Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2009, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2009, Síða 3
Fimmtudagur 15. janúar 2009 3Fréttir Ögurstund flokksins Flokkur á tímamótum Á landsfundi Sjálfstæðisflokks verður skorið úr um afstöðu til umsóknar að ESB. an Sjálfstæðisflokksins í gær treysti sér til þess að fullyrða að nú þegar væri meirihluti fyrir því á landsfund flokksins í lok mánaðarins að sækja um aðild og bera niðurstöðuna undir atkvæði þjóðarinnar. Gróflega er um að ræða þrjá hópa eins og Þorgerð- ur Katrín Gunnarsdóttir hefur bent á; andstæðingar, aðildarsinnar og þeir sem ekki hafa gert upp hug sinn, en það er væntanlega sá hópur sem ræður úrslitum á landsfundinum. Athyglisvert er að fylgi við þá hug- mynd að leggja það í atkvæði þjóð- arinnar hvort sækja beri um aðild að ESB, fær lítinn hljómgrunn á fundum Evrópunefndar flokksins að undan- förnu. Þannig er ljóst hugmyndin um að kjósa um hvort eigi að kjósa um aðild er í þann veginn að syngja sitt síðasta. Að sama skapi skerpast lín- urnar milli einskonar þjóðernissinna eða heimastjórnarmanna og hinna sem telja að skera verði á ESB-hnút- inn í eitt skipti fyrir öll með aðildar- viðræðum. Ragnheiður E. Árnadótt- ir er meðal þingmanna flokksins sem var andvíg ESB-aðild. Hún kveðst enn hafa efasemdir. „En ég hef skipt um skoðun varðandi aðildarumsókn og treysti þjóðinni til þess að afgreiða málið í samningaviðræðum og þjóð- aratkvæðagreiðslu.“ Undir þetta tekur Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, en tekur þó fram að málið sé snúið og hún hafi sínar efasemdir. „Við eigum að þola samningaviðræður. Ef þær skila ekki fullum yfirráðum yfir auð- lindunum er sjálfhætt og auðvelt er að setja málið með þeim hætti í þjóð- aratkvæðagreiðslu.“ Ásta, líkt og fleiri þingmenn flokksins, telja ekki leng- ur fýsilegt að halda sérstaka þjóðar- atkvæðagreiðslu um það hvort sækja eigi um aðild. DV kannaði hug þingmanna til ESB-málsins um miðjan desember síðastliðinn. Myndin hefur nú skýrst enn, þar sem afstaða nær allra þing- manna er nú kunn. Í rauninni eru aðeins 3 til 4 þingmenn af 25 alfarið á móti aðildarumsókn og telja ekki þörf á þjóðaratkvæðagreiðslu. Engu að síður hefur stór hópur þingmanna nokkrar efasemdir þótt þeir fallist á að útkljá megi málið í viðræðum og síðan þjóðaratkvæðagreiðslu. Hreppsnefnd Rangárþings Ytra samþykkti að greiða kennslu- kostnað vegna tónlistarnáms þriggja dætra Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra við Suzukitón- listarskólann í Reykjavík fyrir þetta skólaár. Þetta kemur fram í fund- argerð hreppsnefndar frá 5. júní á síðasta ári. Þá samþykkti hrepps- nefndin einnig beiðni um náms- vist í Skóla Ísaks Jónssonar, þar sem samþykkt var að hreppurinn greiddi viðmiðunarkostnað vegna skólagöngu yngstu dóttur Árna. Þetta kemur fram í fundargerð hreppsnefndar frá 11. september síðastliðnum. Árni M. Mathiesen festi kaup á bænum Kirkjuhvoli í Þykkvabæ árið 2007 og flutti lögheimili sitt þangað frá Hafnarfirði. Í síðustu alþingiskosningum bauð Árni sig í fyrsta skipti fram í Suðurkjör- dæmi, en hafði áður verið þing- maður í