Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2009, Qupperneq 9
Fimmtudagur 15. janúar 2009 9Fréttir
MILLJÓNIR Í DAGPENINGA
Tugir þúsunda fyrir dagsferð Sautján
þingmenn hafa farið til útlanda á vegum
þingsins eftir bankahrunið. Á tímabilinu
hefur minnst verið greiddar 43 þúsund
krónur fyrir dagsferð.
Mynd Karl PeTersson
heldur ekkert bruðl og vitleysu,“ segir
Kristján.
Honum finnst upphæð dagpen-
inga til þingmanna úr miklum takti við
íslenskan raunveruleika eins og hann
blasir við í dag. „Ég held að það hljóti
að þurfa að skoða þetta með sömu
gleraugum og niðurskurð á öðrum
sviðum. Það er búið að ofbjóða Íslend-
ingum endalaust með svona vinnu-
brögðum. Eftir því sem meira er skoð-
að ofan í þessa potta og ormagryfjur
koma upp meiri leiðindi,“ segir hann.
Tvær utanlandsferðir
Til viðbótar fyrrnefndum ferðum fóru
tveir þingmenn á þing Alþjóðaþing-
mannasambandsins í Genf 13. til 15.
október, sjö þingmenn sóttu þing
Norðurlandaráðs í Helsinki 27. til 29.
október, fimm þingmenn voru í Brus-
sel 3. til 4. nóvember á fundi þing-
mannanefnda EFTA og EES og loks fór
fyrsti varaforseti Alþingis á fund for-
seta þjóðþinga evrópskra smáríkja í
Liechtenstein 27. til 29. nóvember.
Þrír þingmenn fóru í tvær ferðir á
tímabilinu, þau Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir og Katrín Júlíusdóttir,
þingmenn Samfylkingarinnar, og Árni
Þór Sigurðsson, þingmaður vinstri
grænna.
Bakka hver annan upp
Þingmenn fá 50 þúsund
krónur á dag í dagpeninga
frá ríkinu, ef þeir ferðast.
Hver fjögurra manna fjölskylda tekur á sig rúmlega 24 milljón-
ir króna vegna skulda ríkissjóðs. Fyrir þá upphæð má kaupa
fjögurra herbergja íbúð í Reykjavík. Í janúar á síðasta ári voru
skuldir ríkissjóðs 302 milljarðar en ári síðar 920 milljarðar.
Þær gætu farið upp í 1.950 milljarða króna.
SEX MILLJÓNIR
Á MANNSbARN
Skuldir og skuldbindingar ríkis-
sjóðs stefna í að verða það miklar
að upphæðin dygði til að kaupa 80
til 100 fermetra fjögurra herbergja
íbúð á höfuðborgarsvæðinu fyrir
hverja einustu fjögurra manna fjöl-
skyldu landsins. Ekki vilja allir búa
á höfuðborgarsvæðinu. Því væri til
dæmis hægt að kaupa 100 fermetra
íbúð á Ísafirði og tvo jeppa að auki
fyrir hlutdeild hverrar fjölskyldu í
skuldum ríkisins.
Skuldir ríkissjóðs nema nú þeg-
ar rúmum 900 milljörðum króna.
Ofan á þetta má búast við að bæt-
ist 500 milljarðar króna vegna lána-
samninga við Alþjóðagjaldeyr-
issjóðinn og ýmis ríki í tengslum
við það. Áætlað hefur verið að 150
milljarðar króna falli á ríkissjóð
vegna Icesave og endurfjármögn-
unarþörf bankanna hefur verið
áætluð 385 milljarðar króna. Þetta
þýðir að nú stefnir í að skuldir og
fjárhagslegar skuldbindingar rík-
issjóðs verði fljótlega orðnar um
tvö þúsund milljarðar
króna.
Mjög misjafnt er hvernig þessi
lán eru nýtt. Þannig er hugmyndin
á bak við lánið frá Alþjóðagjaldeyr-
issjóðnum og tengd lán sú að pen-
ingurinn verði nýttur í varasjóð en
ekki eytt. Það þýðir að hægt væri að
endurgreiða lánið með sama fé og
tekið er að láni. Á móti kemur að
vaxtagreiðslur af 500 milljörðum
króna geta verið verulegar.
Gríðarleg hækkun
Skuldir ríkissjóðs hafa hækkað
verulega á skömmum tíma. Í jan-
úar í fyrra námu skuldir ríkissjóðs
302 milljörðum króna og skiptust
innlendar og erlendar skuldir þá
því sem næst til helminga. Nú eru
skuldir ríkissjóðs komnar í 920 millj-
arða og fyrirsjáanlegt að þær
hækki í um tvö þúsund
millj-
arða
króna. Það þýðir að skuldir og skuld-
bindingar ríkissjóðs hafa nær þre-
faldast á rúmlega einu ári og stefna
í að rúmlega sexfaldast, sé miðað
við janúar á síðasta ári. Langstærst-
ur hluti skuldaaukningarinnar er
tilkominn vegna bankahrunsins og
tilrauna til að vernda krónuna með
erlendri lántöku.
Jeppar, skjáir og sólarferðir
Þessar upphæðir jafngilda því að
hvert einasta mannsbarn á Íslandi
þurfi að greiða 6,1 milljón króna
vegna skuldasöfnunar ríkisins.
Hver einasti Íslendingur, sama á
hvaða aldri hann er, gæti fest kaup
á 6,1 milljónar króna 2008 árgerð
af Toyota Landcruiser-jeppa. Fyr-
ir sömu upphæð gæti hver einasti
Íslendingur keypt 60 flugfarmiða
fram og til baka í sólina á Flórída.
Ef hugurinn stefnir ekki í sólina, þá
gæti hver Íslendingur fest kaup á
tæplega 40 flatskjársjónvörpum , á
meðalverðinu 150 þúsund krónur.
Skuldir ríkissjóðs jafngilda því
að hver fjögurra manna fjölskylda
á landinu skuldi rúmlega 24 millj-
ónir króna, sem dugar til að kaupa
þriggja til fjögurra herbergja íbúð
í Reykjavík. Fyrir 24 milljónir gæti
fjögurra manna fjölskylda fest
kaup á 100 fermetra íbúð á Ísafirði
og keypt tvo Landcruiser-jeppa að
auki.
skuldir ríkissjóðs
janúar 2008 302 milljarðar
janúar 2009 920 milljarðar
Horfur 1.950 milljarðar
miðað er við skuldastöðu í
janúar í fyrra, í janúar núna og
með hliðsjón af fyrirsjáanlegum
lántökum.
valGeIr Örn raGnarsson oG
BrynJólfur Þór GuðMundsson
blaðamenn skrifa: valgeir@dv.is og brynjolfur@dv.is
sextíu sinnum í sólina Fyrir 6,1
milljón króna væri hægt að kaupa
60 flugmiða fram og til baka til
Orlando á Flórída.
farmur af flatskjám Hver einasti Íslendingur gæti
fest kaup á tæplega 40 flatskjám fyrir sömu upphæð og
skattgreiðendur þurfa að taka á sig.
allir á jeppa Hver Íslending-
ur gæti keypt sér 6 milljóna
króna jeppa.