Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2009, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2009, Blaðsíða 21
Menningarverðlaun DV voru afhent í þrítugasta skipti í Iðnó í gær. Veitt voru verðlaun í átta mismunandi flokkum en alls voru fimm tilnefning- ar í hverjum þeirra. Formenn nefnd- anna afhentu verðlaunin átta en verð- launagripurinn var að þessu sinni Jónasinn sem Hulda Hákon hann- aði. Gripurinn var veittur árin áður en menningarverðlaunin lögðust af en sneri nú aftur. Jónasinn heitir í höfuð- ið á Jónasi Kristjánssyni, blaðamanni og fyrrverandi ritstjóra DV. Hljómsveitin Hjaltalín hreppti verðlaunin Val lesenda sem kosið var um á dv.is. Hjaltalín, sem átti eitt vin- sælasta lag ársins 2008 á Íslandi, sigr- aði í kosningunni nokkuð örugglega en næst á eftir komu Sinfóníuhljóm- sveit Íslands og kvikmyndahátíðin Skjaldborg. Þá afhenti Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, Manfreð Vil- hjálmssyni arkitekt heiðursverðlaun- in að þessu sinni. Manfreð er fæddur í Reykjavík árið 1928 og er einn virtasti og reynslumesti arkitekt okkar Íslend- inga. Að loknu stúdentsprófi frá MR árið 1949 hélt hann til náms við Chal- mers-tækniháskólann í Gautaborg í Svíþjóð og útskrifaðist þaðan sem arkitekt árið 1954. Manfreð hefur hannað margar þekktar byggingar hér heima og má þar til dæmis nefna Þjóðarbókhlöð- una, Skálholtsskóla, Árbæjarkirkju og margt fleira. Núna síðast hannaði hann Fuglasafn Sigurgeirs St. í Mý- vatnssveit. Hönnunin var tilnefnd í flokki byggingarlistar og Manfreð því enn að 81 árs gamall. Hann hef- ur tvisvar hreppt Menningarverðlaun DV í flokki byggingarlistar. Árið 1980 og árið 1988. asgeir@dv.is fimmtudagur 5. mars 2009 21Fókus Hafðu samband í síma 515-5555 eða sendu tölvupóst á askrift@dv.is - inn í hlýjuna Fáðu DV heim í áskrift Tveir fyrir einn tilboð! Þú prófar áskrift í tvo mánuði og færð 50% afslátt Þú færð DV sent heim 4 daga vikunnar. Þú færð netaðgang að dv.is FRÍTT og getur lesið blöðin þín hvar og hvenær sem er. ::: ::: ::: ::: Smáauglýsingasíminn er 515 5550 smaar@dv.is á f i m mt u d e g i Tónleikar í Borgarneskirkju Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson halda tónleika í Borgarneskirkju í kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 og miðaverð er 1.500 krónur. Á efnisskrá tónleik- anna eru ýmis þekkt lög af ferli Ellenar í bland við þjóð- lög, sálma og nýtt efni af væntanlegri plötu sem Ellen vinnur að um þessar mundir. ríður á vaðið Dr. Gunni mun ríða á vaðið í nýrri seríu Nýlistasafnsins sem kallast Sýna og sjá. Þar munu þekktir tón- listarmenn og spekúlantar koma saman einu sinni í viku næstu tvo mánuði og fjalla um sköpunarverk sín, hljómsveitir og óháðar útgáfur, hugsjónir og tónleikahald í kring- um 10. áratuginn. Sýna og sjá hefst klukkan 20.00 í kvöld en á næstu vikum munu meðal annars Maggi Strump, F.I.R.E. hópurinn, Arnar Eggert, Saktmóðígur, Yúkatan, Bag of Joys, Á Túr og fleiri sýna sig og fara yfir feril sinn. kardemommu- Bærinn selsT Bókin Fólk og ræningjar í Karde- mommubæ eftir Thorbjörn Egner er í efsta sæti metsölulista Eymundsson sem var gefinn út í gær. Það er greinilegt að fimmta uppsetningin á leikritinu er að skila sínu í bóksölunni. Næstu fjórar bækur sem á eftir koma eru allar í kilju en þær eru Sjötta skotmarkið eftir James Patterson, Lesarinn eftir Bernhard Schlink, Konur eftir Steinar Braga og Auðnin eftir Yrsu Sigurðardóttur. Menningarverðlaun DV voru afhent í 30. skipti í Iðnó í gær. Veitt voru verðlaun í átta flokkum auk þess sem Manfreð Vilhjálmsson arkitekt fékk heiðursverðlaun. Hljóm- sveitin Hjaltalín fékk verðlaunin Val lesenda með netkosningu á dv.is. Sigurvegararnir Verðlaunin voru afhent í iðnó í gær. BókmennTir n rán eftir Álfrúnu gunnlaugsdóttur ByggingarlisT n Kurtogpí fyrir menntaskóla Borgarbyggðar Fræði n Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði við HÍ Hönnun n Katrín Ólína Pétursdóttir kvikmyndir n Kjötborg eftir Helgu rakel rafnsdóttur og Huldu rós guðnadóttur leiklisT n Gunnar Eyjólfsson fyrir hlutverk sitt sem Jónatan í Hart í bak. myndlisT n Bragi Ásgeirsson fyrir yfirlitssýninguna augnasinfónía á Kjarvalsstöðum TónlisT n Sinfóníuhljómsveit Íslands val lesenda (neTverðlaun) n Hjaltalín Heiðursverðlaun n Manfreð Vilhjálmsson arkitekt sigurvegarar menningar- verðlauna dv 2008 lesendur völdu HjalTalín Hjaltalín Hljómsveitin fékk verðlaun lesenda. Manfreð forseti Íslands afhenti honum heiðursverðlaunin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.