Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Page 7
Fréttir
H
u
g
sa
s
é
r!
Jafnrettisthing_3x39.indd 1 9/1/09 14:24:54
Guðmundur G. Gunnarsson, bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisfélagsins á
Álftanesi, spyr þeirrar spurningar á
heimasíðu félagsins, hvort félagið
eigi lengur samleið með Sjálfstæðis-
flokknum í þeim hremmingum sem
ganga yfir þjóðina um þessar mundir.
„Sú spurning hlýtur að leita á okk-
ur félaga í Sjálfstæðisfélagi Álftaness
hvort hagsmunir okkar fari saman
með Sjálfstæðisflokknum um þessar
mundir,“ skrifar Guðmundur. Hann
segir að ástæður þessara hugrenn-
inga sinna séu meðal annars ástandið
í efnahagsmálum þjóðarinnar og um-
ræðan um ESB. Hann segir að
svo virðist vera sem
raunveru-
lega sé verið að reyna að koma því inn
hjá almenningi að Evrópusambands-
umræða og aðild að því sé einhver
lausn á vanda þjóðarinnar núna. Svo
sé hins vegar alls ekki.
„Ekki verður séð að á næstu miss-
erum verði búið að skipta út krónunni
fyrir evruna. Ekki verður heldur séð að
við myndum renna átakalaust í eina
sæng með Evrópuþjóðum í ESB. Séu
einhverjar töfralausnir til í skúffum, af
hverju þá ekki alveg eins að ræða það
að taka upp dollar í stað aumrar krón-
unnar?“
Oddviti sjálfstæðismanna á Álftanesi hugsi:
Efast um flokkinn
Engin töfralausn „Þjóðin er
afvegaleidd með umræðuflækju
um ESB,“ segir Guðmundur.
Ísfirðingur á þrítugsaldri hefur húðflúrað börn undir lögaldri án samþykkis foreldra:
Húðflúraði hakakross á ungling
ig fram að ekki sé ljóst hvernig við-
skiptavinir Klæðningar muni taka
því að JBB kaupi stóran hlut í fyrir-
tækinu og að líklegt sé að „allnokkur
viðskipti muni tapast“. Þess vegna er
komist að þeirri niðurstöðu í minn-
isskjalinu að það muni „styrkja við-
skiptin“ að Gunnar verði áfram að
störfum hjá Klæðningu þó að hann
selji eignarhlut sinn og láti af störf-
um sem framkvæmdastjóri.
Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Sam-
fylkingarinnar í Kópavogi, segir að
Gunnar Birgisson hafi staðfastlega
lýst því yfir að hann hafi ekki unn-
ið hjá Klæðningu eftir að hann seldi
hlut sinn. „Þegar Gunnar átti hlut
í Klæðningu fyrir 2003, og málefni
fyrirtækisins voru tekin fyrir í bæj-
arráði, vék hann alltaf af fundi sem
tengdur aðili. Eftir að Gunnar seldi
hlut sinn í fyrirtækinu hætti hann því
vegna þess að hann taldi sig geta tek-
ið þátt í afgreiðslu mála tengdum fyr-
irtækinu eins og hver annar því fyrir-
tækið kæmi honum ekki við lengur,“
segir Flosi.
Hreinn neitar að tjá sig
Hreinn Jónasson segist, aðspurður
um fyrir hvaða eiganda Klæðning-
ar ehf. hann hafi setið ársfundinn
árið 2005, ekki hafa áhuga á að ræða
málið við blaðamann. „Ég er löngu
hættur hjá Klæðningu. Ég hef eng-
an áhuga á að ræða þetta. Takk fyrir,“
segir Hreinn.
Hreinn er vinur Gunnar Birgis-
sonar og hefur meðal annars unn-
ið fyrir hann í kosningum. Í grein í
Mannlífi frá árinu 2007 er sagt að
Hreinn hafi verið notaður sem lepp-
ur við eigendaskiptin í fyrirtækinu
og hann hafi verið sagður í hópi eig-
enda fyrirtækisins og skráður sem
stjórnarmeðlimur. Stuttu eftir eig-
endaskiptin árið 2003 hætti Hreinn
sem framkvæmdastjóri Klæðningar
og Sigþór Ari Sigþórsson var ráðinn
í hans stað.
Ber fyrir sig bankaleynd
Halldór Þorleifs Stefánsson, starfs-
maður Kaupþings banka í Lúxem-
borg sem skrifaði undir skjalið þar
sem Hreini Jónassyni er veitt um-
boð til að fara með eignarhlutinn
í Klæðningu, vill ekki gefa upp fyr-
ir hönd hvaða manna Hreini var
veitt umboðið til að fara með eign-
arhlutinn og ber fyrir sig banka-
leynd. „Ég bara má ekki svara því
vegna bankaleyndar. Ég hef ekkert
um þetta að segja. Ég get því mið-
ur ekki hjálpað þér,“ segir Halldór.
Hann segir að umboðið til Hreins
hafi verið veitt í nafni „okkar við-
skiptavinar“.
LEYNIMAKK Í KÓPAVOGI
Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópa-
vogs, seldi hlut sinn í verktakafyrirtæk-
inu Klæðningu árið 2003, en í kjölfarið
varð til leynihlutur í Klæðningu sem
Kaupþing í Lúxemborg sá um. Verk-
takafyrirtækið hefur unnið mikið fyrir
Kópavogsbæ. Minnisblöð frá Klæðningu
benda til að Gunnar Birgisson hafi unn-
ið hjá fyrirtækinu eftir að hann seldi
hlut sinn í því. Starfsmaður Kaupþings
vill ekki segja hver átti hlutinn.