Fréttablaðið - 14.07.2015, Qupperneq 4
14. júlí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
LEIÐRÉTTING
Á síðu tvö í Fréttablaðinu í gær var birt
mynd sem átti að vera af Jóhannesi
Jenssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni. Þau
leiðu mistök urðu að myndin var af
Arnari Jenssyni.
MENNTAMÁL Verulegur munur er
á hve mikið einstaklingar endur-
greiða af námslánum sínum eftir
því hve mikið þeir skulda LÍN.
Heildarskuldir þeirra tuttugu
einstaklinga sem lokið hafa námi
og skulda LÍN mest nema 663
milljónum króna, samkvæmt því
sem fram kemur í ársskýrslu LÍN
sem kom út í gær.
LÍN býst við að fá 80 milljón-
ir króna núvirt endurgreitt frá
hópnum, eða 12 prósent lánsfjár-
hæðarinnar. Þeir tuttugu ein-
staklingar sem skulda LÍN mest
og eru enn í námi skulda um 506
milljónir króna. Því skulda fjöru-
tíu einstaklingar LÍN 1,1 millj-
arð króna en að líkindum verður
aðeins lítill hluti þeirra lána end-
urgreiddur.
Þeir einstaklingar sem skulda
LÍN minnst endurgreiða virði
lána sinna nánast að fullu.
Illugi Gunnarsson menntamála-
ráðherra segir fullt tilefni til að
endurskoða úthlutunarreglur
sjóðsins.
Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdótt-
ir, framkvæmdastjóri LÍN, kall-
ar eftir umræðu um hvort breyta
þurfi lánakerfi LÍN.
„Viljum við setja aldurstakmörk
á hvenær þú getur fengið lán? Átt
þú að geta fengið lán eftir sex-
tugt? Á að setja þak á upphæð
námslána? Á að breyta afborg-
unarskilyrðunum með einhverj-
um hætti?“ spyr Hrafnhildur en
bætir við að það sé stjórnvalda að
ákveða með hvaða hætti brugðist
verði við. - ih
Framkvæmdastjóri LÍN kallar eftir umræðu um að þeir sem fá hæstu lánin greiði hlutfallslega minnst:
Fjörutíu manns skulda LÍN 1,1 milljarð
LÍN Framkvæmdastjóri LÍN kallar eftir
umræðu um lánasjóðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SPURNING DAGSINS
SÓLAR
SJÓÐHEITUR
í sólarhring!
Hefst í dag
kl. 12
SAMFÉLAG „Í grunninn bygg-
ir þetta á misskilningi og lélegu
listrænu uppeldi. Síðan kunna að
krauma einhverjar annarlegar
hvatir sem brjótast fram í hatri
og einelti,“ segir Hannes Lárus-
son myndlistarmaður, sem rek-
inn var úr Myndhöggvarafélagi
Reykjavíkur á aðalfundi félagsins
í lok maí.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að ákveðið hefði verið að vísa
honum og Ásmundi Ásmundssyni
myndlistarmanni úr félaginu eftir
leynilega atkvæðagreiðslu. Á fund-
inum var lesin upp nafnlaus tillaga
þar sem lagt var til að þeim yrði
vísað úr félaginu. Gengið var til
atkvæðagreiðslu og niðurstaðan
varð að víkja þeim úr félaginu.
Eftir kosninguna var það upp-
lýst að Kristinn E. Hrafnsson lista-
maður var sá sem bar upp nafn-
lausu tillöguna.
„Staðreyndin er sú að það hafa
aldrei verið framin skemmdar-
verk, ofbeldi né þjófnaður eins
og formaður félagsins hélt fram
í Fréttablaðinu í gær. Ásökun um
hatursáróður er ekkert annað en
meiðyrði,“ segir Hannes.
