Fréttablaðið - 22.07.2015, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 22. júlí 2015 | MENNING | 21
„Það er mikill leikur og gleði sem
felst í því að gera stór textílverk
og myndefnið sæki ég í hið iðandi
líf sem leynist á ólíklegustu stöð-
um,“ segir Gerður Guðmundsdótt-
ir myndlistarkona um sýninguna
Hringrás sem opin er í Listasal
Mosfellsbæjar fram á laugardag.
Gerður segir um tveggja ára
vinnu liggja að baki sýningunni
og að sum verkin séu býsna stór.
Bláfjöll, sem búið er til með
þrykktum laufblöðum á bláa,
þæfða fleti, er til dæmis rúmir
15 fermetrar og það eitt tók hana
níu mánuði að gera. Hún hrósar
Listasal Mosfellsbæjar og segir
gaman að sýna þar, til dæmis not-
ist lítill gluggi þar til að dýpka
eitt verkið með skuggum. Hún
hefur samanburð við sali á stærri
stöðum því hún var með Bláfjöll
á listasafni í Frakklandi í eitt ár
og áður sýndi hún í Freiburg í
Þýskalandi.
Gestir á sýningunni geta hitt
Gerði í dag, því hún ætlar að sitja
yfir. - gun
Þúsundir blóma, silfraðar tjarnir og mýs á ís
Á sýningunni Hringrás í Listasal Mosfellsbæjar leikur Gerður Guðmundsdóttir sér að fj ölbreytileika náttúrunnar.
MÆÐGUR
Gerður og
Hanna Dís,
dóttir hennar,
standa við
verkið Vorkoma
sem saman-
stendur af yfir
tvö þúsund
blómum í
silunganeti.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Það má segja að óperuveturinn á
Íslandi skelli á strax í ágústlok en
ævintýraóperan Baldursbrá eftir
Gunnstein Ólafsson og Böðvar
Guðmundsson verður frumflutt á
sviði í Norðurljósasal Hörpu þann
29. ágúst. Baldursbrá var flutt á
tvennum tónleikum sumarið 2014
og tilnefnd til Íslensku tónlistar-
verðlaunanna, fyrst íslenskra
barnasöngleikja. En að þessu sinni
er á ferðinni heilstæð sviðsupp-
færsla og er sýningin samstarfs-
verkefni Litla óperukompanísins,
Íslensku óperunnar og Hörpu.
Gunnsteinn Ólafsson segir að
tónlistin í Baldursbrá byggi að
hluta á íslenskum þjóðlögum,
bæði rímnalögum og þulum, en
einnig bregði fyrir rappi og fjör-
legum dönsum. „Óperan segir frá
Baldursbrá sem kynnist sposkum
Spóa. Þau ákveða að fara saman
upp á fjallstind til þess að njóta
útsýnisins en það reynist ekki ein-
falt mál. Þau fá Rebba til að flytja
blómið upp á efstu eggjar þar sem
hræðilegur hrútur eigrar um í leit
að æti. Yrðlingar Rebba reyna að
fella Hrútinn en það reynist þeim
þrautin þyngri. Líf Baldursbrár
hangir á bláþræði og hún þarf að
komast aftur heim í lautina sína
sem fyrst. En hver kemur þá til
bjargar?”
Söngvarar eru Fjóla Nikulás-
dóttir í hlutverki Baldursbrár, Eyj-
ólfur Eyjólfsson í hlutverki Spóa,
Jón Svavar Jósefsson er Rebbi,
Davíð Ólafsson syngur Hrútinn
og ellefu börn eru í hlutverki yrð-
linga. 16 manna kammersveit leik-
ur undir stjórn Gunnsteins Ólafs-
sonar.
Leikstjóri sýningarinnar er
Sveinn Einarsson, leikmynd gerir
Sigurjón Jóhannsson, búninga
hannar Kristina Berman og Mess-
íana Tómasdóttir gerir grímur.
- mg
Frumsýning á
Baldursbrá
TÓNSKÁLD Gunnsteinn Ólafsson er
annar höfunda Baldursbrár.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Steingrímur Þórhallsson, organisti
Neskirkju, verður gestur Alþjóð-
legs orgelsumars í Hallgríms-
kirkju fimmtudaginn 23. júlí nk.
en með honum á tónleikunum verð-
ur Pamela de Sensi flautuleikari.
Efnisskrá tónleikanna gefur góða
mynd af þeim fjölmörgu eigin-
leikum sem stóra Klais-orgel-
ið býr yfir en Steingrímur mun
leika Sónötu nr. 2 eftir Mendel-
sohn og Suite gothique eftir Boëll-
mann, auk þess sem nýtt verk
eftir Steingrím sjálfan, Dialogus,
verður frumflutt á tónleikunum.
Dia logus er samið fyrir orgel og
flautu og leikur Pamela á fjórar
ólíkar flautur í verkinu sem eiga í
samtali við hinar fjölmörgu pípur
orgelsins. Tónleikarnir hefjast kl.
12 á fimmtudaginn og miðaverð er
2.000 krónur. - mg
Alþjóðlegt
orgelsumar
FLAUTULEIKARI Pamela de Sensi
flautuleikari. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VIÐKVÆM HÚÐ?
PRÓFAÐU
ALLA LÍNUNA…
ÞVOTTAEFNI | HREINLÆTISVÖRUR | HÚÐVÖRUR | ANDLITSLÍNA | BARNAVÖRUR
ÞRÓAÐ Í SAMVINNU VIÐ DÖNSKU
ASTMA- OG OFNÆMISSAMTÖKIN
…fyrir heimilið, fjölskylduna og þig.
Neutral er sérstaklega þróað fyrir viðkvæma húð og inniheldur
engin ilmefni, litarefni eða paraben – þannig hjálpar Neutral
þér að vernda húð allra í fjölskyldunni.
Skoðaðu allar Neutral vörurnar í næstu verslun eða kíktu á Neutral.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
2
-4
A
7
C
1
7
5
2
-4
9
4
0
1
7
5
2
-4
8
0
4
1
7
5
2
-4
6
C
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
1
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K