Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2009, Blaðsíða 2
fimmtudagur 5. mars 20092 Fréttir
Jóhann hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
„Ég ræddi við Sigurjón Árnason,
bankastjóra Landsbankans, seint
um kvöldið og síðast klukkan þrjú
um nóttina,“ segir Tryggvi Þór Her-
bertsson hagfræðingur um sam-
skipti sín við Landsbankamenn að-
faranótt 6. október síðastliðins áður
en Landsbankinn var yfirtekinn af
ríkinu og Bretar beittu hryðjuverka-
lögum gegn Íslendingum.
Tryggvi var á þessum tíma efna-
hagsráðgjafi Geirs H. Haarde, þá-
verandi forsætisráðherra, og hafði
alla helgina unnið með ráðherrum,
bankamönnum og embættismönn-
um að því að ráða fram úr aðsteðj-
andi vanda Landsbankans og Kaup-
þings. Á þessum tíma var ríkið búið
að taka yfir 75 prósent Glitnis sem
margir telja að hafi orsakað keðju-
verkun. Sjálfur var Tryggvi ósam-
mála þeirri aðgerð eins og hann hef-
ur áður sagt opinberlega.
sagði frá daginn eftir
Tryggvi segir að Sigurjón hafi lýst því
að Landsbankamenn væru að vinna
að því að fá 200 milljóna punda lán
hjá Seðlabankanum. „Ég skildi Sigur-
jón þannig að þetta væru samskipti
á milli Landsbankans og Seðlabank-
ans og þetta væri viðleitni þeirra
til að fá 200 milljóna punda lán hjá
Seðlabankanum til þess að tryggja
að þeir fengju hraða afgreiðslu Ic-
esave-reikninganna yfir í breska lög-
sögu. Þetta var ekki þannig að verið
væri að biðja mig um eitt eða neitt
heldur halda okkur upplýstum. Eins
og Sigurjón sagði mér frá þessu var
frestur gefinn fyrst til klukkan sex
um morguninn.“
Tryggvi segir að Geir Haarde hafi
ekki verið kunnugt um þessi sam-
skipti eða um þá afgreiðslu sem
Landsbankamenn virtust hafa sam-
ið um við breska fjármálaeftirlit-
ið um að flytja Icesave-reikningana
inn í breska lögsögu á fimm virkum
dögum. „Ég sagði honum frá þessu
daginn eftir.“
Seðlabankinn lánaði aldrei 200
milljónir punda, eða jafnvirði um
35 milljarða króna, í þær trygging-
ar sem krafist var af hálfu Breta og
Landsbankinn gat ekki lagt út fyrir.
Beðið var fram eftir morgni 6. októb-
er og ítrekað leitað eftir svari Seðla-
bankans. Í fyrstu bárust engin svör
en laust upp úr hádegi þennan dag
barst afsvar; ekkert yrði af lánveit-
ingu af hálfu Seðlabankans.
Málin skýrast
Hvorki breska fjármálaráðuneyt-
ið né breska fjármálaeftirlitið eiga
nein skjöl í sínum fórum sem gefa til
kynna að samningar af þessum toga
hafi verið í undirbúningi eins og
fram kom í Kastljósþætti síðastliðið
mánudagskvöld.
DV spurði breska fjármáleftirlitið
(FSA) í vikunni um samskipti þess
eða Hector Sants, forstjóra FSA, við
forsvarsmenn Landsbankans eða
talsmenn stjórnvalda sunnudaginn
5. október síðastliðinn. Beðið var um
viðtal við Sants eða skrifleg svör um
samskiptin við Björgólf Thor Björg-
ólfsson þennan dag.
Kirsty Clay hjá FSA svaraði
spurningunni á þann veg að ekki
væri venja að ræða málefni ein-
stakra aðila sem væru undir eftirliti
FSA „þannig að okkur er ekki kleift
að tjá okkur um nein samtöl sem við
eigum“.
„Hið rétta er að svör FSA og
breska fjármálaráðuneytisins segja
ekkert til um hvort orð mín standist
eður ei,“ segir í yfirlýsingu Björgólfs
Thors til Kastljóssmanna.
