Fréttablaðið - 22.07.2015, Page 23
5 | 22. júlí 2015 | miðvikudagur
Verð á gulli hefur ekki verið
lægra í fi mm ár. Ástæðan er sú
að umræðan um vaxtahækkun í
Bandaríkjunum hefur orðið hvati
fyrir fjárfesta til að selja málm-
inn. Verð á gulli var á mánudags-
morgun 1.088 dalir á únsuna. Það
er í fyrsta sinn frá árinu 2010 sem
verðið fer niður fyrir 1.100 dali.
Í stað gullsins kaupa fjárfest-
ar Bandaríkjadal, í þeirri trú að
seðlabankinn hækki vexti vegna
batamerkja í bandaríska hagkerf-
inu, en fjárfestar kaupa vanalegast
gull á óvissutímum. Verð á platínu-
málmi féll líka um fi mm prósent
í upphafi vikunnar og hefur ekki
verið lægra síðan alþjóðakreppan
skall á árið 2007.
Evan Lucas, markaðssérfræð-
ingur hjá IG miðlurum, sagði að
þessi lækkun á gulli gæti endað
með því að verðið verði komið
niður í 1.000 á únsuna í lok ársins.
„Það eru engir skýrir hvatar fyrir
fólk til þess að kaupa það,“ sagði
hann. Ein ástæðan sem nefnd
hefur verið er að þegar vextir
hækka og kostnaðurinn við að taka
lán verður meiri þá horfa menn
síður til gullsins. Gullið gefur
nefnilega ekki af sér ávöxtun eins
og verðbréf gera.
Þetta verðfall varð þrátt fyrir að
kínversk stjórnvöld, sem er stærsti
kaupandi á gulli, hafi greint frá
því á föstudaginn að gullbirgðirn-
ar hefðu verið um 57 prósentum
meiri í lok júní en þær voru fyrir
rúmum sex árum.
Ástæðan er líklegast sú að þótt
gullforði Kínverja sé meiri nú í
tonnum talið er aukning á gull-
birgðum Kínverja þó minni en
sérfræðingar bjuggust við. Gull
er núna 1,65 prósent af erlendum
eignum kínverska ríkisins, en var
1,8 prósent í júní 2009.
Janet Yellen, aðalbankastjóri
seðlabanka Bandaríkjanna, sagði
í skýrslu til fjárlaganefndar full-
trúadeildar Bandaríkjaþings í
síðustu viku að peningastefna
seðlabankans hefði ekkert breyst
á undanförnum vikum. Bank-
inn vænti þess enn að stýrivextir
yrðu hækkaðir síðar á árinu, að
því gefnu að hagvöxtur yrði í takt
við væntingar. „Þegar horft er til
framtíðar þá er útlit fyrir jákvæða
þróun á atvinnumarkaðnum og í
efnahagslífi nu í víðara samhengi,“
sagði Yellen við þingnefndina.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
telur að seðlabankinn eigi að bíða
til næsta árs með að hækka vexti.
Nokkrir úr bankastjórn seðlabank-
ans eru sammála. Yellen sagði hins
vegar í gær að stefna meirihluta
bankastjórnarinnar hefði ekki
breyst. jonhakon@frettabladid.is
Gullverð tók dýfu
Umræða um vaxtahækkanir í Bandaríkj-
unum dregur úr áhuga fjárfesta á gulli.
Sérfræðingar sem hafa gagnrýnt
starfsaðstæður hjá írska flug-
félaginu Ryanair fengu á dögun-
um bréf frá fl ugfélaginu. Í bréfi nu
er sérfræðingunum hótað málsókn
vegna gagnrýni þeirra.
Sænska ríkisútvarpið greindi
frá því að sérfræðingarnir hefðu
gefi ð skýrslu fyrir Evrópuþinginu
um öryggismál hjá Ryanair. Þeir
sögðu að ráðningarskilmálar hjá
fl ugfélaginu gætu stefnt öryggi
starfsmanna í hættu vegna þess að
fl ugmenn sem ekki eru fastráðnir
eru líklegir til þess að taka meiri
áhættu. Þeir eru til dæmis líklegri
til þess að vinna þótt þeir séu veik-
ir eða þreyttir.
Eftir að hafa tjáð sig fengu
sérfræðingarnir, sem þó hafa
ekki látið nafn sitt uppi, bréf frá
Ryan air. Þar var þeim hótað því
að ef þeir myndu nokkurn tím-
ann endur taka þessa gagnrýni þá
myndi Ryanair stefna þeim fyrir
ummæli þeirra.
Það var hollenski Evrópuþing-
maðurinn Wim van de Camp sem
sagði frá bréfi nu með hótunun-
um. Hann segir að það hafi verið
sex útgáfur af bréfi nu. Hann ótt-
ast að afl eiðingin verði sú að það
verði erfi ðara að fá sérfræðinga
til að tjá sig fyrir Evrópuþinginu
ef fyrir tæki ráðast á sérfræðinga
með þessum hætti. Það geri lýð-
ræðislega stöðu Evrópuþingsins
mun fl óknari. - jhh
Sérfræðingar í flugöryggi gagnrýndu ráðningarskilmála flugmanna:
Hótað málsókn fyrir
gagnrýni á Ryanair
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdótt-
ir hefur verið ráðin sviðsstjóri lög-
fræðisviðs Háskólans á Bifröst. Hún
er aðstoðarsaksóknari hjá embætti
ríkissaksóknara, þar sem hún hefur
starfað í tvö ár. Hún vann áður sem
aðstoðarmaður dómara í Héraðs-
dómi Reykjavíkur og hefur einnig
starfað við saksókn fyrir lögregl-
una á höfuðborgarsvæðinu. Þorbjörg
lauk laganámi frá Háskóla Íslands
og LL.M.-gráðu frá Columbia-
háskóla í New York árið 2011.
