Fréttablaðið - 22.07.2015, Síða 2

Fréttablaðið - 22.07.2015, Síða 2
22. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Áfram er búist við norðaustanátt, úrkomu norðan- og austantil en bjartviðri um landið vestanvert. Ekki hlýnar að ráði, og má gera ráð fyrir að hámark nái ekki miklu meira en 15 stigum sunnantil en svalara verður norðanlands. VEÐUR SJÁ SÍÐU 16 GLÆSILEG MATAR- STELL KÍKTU Á ÚRVALIÐ SAMFÉLAGSMÁL Foreldrar sem hafa brotið alvarlega af sér halda stundum forsjá barna sinna í óþökk barnanna. Á laugardag fjallaði Fréttablaðið um mál Ein- ars Hildarsonar, en móðir hans slasaði hann lífshættulega í stungu árás. Í viðtalinu gagnrýndi hann það að móðir hans hefði haft forræðið yfir honum í rúm tvö ár eftir atvikið. „Þetta tekur alltaf ákveðinn tíma en þarna getur verið að sá tími hafi verið lengri en efni stóðu til,“ segir Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur. Einar lýsir því í við- talinu að móðir hans, sem vistuð var á réttargeðdeildinni að Sogni, hafi þurft að skrifa undir umsókn hans í framhaldsskóla og hafi haft lögbundinn rétt á upplýsingum um líf hans. „Ég geri mér grein fyrir því að tvö ár í svona ferli eru langur tími. Atburðurinn er það alvarlegur að það er mjög eðlilegt að fólk spyrji sig af hverju foreldri sé ekki svipt forsjá um leið,“ segir Halldóra. Hún segir að ef samþykki foreldr- is liggur fyrir um að barn skuli vistað utan heimilis sé síður grip- ið til forsjársviptingar. „Það getur verið að engum hafi fundist það neitt sérstaklega áríðandi vegna þess að það hafi ekki reynt á þol- mörk þess hver væri með forsjá og ekki með forsjá. Þrátt fyrir allt er verið að leita að samvinnu fólks um þær ákvarðanir sem þarf að taka í lífi barna.“ Á endanum fengu móðuramma og -afi Einars forsjá yfir honum. „Hins vegar eru margir foreldr- ar sem hafa framið mjög alvar- lega glæpi sem halda forsjá barna sinna í ákveðinn tíma, en þetta var líklega óþarflega langt.“ Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir að tíma- bundnar forsjársviptingar séu leið til að kanna hvort barn geti farið aftur á heimili sitt. „Árið 2002 var gerð sú breyt- ing að svokallað frumúrskurðar- vald í barnaverndarmálum flutt- ist til dómstólanna. Eftir það hafa barnaverndarnefndir enga laga- heimild til að úrskurða í svona stórum málum.“ „Barnaverndarnefndir geta tekið ákvarðanir um tímabundna forsjársviptingu sem varir í tvo mánuði. Á þessum tveimur mán- uðum á nefndin að leggja mat á hvort það sé barninu fyrir bestu að vera skilað aftur til foreldris eða hvort það eigi að svipta for- eldrið forsjá,“ segir Bragi. snaeros@frettabladid.is Foreldri með forsjá eftir brot gegn barni Alvarleg brot gegn barni kallar ekki á sjálfkrafa forsjársviptingu foreldris. Barna- verndarnefndir hafa ekki vald til að svipta foreldri forsjá. Framkvæmdastjóri Barnaverndar segir að reynt sé að fá foreldri til að samþykkja forsjársviptingu. BARNAVERND Halldóra segir að barnaverndanefndir geti tekið ákvarðanir um tímabundna forsjársviptingu sem varir í tvo mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BÚRÚNDÍ Að minnsta kosti þrír létust í Búrúndí í gær þegar forseta- kosningar fóru fram við mikil mótmæli andstæðinga sitjandi forseta, Pierre Nkurunziza. Nkurunziza bauð sig fram til endurkjörs í annað sinn eftir misheppnað valdarán andspyrnuhreyfingar í maí. Forsetinn er talinn hafa náð endurkjöri þótt lokatölur liggi ekki fyrir. Framboð hans hefur valdið deilum í Búrúndí þar sem stjórnar- skrá landsins heimilar forseta einungis að sitja í tvö kjörtímabil. - þea Forseti Búrúndí er talinn hafa náð endurkjöri í annað sinn: Umdeildar kosningar í Búrúndí KOSNINGAR Þessi drengur hjólar fram hjá vegatálma sem stjórnarandstæðinga í Búrúndi settu upp nálægt kjörstað í höfuðborginni Bújúmbúra. NORDICPHOTOS/AFP Ég geri mér grein fyrir því að tvö ár í svona ferli eru langur tími. Atburðurinn er það alvarlegur að það er mjög eðlilegt að fólk spyrji Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar. NEYTENDUR Stjórnvöld standa að verðhækkunum á mjólkurvörum sem eru allt að þrefalt hærri en almennt verðlag, segir Finnur Árnason, forstjóri Haga. Reynt sé að leyna neytendur þessum hækkunum. Finnur gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir að krefjast stöð- ugleika og lágrar verðbólgu um leið og óréttmætar hækkanir eru ákveðnar. Opinber verðlagsnefnd búvara ákvað fyrir skömmu að heild- söluverð á mjólkurvörum og mjólkur afurðum skuli hækka þann 1. ágúst næstkomandi um tæp fjögur prósent, nema smjör sem hækkar um 11,6 prósent. „Þetta er opinber nefnd á vegum ráðherra sem tekur ákvörðun um þessar hækkanir. Það er tekin ákvörðun um að hækka smjör um 11,6 prósent og það er vitnað til þess að það hafi ekki hækkað frá því í októ- ber 2013. Vísitalan frá þeim tíma og fram í síðasta mánuð hefur hækkað um 3,39 prósent þann- ig að þessi ákvörðun er rúmlega þreföld vísitöluhækkun,“ sagði Finnur í fréttum Stöðvar 2 í gær- kvöldi. Hann segir að stjórnvöld reyni að fela hækkanirnar fyrir neyt- endum. „Ráðuneytið er að til- kynna þetta á laugardegi um mitt sumar sem segir í raun allt sem segja þarf. Það er verið að fela hækkun sem er langt umfram það sem eðlilegt er.“ - lb Forstjóri Haga gagnrýnir stjórnvöld fyrir að krefjast stöðugleika en hækka á sama tíma verð á mjólk: Segir stjórnvöld standa að verðhækkunum MJÓLK Forstjóri Haga segir stjórnvöld hækka verð um leið og kallað er eftir verðstöðugleika. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR TYRKLAND Fjöldaútför 25 þeirra 32 ungmenna sem féllu í sjálfs- morðsárás sem talin er á ábyrgð Íslamska ríkisins fór fram í tyrk- nesku borginni Gaziantep í gær. Árásin var gerð á tyrkneska bæinn Suruc sem stendur nærri landa- mærunum við Sýrland. Líkkisturnar voru vafðar rauðu klæði og voru þær grafnar ásamt nafni hvers fórnarlambs á hvítu blaði. Hundruð sóttu athöfnina og heyrðust bæði hróp gegn Íslamska ríkinu og ríkisstjórn forsetans, Recep Tayyip Erdogan. Andstæð- ingar hans telja aðgerðir forsetans gegn Íslamska ríkinu ekki nógu strangar. „Við munum gera það sem nauðsynlegt er við þann sem ber ábyrgð á verknaðnum. Þetta var árás gegn Tyrklandi,“ sagði Ahmet Davutoglu, forsætisráðherra Tyrk- lands, í ávarpi sem hann hélt við menningarmiðstöðina sem ráð- ist var á. Davut oglu neitaði einn- ig ásökunum um að Tyrkir hefðu ekki beitt sér af nógu mikilli hörku gegn Íslamska ríkinu. Ungmennin sem létust stóðu fyrir umræðufundi um endur- byggingu bæjarins Kobane í Sýrlandi sem hefur orðið fyrir barðinu á árásum Íslamska ríkis- ins. Fundurinn var á vegum sam- bands ungra jafnaðarmanna í Tyrklandi. - þea Fjöldaútför fór fram í Gaziantep eftir sjálfsmorðsárás á menningarmiðstöð: Fórnarlambanna í Suruc minnst SORG Ekkasog heyrðust í bland við öskur mótmælenda við fjöldaútför fórnarlamb- anna í Suruc. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur höfðað mál á hendur 44 ára göml- um karlmanni og 28 ára gamalli konu fyrir frelsissviptingu og til- raun til ráns í nóvember 2012. Meint brot áttu sér stað í húsi í Hvalfjarðarsveit og er fólkið ákært fyrir að hafa í sameiningu svipt konu frelsi sínu og reynt að neyða hana til að greiða þeim allt að 200 þúsund krónur. Ákærðu neituðu bæði sök við þingfestingu málsins en aðalmeð- ferð fer fram í september í Hér- aðsdómi Vesturlands. - ngy Ákærðu neituðu bæði sök: Tvö ákærð fyrir frelsissviptingu STJÓRNMÁL Meira en sjö af hverj- um tíu svarendum sem taka afstöðu í Þjóðarpúlsi Gallup eru ánægðir með áætlun ríkisstjórn- arinnar um losun gjaldeyris- hafta, eða rúmt 71 prósent. Ein- ungis ríflega fjögur prósent eru óánægð með áætlunina en hátt í fjórðungur segist hvorki ánægð- ur né óánægður, eða rúmlega 24 prósent. Munur er á viðhorfi fólks eftir fjölskyldutekjum. Sá hópur sem er með hæstar fjölskyldutekjur er ánægðastur með áætlunina. - ngy Tekjuhærra fólk ánægðara: Yfir 70 prósent eru ánægð 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :5 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 0 -E B E C 1 7 5 0 -E A B 0 1 7 5 0 -E 9 7 4 1 7 5 0 -E 8 3 8 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 4 0 s _ 2 1 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.