Fréttavefurinn visir.is kvaðst í gær
hafa fengið það staðfest hjá breska
fjármálaeftirlitinu að viðræður
hefðu raunverulega átt sér stað milli
FSA og Landsbankans um að koma
Icesave-reikningunum í breska lög-
sögu umrædda helgi í byrjun októb-
er. FSA segir aftur á móti að þessar
viðræður hafi ekki leitt til neins sam-
komulags og vill að öðru leyti ekki
tjá sig um málið með sömu rökum
og Clay beitir.
kastljósi beint að Icesave á ný
Geir H. Haarde, fyrrverandi for-
sætisráðherra, neitaði því afdrátt-
arlaust með skriflegu svari á Al-
þingi 22. desember að hann hefði
vitað um kúvendingu breskra yfir-
valda og tilboð um skyndilausn á
Icesave-málinu. Siv Friðleifsdóttir,
Framsóknarflokki, spurði Geir eft-
irfarandi spurningar: „Hafði ráð-
herra, fyrir yfirtöku íslenska ríkis-
ins á Landsbanka Íslands, vitneskju
um tilboð breska fjármálaeftirlits-
ins (FSA) um að gegn 200 milljóna
punda fyrirgreiðslu væri FSA tilbú-
ið að færa reikninga Icesave yfir í
breska lögsögu?“
Skriflegt svar Geirs 22. desember
var stutt: „Nei.“
Siv spurði einnig hvort embættis-
menn eða ráðgjafar ráðherra hefðu
haft slíka vitneskju. Skriflegt svar
Geirs var: „Ekki svo ráðherra hafi
verið kunnugt.“
Þetta virðist stangast á við það
að Tryggvi Þór Herbertsson efna-
hagsráðgjafi kveðst hafa sagt Geir
frá samskiptum sínum fram á nótt
við Sigurjón Árnason, bankastjóra
Landsbankans, mánudaginn 6. okt-
óber síðastliðinn.
hverju leynir Fjármálaeftirlit-
ið?
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi
viðskiptaráðherra, hefur með skrif-
legu svari við spurningum Sivjar
vitnað um að sunnudaginn 5. októ-
ber hafi Fjármálaeftirlitið verið í
sambandi við breska fjármálaeftirlit-
ið. Björgólfur Thor sagði í Kompás-
þætti 27. október að svo mikið hefði
legið við að Hector Sants, forstjóri
FSA, hefði verið kallaður út þennan
sunnudag vegna málsins.
Siv spurði Björgvin einnig eft-
irfarandi spurningar: „Hafði Fjár-
málaeftirlitið, eða forstjóri þess, fyrir
yfirtöku íslenska ríkisins á Lands-
banka Íslands, vitneskju um fram-
angreint tilboð FSA...?“
Svar Björgvins var á þessa leið:
„Leitað hefur verið eftir afstöðu
Fjármálaeftirlitsins vegna spurn-
ingarinnar. Í svari stofnunarinn-
ar kemur fram að Fjármálaeftirlit-
ið geti ekki tjáð sig opinberlega um
efni samskipta við aðra eftirlitsaðila
þar sem það er bundið trúnaði um
slíkt,“ og er vísað til lagaákvæða í því
sambandi.
Torkennilegur
ókunnugleiki ráðherra
Í fréttum Stöðvar 2 27. október síðast-
liðinn var greint frá málinu í tengsl-
um við umrætt viðtal við Björgólf
Thor í Kompásþættinum: „Forsæt-
isráðherra og Seðlabankinn segjast
ekki hafa vitað af tilboði breskra fjár-
málayfirvalda um að færa Icesave-
reikninga undir breska ábyrgð með
hraði. Forsætisráðherra segist ekki
hafa vitað um tvö hundruð milljarða
punda lánsósk Landsbankans því til
tryggingar. Björgólfur Thor Björg-
ólfsson segir bæði forsætisráðherra
og Seðlabankann hafa vitað af þessu
og fara því með rangt mál,“ segir í
umræddri frétt.
Svör Árna Mathiesen, þáverandi
fjármálaráðherra, við spurningum
Sivjar voru á sömu lund: „Hafi ver-
ið um einhverjar aðrar 200 millj-
óna punda beiðnir að ræða veit ég
ekki um þær en veit ekki til þess að
tenging hafi verið á milli þeirrar 200
milljóna punda beiðni sem ég var að
vísa til og þess að hægt væri að flýta
tilflutningi á Icesave.“
Ljóst er nú að Björgólfur Thor og
Landsbankamenn áttu í viðræðum
við Hector Sants og FSA. Í því ljósi
verður ókunnugleiki íslenskra ráða-
manna æ torkennilegri.
Var Landsbankinn í ónáð
hjá stjórnvöldum?
Ingimundur Friðriksson, fyrrver-
andi seðlabankastjóri, birti grein
um aðdraganda bankahrunsins á
vef Seðlabankans 6. febrúar síðast-
liðinn. Hann minnist ekkert á 200
milljóna punda lánsbeiðni Lands-
bankans en segir: „Á þessum dög-
um var jafnframt mikið útstreymi af
innlánsreikningum Landsbankans
í Lundúnum auk þess sem breska
fjármálaeftirlitið herti jafnt og þétt
kröfur sínar á hendur bankanum.
