Fréttablaðið - 14.07.2015, Page 24
14. júlí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 20
„Við settum aðsóknarmet og þetta
gekk rosalega vel,“ segir Stefán
Magnússon, forsprakki tónlist-
arhátíðarinnar Eistnaflugs, sem
fram fór um liðna helgi. Yfir tvö
þúsund manns sóttu hátíðina í ár
og var hún talsvert fjölmennari
en undanfarin ár. „Þetta er að
minnsta kosti 30 prósenta aukn-
ing á milli ára. Ég geri ráð fyrir
að það hafi verið um 2.200 manns
á hátíðinni þegar að mest var,“
segir Stefán alsæll en hann var
að klára að sópa gólfið í tónleika-
salnum þegar blaðamaður náði
tali af honum.
Þær erlendu hljómsveitir sem
komu fram í ár voru ákaflega
ánægðar með hátíðina. „Erlendu
böndin voru heilluð af hátíð-
inni og líka af landslaginu og
náttúrunni hérna fyrir austan.
Ónefndur erlendur hljómsveitar-
meðlimur sagði við mig að þetta
hefði verið í fyrsta skipti í marga
mánuði sem það hefði verið
gaman að spila á festivali,“ segir
Stefán um erlendu böndin.
Eistnaflug hefur ávallt verið
mikil kynning fyrir Austur-
land og segir Stefán að hátíðin
í ár muni koma til með að vera
ákveðin kynningarsprengja
fyrir landið og Austurland sér-
staklega. „Bara við vorum með
um tíu erlenda blaðamenn sem
við buðum. Þar fyrir utan komu
örugglega um 20 til 30 aðrir
erlendir blaðamenn og ljósmynd-
arar. Þetta voru allavega svona
40 tímarit, að lágmarki, sem voru
hérna. Þannig að þetta er einhver
rosalegasta kynning sem Austur-
land hefur fengið,“ segir Stefán.
Tónleikarnir fóru fram í
íþróttahúsinu í Neskaupstað í
fyrsta sinn en áður höfðu þeir
verið haldnir í Egilsbúð. Það
þýðir að mun fleiri gestir geta
sótt hátíðina. „Hátíðin verður
með þessu sniði, þú bakkar ekk-
ert út úr þessu dæmi. Þetta á bara
eftir að stækka.“
Rúmlega 500 útlendingar
mættu á Eistnaflug í ár og segir
Stefán að miðað við þá umfjöllun
sem er að fara í gang erlendis,
megi reikna með um 700 útlend-
ingum á næsta ári, sem er tals-
verð aukning.
Stefán segir erfitt að finna
hápunkt á hátíð sem þessari.
„Tónleikarnir voru einn hápunkt-
ur, það er bara þannig,“ segir
Stefán fullur tilhlökkunar fyrir
næstu hátíð.
Tvö erlend bönd eru nú þegar
bókuð á hátíðina á næsta ári þau
Belphegor og Melechesh.
gunnarleo@frettabladid.is
Auglýsingasprengja fyrir Austurland
Eistnafl ug 2015 fór fram um helgina og var nýtt aðsóknarmet sett. Aðstandendur hátíðarinnar gera ráð fyrir enn stærri hátíð að ári.
SVALUR Stefán Jakobsson úr Dimmu með sviðsframkomuna á hreinu.
GAMAN SAMAN Veðrið lék við gesti Eistnaflugs á köflum.LIFI ROKKIÐ Um 2.200 manns voru á hátíðinni þegar mest var.
RÍFANDI STEMNING Íþróttahúsið í Neskaupstað var troðfullt af rokkþyrstum töffurum. MYNDIR/FREYJA GYLFADÓTTIR
-H.S., MBL
ÞRIÐJ
UDAGS
TILBO
Ð
ÞRIÐJ
UDAGS
TILBO
Ð
ÞRIÐJ
UDAGS
TILBO
Ð
ÞRIÐJ
UDAGS
TILBO
Ð
ÞRIÐJ
UDAGS
TILBO
Ð
ÞRIÐJ
UDAGS
TILBO
Ð
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
CINEMABLEND
JAMES CAMERON
SEGÐU MANNINUM ÞÍNUM AÐ ÞAÐ SÉ STELPUKVÖLD Í KVÖLD!
ÍSLANDSVINURINN CHANNING TATUM ER SJÓÐHEITUR Í ÞESSARI
SKEMMTILEGU SUMARMYND
METRO NY
NEW YORK DAILY NEWS
SKÓSVEINARNIR 2D 4, 6
SKÓSVEINARNIR 3D 4
MINIONS - ENS TAL 2D 6, 8, 10
TERMINATOR GENISYS 10:35
TED 2 8
JURASSIC WORLD 2D 8, 10:20
INSIDE OUT 2D - ÍSL TAL 5
SÝND í
2D OG 3D
EIN STÆRSTA FJÖLSKYLDUMYND ÁRSINS!
SÝND MEÐ
ÍSL OG ENS TALI
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
1
-3
5
F
C
1
7
5
1
-3
4
C
0
1
7
5
1
-3
3
8
4
1
7
5
1
-3
2
4
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
3
2
s
_
1
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K