Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2009, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2009, Page 6
fimmtudagur 5. mars 20096 Fréttir Lögreglan nýtur trausts 79 prósent segjast treysta lög- reglunni samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að spurt hafi verið um traust til tólf stofnana. Flestir sögðust treysta Háskóla Íslands, eða 80 prósent, en lögreglan var í öðru sæti á listanum. RÚV kostar 17.200 á mann Foreldrar með þrjá unglinga, 16 ára og eldri, geta átt von á innheimtu upp á 86.000 krónur 1. ágúst. Það er hinn svokallaði nefskattur fyrir RÚV. Frá þessu segir á heimasíðu Neytenda- samtakanna, ns.is. Afnotagjöld Ríkisútvarpsins voru lögð niður frá og með 1. janúar síðastliðn- um. Í stað þess kemur gjald sem er 17.200 krónur fyrir árið 2009. REI-maður kaupir Senu Félagið Garðarshómi, sem er í eigu Jóns Diðriks Jónsson- ar og Magnúsar Bjarnason- ar, hefur keypt öll hlutabréf í Senu. Jón Diðrik var nokkuð í fréttunum haustið 2007 er Bjarni Ármannsson réð hann til REI. Jón Diðrik var forstjóri Glitnis á Íslandi en lét af störfum 1. ágúst 2007. Vilja keyra Baug í þrot Lögmenn Glitnis og Íslands- banka mótmæltu því í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær að heim- ild yrði veitt til áframhaldandi greiðslustöðvunar Baugs Group. Óskað var eftir framlengingu um allt að þrjá mánuði. Fari svo að dómari fallist á beiðni bankanna fer Baugur í gjaldþrotameðferð. Tveir óeinkennisklæddir lögreglu- menn mættu á skólalóð Kvik- myndaskóla Íslands í gærdag. Það voru nemendur skólans sem hringdu á lögregluna þegar þeir fréttu af illa förnum Toyotu Avens- is-bíl samnemanda síns en hún stóð á bílastæði skólans. Það var blaðamaður DV sem rak augun í skemmdarverkin og gerði starfs- fólki skólans viðvart sem gekk strax í málið og hafði upp á eiganda bíls- ins. Eigandinn heitir Axel Ingi Við- arsson og er hann nemi við Kvik- myndaskóla Íslands. Axel Inga var brugðið þegar hann sá skemmdar- verkin en glerbrot voru allt í kring- um bílinn auk þess sem rörbútur- inn, sem var notaður til verksins, lá við hlið hans. Hótun á framrúðunni Þegar blaðamaður DV, ásamt nem- endum skólans, fór að skoða bílinn kom í ljós miði á framrúðunni en á honum stóð „Sjáumst í Hraun- bæ 44“ en þar býr Axel Ingi ásamt öðrum. Forsaga málsins er sú að Axel Ingi tók að sér að skila kvikmynda- vél til Saga Film í fyrradag en það gerði hann fyrir félaga sinn á Sel- fossi. Sá átti að skila vélinni fyr- ir Eið Örn Birgisson, skemmtana- kóng og fyrrverandi framleiðanda, en komst ekki í það og því hljóp Axel Ingi í skarðið. Það eina sem Axel Ingi átti að gera var að skila kvikmyndavélinni til ákveðins starfsmanns hjá Saga Film en þeg- ar hann mætti var sá starfsmaður vant við látinn. Axel Ingi skildi því vélina eftir hjá öðrum starfsmanni sem ætlaði að koma henni á réttan stað. Þar með hélt Axel Ingi að mál- inu væri lokið. Símanúmer Eiðs „Síðan hringir Eiður í mig í morgun klukkan tíu þegar ég var í skólanum og hótaði mér öllu illu. Eiður sagði að út af því að ég skilaði henni á vit- lausan stað þá skuldaði hann Saga Film sextíu þúsund krónur. Hann sagði að ég væri bara fífl og hálfviti fyrir að hafa ekki getað skilað henni á réttan stað,“ segir Axel Ingi. „Um það bil klukkutíma síðar hringir hann aftur og hótar öllu illu. Ég bjóst engan veginn við þessu,“ segir Axel Ingi en starfsmaður skól- ans sótti hann í tíma seinni part- inn í gær til þess að sýna honum skemmdirnar. Engin vitni voru að skemmdarverkunum en lögregl- an á höfuðborgarsvæðinu fer með rannsókn málsins. Símanúmerið sem hringt var úr í síma Axels Inga er sama númer og Eiður Örn notar og skráir sig fyrir, meðal annars á vefsíðu 800BAR. Vildi ekkert tjá sig DV hafði samband við Eið Örn Birgisson en hann vildi ekkert tjá sig um málið. Þegar DV spurði Eið Örn hvort Axel Ingi hafi skilað kvik- myndavél fyrir hann sagðist hann ekkert vita hvað blaðamaðurinn væri að tala um. „Ég hef ekkert um þetta að segja, ég veit ekkert um hvað þú ert að tala,“ sagði Eiður Örn og lagði á. Þegar blaðamaður DV hafði samband aftur endurtók Eiður Örn: „Eins og ég segi og sagði áðan veit ég ekkert um hvað þú ert að tala, hvorki þessa myndavél sem þú ert alltaf að tala um eða þessa rúðu.“ DV fékk það staðfest frá framkvæmdastjóra Saga Film að Eiður Örn hefði tekið kvikmyndavél á leigu hjá fyrirtækinu og að henni hefði verið skilað í gær. Leigan var sett á reikning Eiðs Arn- ar sem honum ber að greiða. Eiður Örn var töluvert í fjölmiðl- um í október á síðasta ári en þá stóð hann fyrir Dirty Night eða „sóðakvöldi“ á skemmtistað sínum 800BAR á Selfossi. Þá var Eið- ur Örn um tíma í starfi hjá Saga Film þar sem hann fram- leiddi meðal annars tónlist- armyndband við eitt af lög- um Qu- arashi. Sefur ekki heima Eins og áður segir var Axel Inga töluvert brugðið vegna atviksins og þá sérstaklega hótanablaðsins sem var skilið eftir á framrúðunni. Hann sagðist ekki ætla að sofa heima hjá sér heldur gista hjá ættingjum. Vegna hót- ananna fór Axel Ingi ásamt óeinkennisklæddum lög- reglumönnum heim til sín í dag til að ganga úr skugga um að ekki hafi verið brotist inn til hans. Það hafði ekki ver- ið gert og fóru því lögreglu- mennirnir en Axel Ingi hélt aftur í skólann þar sem hann fundaði með yfirmönnum Kvikmyndaskóla Íslands. Samkvæmt heimildum DV er bæði nem- endum og starfs- fólki skólans brugðið enda er þetta í fyrsta skiptið sem eitthvað líkt þessu gerist á lóð skólans. BÍLLINN SKEMMDUR Í KJÖLFAR HÓTANA Lögreglan var kölluð að Kvikmyndaskóla Íslands í gærdag en bíll nemanda þar, Axels Inga Viðarssonar, var illa leikinn eftir rörbarefli. Hliðar- og framrúður bif- reiðarinnar voru mölvaðar. Axel Ingi segist hafa fengið hótanir fyrr um daginn frá Eiði Erni Birgissyni, fyrrverandi framleiðanda Saga Film og einum af eigendum skemmtistaðarins 800BAR. Axel Ingi segir hótanirnar hafa komið í kjölfar þess að hann skilaði kvikmyndavél frá Saga Film á vitlausan stað. AtlI Már GylfASon blaðamaður skrifar: atli@dv.is Illa farinn rúður bílsins voru illa farnar og lágu glerbrot allt í kring. rörbúturinn Notast var við rörbút en hann lá við hliðina á bílnum. Skellti á Eiður Örn Birgisson sagðist ekkert vita um neina kvikmyndavél en framkvæmdastjóri saga film staðfesti að Eiður Örn hefði leigt vél. Hótunin Hér heldur axel ingi á mið- anum sem var skilinn eftir á framrúðu bílsins. „sjáumst í Hraunbæ 44.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.