gott titillag myndarinnar
magna enn fremur stílfærð áhrif
sem og úthugsuð og rímandi notk-
un leikmuna á borð við Mustang-
kagga og sláttuvéla-„fák“.
Albatrossar hafa löngum talist
goðsagnakenndir í vestrænni menn-
ingu og ímynd þeirra er oft notuð
sem myndhvörf fyrir sálræna fjötra
eða bölvun. Segja má að allar per-
sónur myndarinnar séu eins konar
albatrossar í útrýmingarhættu,
hvort sem þeir skarta ljósu hári og
þöndum brjóstkassa eða geta spilað
golfvöll á þremur höggum undir
pari. Þær eru allar fastar í viðjum
vanans eða fjötraðar af átthögum
sínum og aðstæðum. Boðskapur
myndarinnar gæti því verið sá að
fólk ætti ekki að láta dilkadraga sig
í lífinu heldur fremur hefja sig til
flugs eins og stoltur albatross,
steypa sér fram af hengifluginu og
elta drauma sína. Þegar upp er
staðið fylgja bæði persónur mynd-
arinnar og aðstandendur hennar
þessum boðskap og hann gæti jafn-
vel blásið áhorfendum byr undir
eigin vængi til að fylgja þeirra for-
dæmi. Það er mikil kúnst að fá
þéttsetinn bíósal til að hlæja í kór
en Albatross-teyminu tekst það og
sannar þar með að flest er hægt
með eldmóðsins vilja að vopni.
Kúnst „Það er mikil kúnst að fá þéttsetinn bíósal til að hlæja í kór en Albatross-teyminu tekst það og sannar þar
með að flest er hægt með eldmóðsins vilja að vopni,“ segir í niðurlagi gagnrýni um kvikmyndina Albatross.
Með eldmóðsins vilja að vopni
Háskólabíó, Smárabíó, Borg-
arbíó, Sambíó Keflavík, Króks-
bíó, Ísafjarðarbíó, Selfossbíó
og Bíóhöllin Akranesi
Albatross bbbmn
Leikstjórn og handrit: Snævar Sölva-
son. Kvikmyndataka og klipping: Logi
Ingimarsson. Aðalhlutverk: Ævar Örn
Jóhannsson, Finnbogi Dagur Sigurðs-
son, Gunnar Kristinsson, Pálmi Gests-
son, Birna Hjaltalín Pálmadóttir og Ár-
sæll Níelsson. 100 mín. Ísland, 2015.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR