Fréttablaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 4
22. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Innanríkisráðherrar Evrópusam- bandsins komust að samkomulagi á fundi sínum í Brussel á mánu- daginn að taka við 32 þúsund flóttamönnum og koma þeim fyrir í álfunni. Fundur ráð- herranna þótti þó ekki hafa heppnast nægi- lega vel. Upphaf- lega var áætlað að taka á móti 40 þúsund flótta- mönnum en ekki náðist full sam- staða um móttöku þeirra. Því munu nokkur Evrópuríki leggja sitt af mörkum en önnur sitja hjá. Fyrstu flóttamönnunum verður komið fyrir í október í ár. Dimitris Avramopoulos, fram- kvæmdastjóri flóttamannamála innan Evrópusambandsins, sagð- ist vonsvikinn með niðurstöðuna en þó segir hann að ákvörðunin hafi verið stórt skref fram á við. Ákveðið var að þeir átta þúsund flóttamenn sem eftir eru hljóti móttöku í lok árs. Þjóðverjar taka á móti flestum Þýskaland og Frakkland taka á móti flestum flóttamönnum en Þýskaland mun taka við 12.100 manns og Frakkland 9.127. Danmörk, Bretland og Írland búa við undanþágur frá málefnum af þessum toga innan Evrópusam- bandsins en kusu þó að taka að ein- hverju leyti þátt. Bretland tekur á móti 2.200 manns, Danmörk tekur á móti 1.000 manns og Írland 1.120. Þrátt fyrir miklar skuldbind- ingar nokkurra ríkja var ekki full samstaða um móttöku flóttafólks. Ungverjaland og Austurríki lögð- ust meðal annars hart gegn sam- komulaginu en hvorugt ríkið mun taka á móti flóttamönnum. Nokkur ríki utan Evrópusam- bandsins munu einnig taka við flóttamönnum en það eru Ísland, Sviss, Liechtenstein og Noregur. Athygli vekur að Noregur ákvað að taka á móti 3.500 flóttamönn- um, sem er hlutfallslega langmest miðað við önnur ríki. Ísland hlutfallslega öflugt Þá stendur Ísland sig nokkuð vel í þeim efnum en sá fjöldi sem Ísland mun taka við á næstu tveimur árum er hlutfallslega svipaður og skuldbindingar Þýskalands. Eygló Harðardóttir félagsmála- ráðherra segir að Ísland sé hátt skrifað hjá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. „Það var ánægjulegt þegar við fengum heimsókn frá Flótta- mannastofnun Sameinuðu þjóð- anna þar sem þau sögðu að hvernig við höfum tekið á móti kvótaflótta- mönnum hefur verið til fyrirmynd- ar,“ segir hún. Eygló segist ekki vita hvenær hægt verði að taka á móti fólkinu en það muni skýrast í haust. Hóp- arnir sem þau horfa til eru ein- stæðar mæður, hinsegin fólk og fólk sem þarfnast aðhlynningar. „Við þurfum að gera okkar. Þarna er mikill vandi. Þetta er okkar framlag í að taka á þess- ari neyð en ég held að við vitum það öll að við leysum þetta ekki bara með þessum hætti heldur liggja lausnirnar í friði í viðkom- andi löndum auk uppbyggingar. Þar kemur til annars konar þróun- araðstoð sem mun skipta verulega miklu máli.“ 32 þúsund manna fólksflutningar Ísland mun taka við 50 flóttamönnum á næstu tveimur árum sem gerir Ísland að hlutfallslegum jafningja Þýskalands og Frakklands í þeim efnum. Félagsmálaráðherra segir Íslendinga hátt skrifaða hjá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hvað móttöku flóttafólks varðar. ➜ Móttaka flóttamanna frá 1996 til 2014 Ár Móttökusveitarfélag Heimaland Fjöldi 1996 Ísafjörður Krajina (Króatía) 30 1997 Hornafjörður Krajina (Króatía) 17 1998 Blönduós Krajina (Króatía) 23 1999 Hafnarfjörður, Fjallabyggð, Dalvík Kósóvó 75 2000 Siglufjörður Krajina (Króatía) 24 2001 Reykjanesbær Krajina (Króatía) 23 2003 Akureyri Krajina (Króatía) 24 2005 Reykjavík Kósóvó 7 2005 Reykjavík Kólumbía 24 2007 Reykjavík Kólumbía 30 2008 Akranes Palestínumenn frá Írak 29 2010 Reykjavík Kólumbía 6 2012 Reykjavík Afganistan 9 2014 Hafnarfjörður Afganistan 6 2014 Reykjavík Sýrland 13 2014 Reykjavík Simbabve, Kamerún, Úganda 5 EYGLÓ HARÐARDÓTTIR Stefán Rafn Sigurbjörnsson stefanrafn@frettabladid.is Ísland 50 0,015% Írland 1.120 0,017% Þýskaland 12.100 0,014% Frakkland 9.127 0,013% Spánn 1.300 0,002% Pólland 1.100 0,002% Grikkland 350 0,003% Ítalía 2.000 0,003% Noregur 3.500 0,06% ■ Fjöldi flóttamanna sem tekið er við. ■ Fjöldi flóttamanna sem hlutfall af heildarfólksfjölda. * Ýmist er um að ræða kvótaflóttamenn og/eða hælisleitendur. ➜ Fjöldinn sem Ísland tekur við á næstu tveimur árum er hlutfallslega álíka og skuldbind- ingar Þýskalands og Frakklands. MÓTTAKA FLÓTTAMANNA Í EVRÓPU* VIÐSKIPTI Bæjarráð Vestmanna- eyja vill að hluthafar í Lands- bankanum fundi vegna áforma bankans um að byggja nýjar höf- uðstöðvar við Hörpu. Þar verði óskað eftir frekari rökstuðningi um hvers vegna nýjar höfuðstöðv- ar skuli rísa í miðbæ Reykjavíkur. „Bæjarráð Vestmannaeyja telur að því fari fjarri að hluthöfum hafi verið sýnt fram á að mesta hagræði skapist fyrir Lands- bankann, hluthafa hans og við- skiptavini, með því að reisa nýja glæsibyggingu á verðmætustu lóð landsins,“ segir í ályktun bæjar- ráðs. Vestmannaeyjabær varð nýlega hluthafi í Landsbankanum eftir að bankinn tók yfir Sparisjóð Vest- mannaeyja. Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar vill að óháð mat fari fram á því hvaða staðsetning sé hagkvæm- ust fyrir Landsbanka Íslands þar sem horft verði til fleiri staða en Reykjavíkur. „Þá hefur nýlega verið bent á að heppilegar lóðir til framkvæmda á höfuðborgar- svæðinu séu í Hvassahrauni,“ segir í ályktuninni. - ih Vestmannaeyingar vilja að hluthafar fundi um nýja byggingu Landbankans: Vilja svör frá Landsbankanum VIÐ HÖRPU Landsbankinn vill reisa nýjar höfuðstöðvar á þessari lóð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Snjallara heyrnartæki HEYRNARSTÖ‹IN Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Ókeypis heyrnarmælingsíðan 2004 153.000 fl óttamenn hafa komið til Evrópu það sem af er ári. aukning frá 2014. Alls Ítalía Grikkland Spánn og Malta 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 49.500 105.000 42.000 55.500 6.500 48.000 1.000 1.500 ■ janúar til maí 2014 ■ janúar til maí 2015 ➜ Flóttamenn í Evrópu 149% 32.000 1.800 Samkomulag hefur náðst um fl óttamenn. Talið er að fl óttamenn hafi látið lífi ð á hafi úti það sem af er ári. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :5 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 1 -B 1 6 C 1 7 5 1 -B 0 3 0 1 7 5 1 -A E F 4 1 7 5 1 -A D B 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 4 0 s _ 2 1 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.