Suðvestur- og Reykjavík- urkjördæmum frá 1991. Þrátt fyrir að hafa keypt Kirkjuhvol og skráð lögheimili sitt þar hefur fjölskyld- an aðsetur á höfuðborgarsvæðinu og hefur aldrei haft aðsetur í sveit- arfélaginu sem greiðir fyrir tónlist- arnámið. Pólverjar leigðu af Árna Þegar blaðamaður DV heimsótti hús Árna á Kirkjuhvoli í sum- ar kom í ljós að tveir Pólverj- ar bjuggu í húsi hans. Einn sveitunga hans komst svo að orði að menn hefðu aldrei séð Árna í sveit- inni. Þingmenn sem halda heimili á lands- byggðinni eiga rétt á því að þiggja greiðsl- ur vegna þess, en Árni hefur ekki þeg- ið slíkar greiðsl- ur. Fram kom í fjölmiðlum í aðdraganda síðustu al- þingiskosn- inga, skömmu eftir að Árni flutti lögheim- ili sitt að Kirkju- hvoli, að hann ætlaði að vera með annan fótinn í sveitinni. Í samtali við DV, í júní á síðasta ári, viðurkenndi Árni að flutning- ur lögheimilis hans hefði verið af pólitískum ástæðum. Eins og DV greindi frá í nóv- ember byggir fjölskyldan sér nú glæsilegt íbúðarhús að Þórunúpi, svo búast má við að ráðherrann muni dvelja meira í kjördæminu í framtíðinni. Ekki krafa um aðsetur Þorgils Torfi Jónsson, formaður hreppsnefndar Rangárþings Ytra, bendir á að greiðslur sveitarfé- lagsins vegna námskostnaðar séu samkvæmt viðmiðum sem sveit- arfélögin hafa sín á milli. „Þegar börn eru í skóla annars staðar en í lögheim- ilissveitarfélagi borgar sveitarfé- lagið fyrir það. Þetta gerum við í miklum mæli, bæði fyrir okk- ar íbúa ann- ars staðar og eins þiggjum við greiðslur vegna barna sem eru í skóla hjá okkur,“ segir hann. Samkvæmt sam- komulagi sveitar- félaganna er ekki gerð krafa um að fjölskylda barna sem greitt er fyrir hafi aðsetur í sveitarfélaginu, en eins og fram hefur komið hefur Árni aldrei haft aðsetur í Rangárþingi Ytra. Einungis er gerð krafa um að lög- heimili sé í viðkomandi sveitarfé- lagi, enda er tvöföld búseta heimil samkvæmt lögum. „Þetta fer eftir því hvort það hentar að hafa börn í námi í lög- heimilissveitarfélaginu eða í að- seturssveitarfélaginu,“ segir Þor- gils Torfi. Aðspurður hvort greiðslur vegna tónlist- arnáms séu einnig hugsaðar til að íbú- ar í sveitarfélaginu geti fengið tónlist- arkennslu sem er ekki í boði í lög- heimilissveitar- félaginu, játar Þorgils Torfi því. „En þetta er fyrst og fremst miðað við hefðbundna kennslu, en ekki sérhæfða tónlist- arkennslu,“ segir hann. Rangárþing Ytra greiðir fyrir tónlistarnám þriggja dætra Árna Mathiesen fjármálaráðherra. Námið sækja þær í Reykjavík, en ráðherrann og fjölskylda hans hafa aðsetur á höfuðborgar- svæðinu, þó skráð lögheimili sé á Kirkjuhvoli í Þykkvabæ. HrEPPurinn BorgAr tÓnlistArnÁM valGEIR ÖRN RaGNaRSSON blaðamaður skrifar: valur@dv.is ... hefur Árni aldrei haft aðsetur í Rangárþingi Ytra. Einungis er gerð krafa um að lögheimili sé í viðkomandi sveitarfélagi. Árni Mathiesen dætur fjármálaráðherra hafa alltaf búið á höfuðborgarsvæðinu, en rangárþing Ytra greiðir engu að síður fyrir tónlistarnám þeirra. lögheimili Árni mathiesen fjármálaráðherra er með lögheimili í rangárþingi Ytra, en hefur aldrei búið þar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.