Morgunblaðið - 24.06.2015, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 175. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Nafn veiðimannsins sem lést
2. Maður sem féll í Þingvallavatn látinn
3. Nýtt 60 herbergja hótel
4. WOW þarf að ráða 200 manns
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hjörtur Pálsson þýðandi hlýtur
norræn þýðingaverðlaun Letter-
stedtska félagsins úr nyhlénsku gjöf-
inni fyrir árið 2015, sem er fjórða árið
sem verðlaununum er úthlutað. Verð-
launafé er 50.000 sænskar krónur og
verða verðlaunin afhent síðar á árinu.
Verðlaunin eru viðurkenning fyrir
þýðingar milli norrænu málanna á
bókmennta- eða ritverkum eða á
verkum þýðandans yfirleitt, að því er
fram kemur í tilkynningu, og til kom-
in vegna gjafafjár sem Letter-
stedtska félagið hlaut frá fyrrverandi
lektor í þýsku við Stokkhólms-
háskóla, Lars-Olof Nyhlén, og eigin-
konu hans Marthe. Í greinargerð
stjórnar segir m.a. að Hjörtur hafi þá
sérstöðu að hafa þýtt á íslensku úr
öllum norrænu málunum nema græn-
lensku og samísku.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hjörtur hlýtur nor-
ræn þýðingaverðlaun
Leikmyndahönnuðurinn Börkur
Jónsson hlaut á mánudaginn hin kan-
adísku Dora Mava Moore-verðlaun
fyrir sviðsmyndina í verkinu The
Heart of Robin Hood. Gísli Örn Garð-
arsson leikstýrði verkinu og var hann
einnig tilnefndur í flokki leikstjóra til
verðlaunanna. Viðurkenningin er ekki
sú fyrsta sem Börkur hlýtur en hann
vann til að mynda til verðlauna á
Reumert-hátíðinni í Danmörku árið
2013. Þess má geta að verkið verður
sett upp í Þjóðleikhús-
inu í vetur í uppfærslu
Vesturports, en frum-
sýning verður 12. sept-
ember. Leikstjórn verð-
ur í höndum Gísla Arn-
ar Garðarssonar og
Selmu Björnsdóttur.
Verðlaunaður fyrir
bestu sviðsmynd ársins
Á fimmtudag Hæg austlæg eða breytileg átt og bjart með köflum
en skýjað að mestu sunnan- og austanlands. Hiti 7 til 18 stig, sval-
ast fyrir austan.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg austlæg eða breytileg átt. Bjart með
köflum vestra og nyrðra. Skýjað syðra og eystra og sums staðar
smáskúrir eða þoka. Hiti frá 7 stigum austast, upp í 18 stig vestra.
VEÐUR
Breiðablik jók forskot sitt í
fjögur stig á toppi Pepsi-
deildar kvenna í knatt-
spyrnu með baráttusigri á
Selfossi í gær í toppslag
deildarinnar. Það þurfti
vítaspyrnu til þess að skilja
liðin að þar sem Blikar
höfðu betur 1:0. Stjarnan
jafnaði Selfoss að stigum
með sigri á ÍBV en liðin eru
nú jöfn í 2. sætinu. »4
Breiðablik komið
í vænlega stöðu
Flest bendir til þess að Kolbeinn Sig-
þórsson sé á leið til franska félagsins
Nantes frá Ajax í Hollandi. Nantes er
eitt af sigursælustu félögum í
frönsku knattspyrnunni
en hefur átt erfitt upp-
dráttar undanfarinn
áratug. Ef af
samningum
verður er
Kolbeinn
fyrsti Íslend-
ingurinn í
fimm ár sem
spilar í efstu
deild í
franska fót-
boltanum.
» 1
Sigursælt félag sem
hefur verið í basli
„Ég er mjög ánægð með hvar við end-
uðum. Fyrri dagurinn var mjög góður
en á seinni deginum urðum við fyrir
talsverðum skakkaföllum hjá stúlk-
unum. Við vorum mjög ánægð með
að ná 6. sæti miðað við það og vitum
að við eigum enn meira inni seinna
meir,“ sagði Ragnheiður Ólafsdóttir,
annar yfirþjálfara íslenska landsliðs-
ins í frjálsum íþróttum sem náði sín-
um besta árangri frá upphafi í Evr-
ópubikarnum í Búlgaríu. »2
Vitum að við eigum
enn meira inni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Bjarni Steinar Ottósson
bso@mbl.is
Óskar Einarsson tónlistarstjóri fór
fyrir tólf manna hópi, átta söngv-
urum Gospelkompanísins og fjög-
urra manna hljómsveit, á Hásumar-
hátíð Franklins Graham í Þórshöfn
í Færeyjum á sunnudaginn var.
