Fréttablaðið - 22.07.2015, Page 40
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
WOWAIR.IS
KATRÍNARTÚN 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS Verð miðast við flug aðra leið með sköttum. Bókunargjald ( 999 kr.) og töskugjald ekki innifalið.
SÓLIN ER HÉR!
BÓKAÐU NÚNA
Á WOWAIR.IS
KOMDU ÚT
AÐ LEIKA!
ALICANTE f rá
17.999 kr.
s e p t e m b e r - n ó v e m b e r 2 0 1 5
TENERIFE f rá
18.999 kr.
s e p t e m b e r - n ó v e m b e r 2 0 1 5
ÚRVAL AF
VÖRUM FRÁ
IITTALA
Aðgerðir til að bregðast við fjölgun ferðamanna hafa í
besta falli verið handahófskennd-
ar. Landeigendur við Geysi leigðu
sér posa og hugðust rukka inn á
svæðið. Sem þeir og gerðu í nokk-
urn tíma og allir borguðu nema
Ögmundur. Lögbann var sett á
gjaldtökuna og grátkórar land-
eigenda og þeirra sem voru gjald-
tökunni mótfallnir voru jafn háir.
Allt mjög yfirvegað en niðurstaðan
engin. Náttúrupassinn var ræddur,
hæddur, mærður og særður og
liggur nú í saltpækli.
NÚ eru ferðamennirnir farnir að
gefa skít í náttúruminjar í orðsins
fyllstu. Upphefst þá kórinn á ný.
Ferðaþjónustuaðilar kvarta undan
aðstöðuleysi en umhverfisráð-
herra segir ekki koma til greina
að greiða fyrir uppbyggingu sem
aðeins ferðaþjónustuaðilar græði
á. Í hvert skipti sem gjaldtaka er
nefnd rýkur upp enn einn kórinn.
Fólkið sem vill geta séð Þingvelli
þegar það vill án þess að borga
fyrir 500 kall. Aukaatriði er hvort
það ætli einhvern tímann að fara á
Þingvelli. Það vill bara hafa mögu-
leikann á að gera það ókeypis.
STJÓRNVÖLD bera ábyrgð á að
aðstaða sé til staðar fyrir þá gesti
sem reynt var í mikilli auglýsinga-
herferð að lokka til landsins auk
þess að náttúruminjar beri ekki
skaða af. Á móti ber ferðaþjónust-
an ábyrgð á að halda gestum sínum
upplýstum um reglur og viðmið. Ef
ég býð vini mínum með í partí get
ég ekki lofað því að hann klíni ekki
hori í sófann. En mér dettur ekki í
hug að kvarta undan aðstöðuleysi
hjá gestgjafanum og skorti á snýti-
pappír nái vinurinn ekki að stjórna
sér, heldur myndi ég taka þátt í að
fordæma hann fyrir sóðaskapinn.
FÓLK ferðast um heiminn á eigin
ábyrgð. Við gestgjafarnir verð-
um að hætta að vera of upptekin í
aukahlutverkum okkar í Litlu gulu
hænunni til að aðstaða og fram-
tíðarsýn verði viðunandi. Það
kostar að vera góður gestgjafi en
gestirnir koma oftast með eitthvað
að borðinu, hvort sem það er vín-
flaska, góðar sögur eða ný sýn á
hlutina. Náist sátt um að það sem
er til kostað fari í uppbyggingu
og viðhald á þeim stöðum sem um
ræðir, getum við haldið áfram að
vera góðir gestgjafar næstu ára-
tugina. Verðum ekki gestgjafinn
sem situr eftir með brotið bolla-
stell og útklíndan sófa og enginn
vill heimsækja aftur.
Gestgjafarnir
BAKÞANKAR
Birtu
Björnsdóttur
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
0
-B
F
7
C
1
7
5
0
-B
E
4
0
1
7
5
0
-B
D
0
4
1
7
5
0
-B
B
C
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
4
0
s
_
2
1
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K