Ásmundur og Hannes halda því
fram að frávikningin sé meðal
annars tengd meiðyrðamáli sem
Ásmundur höfðaði á hendur
Kristni eftir að þeir deildu í fjöl-
miðlum. Kristinn skrifaði í grein
sinni að Ásmundur væri kunnastur
fyrir að eyðileggja listaverk ann-
arra listamanna. Ásmundur höfð-
aði meiðyrðamál gegn Kristni
fyrir þessi ummæli og tapaði mál-
inu.
„Þessu væli verður að fara að
linna,“ segir Kristinn. „Stjórn
félagsins var búin að reyna að
leysa málið og sendi félagsmönn-
um alvarlega pósta og var félags-
fundur haldinn um málið í mars og
það leystist ekki. Það var því óhjá-
kvæmilegt að taka á þessu á aðal-
fundi. Ég held að félagsmenn hafi
vel vitað hvað þeir voru að gera og
það skiptir engu hver setti textann
saman,“ segir Kristinn og bætir
við að hann hafi ekki geta setið
fundinn og því hafi hann beðið um
að tillagan yrði nafnlaus.
„Það gerði ég svo menn færu
ekki að blanda saman óskyldum
málum, enda sýnir sig nú að það
var rétt mat hjá mér. Menn blanda
alltaf saman persónum og mál-
efnum og nú þykjast menn sjá
samsæri í hverju horni,“ segir
Kristinn sem telur að það sé ekki
vinnufriður í húsnæði félagsins
fyrir þeim félögum. „Ég veit að
yngri listamenn hafa veigrað sér
við að koma í félagið út af þessu
ofbeldi,“ segir Kristinn.
„Það er sjúklegt ástand að
deila, sem í grunninn snýst um
tjáningarfrelsi og hlutverk list-
arinnar, veltist um í grasrótinni
á sama tíma og fulltrúar kerfisins
koma ekki nálægt umræðunni.
Fulltrúar kerfisins eru þeir sem
móta vinnuumhverfi listamanna.
Það hefur til dæmis ekki heyrst
neitt frá Listaháskóla Íslands né
Listasafni Reykjavíkur,“ segir
Daníel Magnússon listamaður og
bætir við að málið snúist um völd
og peninga.
„Þessir menn eru að blanda
gömlum deilum inn í brottrekst-
urinn,“ segir Daníel og bætir við
að þeir félagar verði ekki fyrir
neinu einelti. „Þeir fela fram-
komu sína þannig að þegar upp er
staðið þá túlka þeir andóf félags-
manna gegn sér sem árásir á
tjáningarfrelsið.“
nadine@frettabladid.is
Myndhöggvurum tekst
ekki að höggva á hnútinn
Hannes Lárusson og Ásmundur Ásmundsson myndlistarmenn voru reknir úr Myndhöggvarafélagi Reykjavík-
ur eftir að tillaga barst frá Kristni E. Hrafnssyni myndlistarmanni. Félagsmenn greinir á um málið.
KAFFISTOFA MYNDHÖGGVARAFÉLAGSINS Á myndinni má sjá verk eftir Ásmund
Ásmundsson og Hannes Lárusson á kaffistofu Myndhöggvarafélagsins. MYND/LOGI
Þessu
væli verður að
fara að linna.
Stjórn félagsins
var búin að
reyna að leysa
málið.
Kristinn E. Hrafnsson myndlistarmaður.
Stað-
reyndin er sú
það hafa aldrei
verið framin
skemmdar-
verk, ofbeldi
né þjófnaður.
Hannes Lárusson myndlistarmaður
Verður heimanámið leikandi
létt?
Með Study Cake verður heima-
námið loksins skemmtilegt. Nema
danskan, hún verður alltaf leiðinleg.
Kjartan Þórisson er einn stofnenda sprota-
fyrirtækisins Study Cake sem gefur út forrit
sem miðar að því að leikjavæða heimanám.
MAROKKÓ Tvær konur voru sýkn-
aðar af ákærum um óspektir á
almannafæri í Marokkó í gær.