Þorbjörg segir að reynslan úr
starfi sínu í réttarkerfi nu muni nýt-
ast í nýja starfi nu. „Í málfl utningi
er ákveðin þungamiðja starfsins
að greina kjarna máls og rökstyðja
niður stöðuna að því loknu. Góður
lögfræðingur þarf að að geta fært
rök fyrir máli sínu munnlega og
skrifl ega,“ segir Þorbjörg. „Það var
jafnframt dýrmæt reynsla að upp-
lifa kennsluna í Columbia. Mark-
miðið var að kenna laganemum að
beita þekkingu og mikil áhersla var
lögð á raunhæf verkefni fremur en
hefðbundna fyrirlestra. Þá var mikil
áhersla lögð á samspil lögfræði við
aðrar fræðigreinar.“
Starf sviðsstjóra er starf við
stjórnun og stefnumótun lagadeild-
arinnar og yfi rumsjón með nám-
skeiðum. Þorbjörg segir að námið í
lagadeildinni á Bifröst sé mjög
spennandi og að til standi að halda
uppbyggingunni áfram. Deildin hafi
undanfarið markað sér sérstöðu
með nútímalegum kennsluháttum
og sterkum alþjóðlegum tengslum
og nú með því að boðið verður upp
á laganám samhliða vinnu og laga-
nám í fjarkennslu. Nemendum sé
að fjölga mikið. Þorbjörg segir að
fyrir sér sé lögfræði ekki einungis
atvinna heldur líka mikið áhugamál.
„Lögfræðin hefur opnað á skemmti-
leg störf og tengist öllum hliðum
samfélagsins og fl éttast inn í allt
daglegt líf,“ segir hún.
Utan vinnu finnst Þorbjörgu
skemmtilegt að bjóða fólki heim í
mat. Þorbjörg er gift Ágústi Ólafi
Ágústssyni, lögfræðingi og hagfræð-
ingi. „Undanfarið hefur hann verið
myndarlegri en ég í eldhúsinu en ég
hef verið hjálparhella og er dugleg að
klára matinn minn,“ segir Þorbjörg.
„Við höfum mjög gaman af því að fá
vini heim í mat.“ Þorbjörg byrjar í
nýja starfi nu þann 1. ágúst. Næstu
dagana verða Þorbjörg og fjölskylda
hennar aftur á móti í sumarleyfi í
París. Fjölskyldan skipti á húsum
við franska fjölskyldu. „Við hlökkum
til að endurnýja kynnin við sólina,“
segir Þorbjörg. jonhakon@frettabladid.is
Eiginmaðurinn er
myndarlegri í eldhúsinu
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er nýr sviðsstjóri lögfræðisviðs
Háskólans á Bifröst. Hún telur að reynsla sín úr réttarkerfinu
nýtist vel í nýja starfinu. Þorbjörg nýtur sumarsins í Frakklandi.
GULL Í GEYMSLU Fyrirhugaðar stýrivaxta-
hækkanir draga úr spurn eftir gulli.
NORDICPHOTOS/GETTY
Það eru
engir hvatar
fyrir fólk til þess
að kaupa það.
FER Á BIFRÖST
Þorbjörg Sigríður
Gunnlaugsdóttir
hefur starfað hjá
Ríkissaksóknara í tvö
ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Stórvinkona mín og nafna er skarpgreind og metnaðarfull. Hún
er sérlega rökföst og kemur hratt með greiningu á málum. Hún
er framúrskarandi saksóknari í erfiðum málum og á framtíðina
fyrir sér! Fyrst og fremst er hún fáránlega fyndin og mikill grallari
– stundum sér maður hreinlega á augunum á henni að eitthvað
stórsniðugt er á leiðinni. Hennar annað starf gæti hæglega verið
uppistand. Hún og Ágúst eru miklir sálufélagar og fjölskyldufólk og eiga ógrynni
af góðum vinum. Obba er traust vinkona og næm á tilfinningar og persónu-
leika. Skrýtna hlið Obbu er óeðlilegur áhugi á konungsfjölskyldum, og þá sér-
staklega þeirri sænsku. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, eigandi Tröppu ehf.
Obba er mjög traustur vinur. Hún liggur ekki á skoðunum sínum
og sér spaugilegu hliðarnar á öllu, bæði sínum nánustu og ýmsu
í þjóðfélaginu. Þessi leiftrandi kímni er kannski helsta einkennið.
Hún hefur líka þennan fallega eiginleika að laða fram það besta í
öðrum. Hún er alls ekki athyglissjúk en verður samt fljótt prímus-
mótórinn í öllum samræðum, svo fróð og vel lesin sem hún er.
Það er enda mikil samkeppni á milli hennar mörgu vina um að fá hana í mat
eða hitta hana í drykk. Það er gaman að sjá alla bestu kosti Obbu birtast í
þremur dætrum hennar. Yngsta er prakkarinn, sú í miðið er félagslynda gáfna-
ljósið og sú elsta umhyggjusama mamman. Saman eru þær Obba í hnotskurn.
Andrés Jónsson almannatengill.
MEÐ MIKINN ÁHUGA Á KONUNGSFJÖLSKYLDUM
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
2
-A
3
5
C
1
7
5
2
-A
2
2
0
1
7
5
2
-A
0
E
4
1
7
5
2
-9
F
A
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
1
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K