Þar kom að lausafjárvandi bankans
varð óviðráðanlegur sem kunnugt er
og augljóst að gjaldeyrisforða Seðla-
bankans yrði ekki vel varið ef á hann
yrði gengið til varnar Landsbankan-
um. Þar var einfaldlega um of stórar
fjárhæðir að tefla.“
Hvergi minnist Ingimundur á
viðræður við Hector Sants og FSA
um hraðvirka dótturfélagavæðingu
Icesave-reikninganna sem fram fóru
þessa helgi.
Ingimundur víkur hins vegar
orðum að stöðu Kaupþings á þess-
um tíma: „Þá stóð eftir Kaupþing af
stóru bönkunum. Talið var með hlið-
sjón af horfum um lausafjárstöðu
bankans að hann gæti staðið af sér
stórviðrin og meðal annars á grund-
velli þess og með samþykki ráðherra
veitti Seðlabankinn honum lán
gegn veði til fjögurra daga sem átti
að duga eins og þá horfði. Atburðir
í Lundúnum réðu því hins vegar að
þróunin varð önnur. Bresk yfirvöld
lokuðu dótturfyrirtæki Kaupþings
banka í Lundúnum.“
Athyglisvert er að Ingimundur
segir að lánið til Kaupþings hafi ver-
ið borið undir ríkisstjórnina og feng-
ið samþykki ráðherra. Þannig virð-
ist Seðlabankinn hafa á sjálfstæðan
hátt hafnað 200 milljóna punda
(jafnvirði um 35 milljarða króna)
lánsbeiðni Landsbankans en borið
500 milljóna evru lán til Kaupþings
(jafnvirði um 80 milljarða króna)
undir ríkisstjórnina og fengið sam-
þykki forsætisráðherra.
Fullljóst er að forsvarsmenn
Landsbankans voru þennan ör-
lagaríka sunnudag 5. október í sam-
skiptum við æðstráðendur Seðla-
bankans fram á nótt og fengu afsvar
frá bankanum á hádegi daginn eftir.
Til eru bréf sem færa sönnur á þetta.
Þannig benda gögn málsins til þess
að Landsbankinn og Kaupþing hafi
fengið mismunandi afgreiðslu; í til-
viki Kaupþings komu Seðlabank-
inn og forsætisráðherra að málinu
í það minnsta – í tilviki Landsbank-
ans kom aðeins Seðlabankinn að
málinu, enda hafa ráðherrar keppst
við að neita því skriflega á Alþingi að
hafa vitað um viðræðurnar við Hect-
or Sants og FSA um hraðvirku dótt-
urfélagavæðinguna vegna Icesa-
ve. Spurningar vakna um það hvort
Seðlabankinn hafi vísvitandi haldið
málinu leyndu fyrir ríkisstjórninni.
seðlabankinn sagði ósatt
Seðlabankinn sá ástæðu til að mót-
mæla yfirlýsingum Björgólfs Thors
með yfirlýsingu 27. október síðastlið-
inn. Þar er staðfest að mánudaginn
6. október hafi Landsbankinn beðið
um 200 miljónir punda vegna vand-
ans í Bretlandi: „Tilefni beiðninn-
ar í bréfi Landsbankans 6. október
var útstreymið af innlánsreikning-
um. Ekki var minnst á flýtiafgreiðslu
breska fjármálaeftirlitsins.
Af framangreindum ástæðum er
SÖGÐU ÓSATT UM ICESAVE
Svarta mánudaginn 6. október sagði efnahagsráðgjafi Geirs h.
haarde forsætisráðherra honum frá samskiptum þá um nóttina
við Landsbankamenn vegna möguleika á flýtimeðferð Icesave-
reikninganna inn í breska lögsögu. Geir hefur aftur á móti neit-
að því afdráttarlaust að hafa vitað nokkuð um málið. Breska
fjármálaeftirlitið hefur nú staðfest að viðræður um flýtimeferð
vegna Icesave-reikninganna fóru fram með þátttöku forstjóra
eftirlitsins.
seðlabankastjórinn og forsætisráðherrann davíð
Oddsson gaf til kynna í Kastljósviðtali að 400 til 800 milljónir
sterlingspunda hefðu runnið út úr Kaupþingi singer friedland-
er-bankanum dagana fyrir hrun bankans. sú hefði verið ástæða
þess að Bretar beittu hryðjuverkalögunum gegn Íslandi.
„Þú verður
að gera þér
ljóst að orðspor
þjóðar þinnar
bíður hræðilegan
hnekki.“