Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2009, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2009, Qupperneq 10
fimmtudagur 5. mars 200910 Neytendur Jökull Sólberg Auðunsson leitar sér að tannlækni: Gefðu „tannsa“ einkunn „Í gærmorgun var ég í umferðinni og var einhverra hluta vegna minnt- ur á að það eru fjögur ár síðan ég fór síðast til tannlæknis,“ segir Jök- ull Sólberg Auðunsson internetsér- fræðingur. Hann hefur sett á fót síðu þar sem fólki gefst kostur á að gefa öllum tannlæknum á landinu ein- kunn. „Ég sá að það er ekki auðvelt að finna upplýsingar um hvar besti tannlæknirinn er. Ég ákvað því að spyrja alla í einu hver væri bestur og ætla svo að fara þangað,“ segir Jökull sem vonast til þess að þessar upp- lýsingarnar muni gagnast fleirum. Á síðunni http://tannsi.solberg. is má finna nöfn allra tannlækna á Íslandi, flokkuð eftir póstnúmerum. Hægt er að smella á þann tannlækni sem viðkomandi hefur reynslu af og gefa honum góða einkunn, hlut- lausa eða slæma. Fyrir neðan er svo hægt að gera grein fyrir atkvæði sínu en fólki er í sjálfsvald sett hvort það kvittar undir með nafni. Stigagjöf- in er sjálkrafa lögð saman en þegar þetta var skrifað höfðu um 70 greitt atkvæði á þeim eina sólarhring sem liðinn var frá því síðan var opnuð. Sá tannlæknir sem flest jákvæð at- kvæði hafði fengið var Ögmund- ur M. Ögmundsson, í póstnúmer- inu 101. Hann hafði fjögur atkvæði í plús. Óbundnir samninGar „Ef samið er við börn (undir 18 ára) eða aðra ófjárráða aðila verður samningurinn ekki bind- andi, nema foreldrar eða fjár- haldsmaður samþykki samning- inn. Kaup sem kosta ekki meira en unglingar hafa yfirleitt handa á milli myndu þó ekki teljast ógild.“ Frá þessu segir í leiðarkerfi neytenda á vefsíðunni talsmadur. is. Þar er að finna margvíslegar upplýsingar um skyldur og rétt- indi neytenda. ræktaðu eiGin jurtir Nú er tíminn til að sá fræjum. Ef þú vilt eiga ferskar kryddjurt- ir í sumar er nú tímabært að sá þeim. Knippi af jurtum á borð við rósmarín, basilliku, kóríand- er og oregano kostar víða á fjórða hundrað krónur í verslunum. Hægt er að spara nokkur hundr- uð eða þúsund krónur með því að kaupa einn bakka í Blómavali eða sambærilegri verslun, dulitla mold og fræ sem ekki kosta mik- ið. Þannig geturðu slegið um þig í grillveislum sumarsins með sára- litlum kostnaði. n Par sem fór í Háskólabíó síðastlið- inn föstudag hafði samband við DV og vildi koma óánægju sinni á framfæri. Parið þurfti, ásamt fjölmörgum öðrum, að standa úti á meðan það beið eftir því að geta keypt miða. Úti var mígandi rigning og var parið að því komið að hætta við þegar það loksins fékk afgreiðslu. n Nóatún selur ljúffenga djúpsteikta kjúklingabita á 150 krónur stykkið. Sá sem borðar þrjá bita getur því fengið dýrindis máltíð á undir 500 krónum. Það þykir lítið árið 2009 enda setti ánægður viðskiptavinur Nóatúns sig í samband við DV og kom þessu á framfæri. sENdiÐ LOf EÐa Last Á NEYtENdur@dV.is Dísilolía Grafarvogi verð á lítra 144,4 kr. verð á lítra 156,6 kr. skeifunni verð á lítra 142,8 kr. verð á lítra 154,6 kr. akranesi verð á lítra 144,4 kr. verð á lítra 156,6 kr. bensín dalvegi verð á lítra 142,7 kr. verð á lítra 154,5 kr. fjarðarkaupum verð á lítra 137,4 kr. verð á lítra 152,3 kr. skógarseli verð á lítra 144,4 kr. verð á lítra 156,6 kr. umsjóN: BaLdur guÐmuNdssON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is el d sn ey t i Jökull Sólberg leitar að besta tannlækninum Hefur ekki farið til tannlæknis í fjögur ár. „Ég hef orðið fyrir vonbrigðum með að ekki sé tekið rösklega á málum. Ég geri þá kröfu til ríkisstjórnarinn- ar að hún komi með varanleg úr- ræði