Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2009, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2009, Side 10
Fimmtudagur 15. janúar 200910 Neytendur ALLT Í KALDAKOLI EFTIR „GÓÐÆRIГ Útgjöld meðalfjölskyldu hafa hækk- að mjög mikið frá því hið meinta góðæri stóð sem hæst. Eins og DV hefur áður sagt frá munu neytend- ur væntanlega hugsa með hrolli til ársins sem nú er liðið. Ársins 2008 verður líklega minnst fyrir miklar hækkanir á öllum sköpuðum hlut- um. Vísitala neysluverðs hækkaði, samkvæmt vef Hagstofunnar, um rúm 18 prósent. Það þýðir að verð- lag á vörum og þjónustu í landinu hefur á einu ári hækkað um nærri fimmtung. Matur hækkað um fjórðung Á fyrriparti ársins 2007 stóð kaup- æði Íslendinga sem hæst. Fellihýsi, jeppar og flatskjáir seldust sem aldrei fyrr. Fólk sá aðeins bjarta tíma framundan og eyddi um efni fram. Í því ljósi er ágætt að skoða hvað hef- ur breyst á rétt um tveimur árum. Eins og áður sagði hefur vísitala neysluverðs hækkað undanfarin misseri. Vísitalan hækkaði um 18 prósent á árinu 2008 en frá janúar 2007 hefur vísitalan hækkað um 25 prósent. Það þýðir að matvara, fatnaður og þjónusta hefur að jafn- aði hækkað um fjórðung á tveim- ur árum. Ef meðal Jón, með konu og barn, varði 2.500 krónum í mat á dag í ársbyrjun 2007, eða 77.500 krónum á mánuði, þarf hann nú að punga út um 97.000 þúsund krón- um fyrir sama magn. Klipping fyrir 50 þúsund Ef Jón, konan hans og barn fara hvert um sig fjórum sinnum í klipp- ingu á ári, þurftu þau að punga út nærri 36 þúsund krónum árið 2007 fyrir að skerða hár sitt. Sú tala mið- ast við verðlagningu á klippingu samkvæmt Hagstofu Íslands. Þessi kostnaður hefur aukist mikið á tveimur árum. Á núverandi verðlagi þurfa Jón og frú að leggja út 50 þús- und krónur fyrir jafnmargar ferð- ir. Kostnaðurinn hefur aukist um nærri 40 prósent. 80% hækkun myntkörfulána En þar með er ekki öll sagan sögð. Meðal Jón tók árið 2007 3 milljóna króna myntkörfulán, fyrir drauma- bílnum. Hann var ánægður með þá ákvörðun þar til í fyrravor. Síðan þá hafa myntkörfulán, sem tekin voru í japönskum jenum og svissneskum frönkum, hækkað um meira en 80 prósent, vegna gengishruns krón- unnar, sem hann sá ekki fyrir frek- ar en þjónustufulltrúinn í bankan- um. Hann skuldar því núna allt að 5,4 milljónum króna fyrir bílinn, sem hefur fallið heilmikið í verði á þess- um tveimur árum. Eins og DV sagði frá fyrir áramót þarf sá sem á 2 milljóna króna bíl, sem fjármagnaður er með bílaláni að miklu eða öllu leyti, að borga þú um 1,8 milljónir á ári fyrir að reka og eiga bílinn. Það eru rúmlega 4.800 krónur á dag en rekstrarkostnaður bíla hefur aukist um 17 prósent frá því í janúar í fyrra, samkvæmt tölum frá FÍB. Verðfall á íbúðum Ekki er ólíklegt að meðal Jón hafi, þegar góðærið stóð sem hæst, tekið lán fyrir íbúð. Hann fann íbúð með góðu útsýni sem kostaði 22,5 millj- ónir króna. Hann átti smá pening og því tók hann 18 milljóna króna lán hjá Íbúðalánasjóði. Þetta