Fréttablaðið - 22.07.2015, Síða 32
22. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 20
„Við erum hrifin af hljómsveitinni
og laginu og veittum því athygli
að það var ekki til neitt myndband
við það. Þannig að við ákváðum að
taka okkur það bessaleyfi að gera
myndband,“ segir Benedikt Þor-
geirsson, sem í byrjun júní deildi
myndbandi sem hann gerði ásamt
ferðafélögum sínum við lagið Það
sem þú gefur með hljómsveitinni
AmabAdamA.
Myndbandið var tekið upp hér
og þar á tólf daga ferðalagi um
Bandaríkin. „Við eigum það til að
dilla okkur vinahópurinn og þetta
var svona „heat of the moment“
dæmi,“ segir hann glaður í bragði.
Með honum í för var norsk kærasta
Benedikts, þýsk vinkona þeirra og
bandarískur vinur.
Í myndbandinu má sjá mynd-
skeið víða frá, meðal annars frá
Grand Central Station þar sem
stúlka dansar við lagið og frá
slökkvistöð í China Town. „Svo
fórum við inn á bar og fengum
barþjóninn til þess að tengja lagið
og barinn til þess að dilla sér með
okkur.“
AmabAdamA deildi svo mynd-
bandinu á Facebook-síðu sinni og
segir Benedikt það ekki hafa komið
á óvart vegna smæðar Íslands en
verið skemmti-
legt þar sem
talsverð vinna
hafi farið í
myndbandið.
„Við vorum búin að vera að pæla
í einhverju svipuðu myndbandi
við þetta lag og jafnvel að taka
það upp á sólarströnd. Þannig að
þetta var akkúrat í þeim anda sem
við vorum búin að vera að hugsa
um,“ segir Steinunn Jónsdóttir,
önnur söngkona AmabAdamA
glöð í bragði og bætir við: „Okkur
fannst þetta bara snilld, vorum
bara smá öfundsjúk að vera ekki
með, þau virtust skemmta sér svo
rosalega vel.“
Það er því óhætt að segja að
lagið Það sem þú gefur hafi orðið
hálfgert þemalag ferðarinnar en
það var þó annað lag sem kom
einnig til greina. „Þjóðverjinn í
hópnum vildi helst syngja
Glaðasti hundur í heimi
með Friðriki Dór en var
kosinn út,“ segir Bene-
dikt hlæjandi að lokum.
- gló
Fjórmenningar á ferðalagi dilluðu sér við AmabAdama
Vinirnir fj órir gerðu myndband við lagið Það sem þú gefur á ferðalagi um Bandaríkin og fengu ýmsa til að dilla sér við taktfasta tóna.
GÓÐAR STUNDIR Hér má sjá vinina fjóra en þau veittu því athygli að ekki var til
myndband við lagið og gripu því gæsina. MYND/BENEDIKT
STEINUNN
JÓNSDÓTTIR
Þrátt fyrir að Ben Affleck og
Jennifer Garner séu í miðjum
skilnaði þá reyna þau að halda
góðu sambandi fyrir börnin.
Samband þeirra entist í tíu ár og
eiga þau saman þrjú börn.
Jennifer er um þessar mundir
að taka upp kvikmynd í Atlanta
í Bandaríkjunum og hafa börnin
verið hjá henni á meðan á því
stendur. Ben Affleck hefur heim-
sótt þau á settið en hann er sjálf-
ur að undirbúa útgáfu nýjustu
Batman-myndarinnar þar sem
hann leikur leðurblökuhetjuna.
Á dögunum náðust myndir af
honum með Golden Retriever
hvolp í fanginu. Talið er að þetta
sé gjöf til barnanna til þess að
kæta þau á þessum erfiðu tímum.
Kæta börnin
með hvolpi
SKILNAÐUR Jennifer Garner og Ben
Affleck eiga þrjú börn. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikkonan Heiða Rún Sigurðar-
dóttir skrifaði á dögunum undir
áframhaldandi samning um fram-
leiðslu þáttanna Poldark sem fram-
leiddir eru af BBC.