Húsfyllir var á báðum samkomum
Grahams í íþróttahöllinni á Hálsi.
Lauslega áætlað komu 4.000-4.500
manns á viðburðina, sem verður að
teljast gott miðað við að íbúafjöldi í
Færeyjum er um 50.000. Tólfti hver
Færeyingur, um það bil, var því við-
staddur tónleikana.
Óskar var að vonum ánægður
með ferðina, en hún var skipulögð
með skömmum fyrirvara. Óskar tók
ásamt kór þátt í Hátíð vonar árið
2013, sem einnig var á vegum
Franklins Graham. Graham og sam-
starfsmenn hans hafi þá heillast af
þeim krafti sem var í íslenska
gospeltónlistarfólkinu og sagst vilja
fá þau aftur. Ekki hafi þó heyrst frá
þeim fyrr en fyrir um mánuði þegar
skyndilega hafi verið haft samband
við þau og þau fengin til þess að
taka þátt í hátíðinni í Færeyjum.
Mikið utanumhald fylgir við-
burðum Franklins Graham, en dag-
inn fyrir hátíðina í Færeyjum hélt
hann viðburð fyrir 35 þúsund
manns í Úkraínu. Þar taldi kórinn
einn og sér 2.800 manns.
Óskar og föruneyti voru sótt í
einkaflugi frá Reykjavík til Þórs-
hafnar, þar sem biðröðin fyrir utan
höllina var um kílómetri. Færeyskir
miðlar kunnu ekki önnur dæmi það-
an um að menn biðu í röðum eftir að
fá að heyra guðs orð. Einhverjir
höfðu reyndar á orði eftir á að biðin
fyrir utan í kuldanum hefði verið
helsti lösturinn á annars góðri dag-
skrá. Fullt var út úr dyrum en sett
var upp tjald fyrir framan íþrótta-
húsið þar sem dagskránni á sviðinu
var varpað á skjá.
Sungu með stórstjörnu
Óskar var mjög ánægður með
viðtökurnar í Færeyjum, góð
stemning hafi verið í höllinni og
Færeyingar tekið þeim vel. Á hátíð-
inni sungu þau með bandaríska
gospeltónlistarmanninum Michael
W. Smith, sem hefur selt nærri 20
milljónir hljómplatna og þrisvar
hlotið Grammy-verðlaunin fyrir tón-
list sína. Michael W. Smith
kom einnig fram á Hátíð
vonar í Laugardalshöllinni
haustið 2013.
Eftir sýningarnar hefur
Óskar fengið nokkur tilboð
um frekara tónleikahald í
Færeyjum auk tækifæris til
þess að taka frekari þátt í
uppákomum Franklins Gra-
ham í haust í Bandaríkjunum.
Það sé þó ófrágengið enn og á
viðræðustigi.
Gospelkór í útrás í Færeyjum
Sungið fyrir
meira en fjögur
þúsund manns
Ljósmynd/Jens Kristian Vang
Innlifun Bandaríski Grammy-verðlaunahafinn Michael W. Smith syngur ásamt íslenskum söngkonum, þeim (f.v.)
Þóru Gísladóttur, Írisi Lind Verudóttur og Hrönn Svansdóttur, sem eru í Gospelkompaníinu.
Franklin Graham varð flestum Íslendingum kunnur þegar hann hélt sam-
bærilegan viðburð í Laugardalshöll árið 2013 undir nafninu Hátíð vonar.
Hana sóttu alls um 6.000 manns. Hugsanlega hefði hún liðið hljóðlega
hjá eins og flestar aðrar trúarsamkomur nema fyrir hávær mótmæli sem
spruttu upp í kringum afstöðu Grahams gagnvart samkynhneigð, sem
hann telur vera synd.
Franklin er sonur Billys Graham, afar áhrifamikils bandarísks evang-
elísks kennimanns sem hefur talað til hundraða milljóna áheyr-
enda í gegnum útvarp, sjónvarp og á fjölda-
samkomum víða um heim. Þá hefur hann haft
greiðan aðgang að forsetum þar í landi frá lok-
um seinna stríðs.
Billy Graham, sem nú er 96 ára, hætti störf-
um fyrir aldurs sakir og af heilsufarsástæð-
um fyrir um áratug og hefur Franklin tekið
við veldi föður síns.
Graham áður komið til Íslands
SJÓNVARPSPRÉDIKARAR
Óskar Einarsson