var í ársbyrjun 2007 en vextirnir eru 5,4 prósent. Nú, tveimur árum síðar, skuldar hann 3,3 milljónum bet- ur. Þetta miðast við 5 prósent verð- bólgu árið 2007 og 13 prósent verð- bólgu á nýliðnu ári. Lánið stendur nú í 21,3 milljónum króna. Ekki eru hremmingar hins dæmigerða Íslendings upp tald- ar. Verðfall á húsnæðismarkaði er þegar hafið. Markaðsvirði hús- næðis sem í fyrra var 22,5 milljónir mun eftir ár standa í 19 milljónum króna. Innan skamms munu skuld- irnar í íbúðinni standa vel umfram það sem fæst fyrir húsnæðið. Takist Jóni að selja íbúðina sína, til dæmis eftir ár, munu tvær til þrjár milljónir standa eftir, þegar hann hefur greitt það sem hann fékk fyrir íbúðina til Íbúðalánasjóðs. Dýrara að reykja Ef meðal Jón reykir einn pakka á dag eyddi hann 219 þúsund krón- um á ári í sígarettur, samkvæmt Hagstofunni. Í dag kostar Win- ston-sígarettupakkinn 671 krónu að jafnaði og hefur hækkað um 72 krónur á tveimur árum. Ef sígarett- urnar munu ekki hækka meira, og Jón hættir ekki að reykja, mun hann eyða 250 þúsund krónum á þessu ári í tóbak, eða 31 þúsund krónum meira en fyrir tveimur árum. Launin hækka aðeins Fátt er svo með öllu illt að ekki boði eitthvað gott. Hagstofa Íslands reiknar út vísitölu launa. Meðal laun hækkuðu frá janúar 2007 til nóvem- ber 2008 um nærri 13 prósent. Í jan- úar 2007 voru meðal mánaðarlaun 330 þúsund krónur. Í lok ársins 2008 voru þau 372 þúsund krónur. Laun hafa því hækkað nokkuð en reynd- ar er útlit fyrir að þau muni lækka á komandi mánuðum og misserum. Yfirdráttarlán aldrei meiri Íslendingar eru á meðal skuldugustu þjóða heimsins. Seðlabanki Íslands heldur utan um yfirdráttarlán heim- ilanna. Í janúar 2007 skulduðu heim- ilin 71.993.000.000, eða nærri 72 milljarða króna í yfirdráttarlán. Sam- kvæmt upplýsingum frá Hagstofunni má gróflega áætla að á hverju heim- ili búi 2,4 að meðaltali. Hvert slíkt heimili skuldaði því um 560 þúsund krónur að jafnaði í ársbyrjun 2007. Yfirdráttarlán heimilanna hafa hins vegar aldrei verið meiri en akkúrat nú. Nærri lætur að hvert íslenskt heimili skuldi 600 þúsund krónur í yfirdrátt. Af því greiðir fólk 150 þúsund krónur í vexti á ári, eða 12.500 krónur á mánuði. BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is umsjón: Baldur guðmundsson, baldur@dv.is / neytendur@dv.is Frá því „góðærið“ stóð sem hæst, fyrripart árs 2007, hafa verð- lag og lán hækkað langt umfram tekjuaukningu. Íbúða- og myntkörfulán hafa snarhækkað og yfirdráttarlán heimilanna hafa aldrei verið meiri. Nærri lætur að hvert heimili hafi yfir- drátt upp á 600 þúsund krónur. DV tók saman hvernig kjör meðal Jóns hafa versnað á undanförnum tveimur árum. Nærri lætur að hvert íslenskt heimili skuldi 600 þúsund krónur í yfirdrátt. Rekstur bíls +17% Klipping +40 Virði íbúðar -15% Íbúðarlán +18% Kostnaður við reykingar +14% Meðal yfirdráttarlán +7%Myntkörfulán +80% Laun -13% TÍMabiLið 2007 – 2009

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.