„Það þýðir ekkert endilega að við
gerum þetta allt, það veltur allt á
vinsældum og hvernig þetta geng-
ur allt saman,“ segir Heiða hóg-
vær, en þættirnir hafa gengið vel
og er samningurinn um hlutverk
í þáttunum til næstu fjögurra til
fimm ára.
Rúmlega sjö milljónir manna
horfðu á fyrsta þátt seríunnar sem
frumsýndur var í byrjun mars á
þessu ári og rúmlega sex milljónir
fylgdust með lokaþættinum. Heiða
segir tölurnar vera hálfóraunveru-
legar.
Tökur á annarri seríu hefjast
í september og segir Heiða ekki
mikið annað komast að á meðan
þær standa yfir. „Ég er ekki enn
þá búin að fá dagskrána mína, en ef
þetta er eins og það var í fyrra þá
kemst ekkert annað fyrir.“
Síðasta verkefni Heiðu á Íslandi
var hlutverk Grétu í sjónvarpsþátt-
unum Hraunið, sem sýndir voru á
RÚV í vetur, og Heiða segist vera
mjög opin fyrir því að taka að sér
frekari verkefni hérlendis þegar
tími gefst til. „Mér hefur boðist
tækifæri til þess að vera mögu-
lega hluti af nokkrum verkefnum
í haust en gat því miður ekki einu
sinni athugað málið,“ segir hún og
bætir við: „Ég hefði verið mjög til
í það, vonandi kemur sá dagur að
ég er laus.“
Poldark er búningadrama sem
byggt er á samnefndum skáld-
sögum eftir Winston Graham
sem skrifaðar voru um miðja síð-
ustu öld. Þættirnir segja frá Ross
Poldark sem snýr heim eftir þrjú
ár í hernum og kemst að því að unn-
usta hans er trúlofuð frænda hans.
Heiða Rún fer með hlutverk unn-
ustunnar, Elizabeth.
Heiða segir gaman að leika í bún-
ingadrama á borð við Poldark og að
huga þurfi að mörgu en sögusvið
þáttanna er seint á 18. öld. „Þetta
er allt öðruvísi, maður hagar sér
öðruvísi, talar öðruvísi og hreyfir
sig allt öðruvísi,“ segir hún glöð í
bragði að lokum. gydaloa@frettabladid.is
Gaman að leika í búningadrama
Heiða Rún Sigurðardóttir leikur eitt aðalhlutverka í þáttunum Poldark og gerði á dögunum áframhaldandi
samning. Tökur á annarri seríu hefj ast í september og hefur Heiða ekki tíma fyrir fl eiri verkefni á meðan.
NÓG AÐ GERA Heiða Rún segir gaman
að leika í búningadrama en tökur
hefjast í september á annarri syrpu
Poldark. NORDICPHOTOS/GETTY
Þetta er allt
öðruvísi, maður hagar
sér öðruvísi, talar
öðruvísi og hreyfir
sig allt öðruvísi.
KRINGLUNNI
AKUREYRIKEFLAVÍK
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
bio. siSAM
SPARBÍÓ
CINEMABLEND
SEGÐU MANNINUM ÞÍNUM AÐ ÞAÐ SÉ STELPUKVÖLD Í KVÖLD!
ÍSLANDSVINURINN CHANNING TATUM ER SJÓÐHEITUR Í ÞESSARI
SKEMMTILEGU SUMARMYND
METRO NY
NEW YORK DAILY NEWS
IN TOUCH
VARIETY
CHICAGO SUN TIMES
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR AVENGERS
OG GUARDIANS OF THE GALAXY
EMPIRE
TOTAL FILMVARIETY
PIXELS 5, 8, 10:15
ANT-MAN 3D 8, 10:30
SKÓSVEINARNIR 2D 4, 6
MINIONS 2D 4, 6
TED 2 10:35
JURASSIC WORLD 2D 8
SÝND í 2D
SÝND MEÐ
ÍSL OG ENS TALI
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
1
-B
1
6
C
1
7
5
1
-B
0
3
0
1
7
5
1
-A
E
F
4
1
7
5
1
-A
D
B
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
1
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K