Konurnar tvær voru hand-
teknar þann 16. júní á markaði í
Inezgane fyrir að klæðast stutt-
um pilsum. Mál kvennanna vakti
mikla athygli í Marokkó og söfn-
uðust þúsundir undirskrifta þar
sem þess var krafist að konurnar
yrðu látnar lausar. - srs
Tvær konur sýknaðar:
Aðför að ein-
staklingsfrelsi
MÓTMÆLI Mótmælafundir voru
haldnir víða í Marokkó konunum til
stuðnings. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
SKIPULAGSMÁL Álftanesvegur
verður lokaður frá 13. til 22. júlí
á meðan gengið er frá tengingu
gamla Álftanesvegar við nýja
Álftanesveginn sem liggur um
Gálgahraun.
Meðan á framkvæmdum
stendur verður opin hjáleið um
Garðaholt. Framkvæmdirnar
munu ekki hafa áhrif á gangandi
eða hjólandi vegfarendur. Fram-
kvæmdirnar hafa valdið nokkurri
óánægju en nokkrir mótmæl-
endur voru handteknir árið 2013
fyrir að tefja fyrir þeim. Áætluð
verklok eru 1. september. - srs
Verklok áætluð í september:
Lokuðu Álfta-
nesvegi í gær
SAKAMÁL Nokkur mansalsmál eru
til skoðunar og rannsóknar hjá lög-
regluembættum landsins. Í einu
þeirra eru mögulegir þolendur um
tuttugu talsins.
Aldís Hilmarsdóttir aðstoðaryf-
irlögregluþjónn segir mansalsmál
erfið rannsóknar. „Því miður eru
alltaf einhver og það eru nokkur til
rannsóknar núna. Öll mansalsmál
eru umfangsmikil og mjög flók-
in í rannsókn og sérstaklega þar
sem við erum með mjög viðkvæma
brotaþola.“
Samkvæmt upplýsingum frá
embættum lögreglustjóranna á
höfuðborgarsvæðinu og á Suður-
nesjum má áætla að fjöldi mála
þar sem rökstuddur grunur hefur
vaknað um mansal sé um þrjátíu á
undanförnum þremur árum. Vakni
rökstuddur grunur um mansal er
málið rannsakað.
Karl Ingi Vilbergsson, lögreglu-
stjóri á Vestfjörðum, staðfestir að
eitt þessara mansalsmála sé til
rannsóknar hjá embættinu, það
varði starfsfólk sem starfaði í
fiskvinnslu Jakobs Valgeirs í Bol-
ungarvík. Rannsóknin er að hans
sögn á lokastigi og er að vænta
ákvörðunar um hvort það verði
fellt niður.
Málið kom fyrst upp árið 2013.
Verkstjóri hjá fiskvinnslufyrir-
tækinu Jakob Valgeir ehf. í Bol-
ungarvík mun hafa rukkað hvern
Pólverja sem fékk vinnu hjá fyr-
irtækinu um 1.000 evrur. Sam-
kvæmt heimildum frá lögreglu
hefur sérfræðingur í mansalsmál-
um frá Suðurnesjum aðstoðað lög-
regluna við rannsókn málsins og
reynt að varpa ljósi á hvort brotið
sé gegn mansalsákvæði laganna
eða ekki. - kbg
Sérfræðingur í mansali fenginn til aðstoðar lögreglunni á Vestfjörðum:
Mansalsrannsókn á lokastigi
Í BOLUNGARVÍK Rannsókn máls-
ins er við það að ljúka. Sérfræðingur í
mansalsmálum var fenginn til að skera
úr um hvort um mansal hefði verið að
ræða.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
1.000 evrur var
hver Pólverji sem fékk vinnu
hjá fyrirtækinu rukkaður um.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
1
-C
F
0
C
1
7
5
1
-C
D
D
0
1
7
5
1
-C
C
9
4
1
7
5
1
-C
B
5
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
3
2
s
_
1
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K