til bjargar heimilunum,“ seg- ir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, aðspurður hvernig honum finnist ný ríkisstjórn hafa staðið sig það sem af er valda- tíma hennar. Við myndun nýrrar ríkisstjórnar sagði Jóhannes að nauðsynlegt væri að meta greiðslugetu hvers heimilis fyrir sig. Það sem út af stæði yrði að fella niður. Tvær leiðir færar „Það eru tvær leiðir í stöðunni. Það er annars vegar flöt niðurfelling skulda, til dæmis um 20 prósent eins og fram- sóknarmenn hafa lagt til. Hins vegar væri hægt að skoða stöðu hvers ein- staks heimilis,“ segir Jóhannes sem hugnast fremur síðari leiðin. „Við vit- um að staða heimilanna er mjög mis- jöfn. Það er hópur heimila sem getur staðið við greiðslubyrði sína en ann- ar hópur sem á í ákveðnum vanda- málum með að standa í skilum. Síð- an er stór hluti heimila, eins og kom fram í skýslu ASÍ, sem stendur afar illa. Það er helst fólk á aldrinum 30 til 40 ára,“ útskýrir hann. Keppast um greiðsluaðlögun Jóhannes segir að flatur niðurskurður skulda, eins og framsóknarmenn hafi lagt til, komi ekki til með að duga þeim hópi sem verst er settur. Þess utan sé slík aðferð mjög kostnaðarsöm. Þann kostnað sem af því hlyti þyrftu skatt- greiðendur að taka á sig. „Ég vil að á það verði látið reyna hvort ekki sé hægt að keyra í gegn greiðsluaðlögun, þar sem hægt væri að koma til móts við skuldsettustu heimilin. Það þarf að hjálpa fólki sem er á brúninni, eða jafnvel öfugum megin við brúnina, við að standa í skilum,“ segir Jóhann- es og lýsir vonbrigðum sín- um með þá þingflokka sem kepptust við að setja fram frumvörp um greiðsluaðlög- un. Síðan hafi ekk- ert gerst. Heimilin geti ekki beðið mik- ið lengur. Sanngjörn leið ekki til Í umræðum um nið- urfellingu skulda hafa sjónarmið óréttlætis verið hátt á lofti. Skiptar skoðanir eru um það hvers vegna þeir sem hugsanlega hafa farið óvar- lega eigi skilið að fá niðurfellingu skulda á meðan þeir sem varlegar hafa farið fái engan afslátt. Jóhannes segir afar erfitt að finna leið sem er að öllu leyti sanngjörn miðað við þann vanda sem þjóðin stendur frammi fyr- ir. Hann segir að endalaust megi velta því fyrir sér hvað sé réttlátt og hvað ekki. „Ég minni bara á þá staðreynd að flatur niður- skurður, eins og sá sem framsókn boðar, kostar um 280 milljarða. Er þá rétt að íþyngja buddu almennings enn meira með því að grípa til að- stoðar við heimili sem ekki þurfa hjálp?“ spyr hann. Jóhannes segir enn fremur að rík- isstjórnin hafi hingað til lagt áherslu á að frysta afborgun lána og fresta nauðungarsölum, svo dæmi séu tek- in. Það hafi verið nauðsynlegar að- gerðir á meðan fundið væri út hvern- ig mætti leysa vandamál heimilanna. Nú þurfi hins vegar að grípa til róttæk- ari aðgerða. Bíða í ofvæni Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra sagði í viðtali við DV í lok febrúar að honum hugnaðist ekki sú leið sem framsóknarmenn vilja fara, sagði framkvæmdina óhemju dýra auk þess sem ekki væri sýnt að hún leysti vanda þeirra sem verst standa. Steingrímur hefur einnig sagt að rík- isstjórnin bíði nú í ofvæni eftir ítar- legri skýrslu Seðlabanka Íslands um stöðu heimilanna. Þegar DV náði tali af fjármálaráðherra í gær sagði hann að skýrslan yrði að líkindum kynnt ríkisstjórninni síðar um kvöldið. „Ég minni bara á þá staðreynd að flat- ur niðurskurður, eins og sá sem framsókn boðar, kostar um 280 milljarða. Er þá rétt að íþyngja buddu almenn- ings enn meira með því að grípa til aðstoð- ar við heimili sem ekki þurfa hjálp?“ krefst varan- legra úrræða Ríkisstjórnin hefur valdið Jóhannesi Gunnarssyni, formanni Neytendasamtakanna, vonbrigðum. Hann gerir þá kröfu til ríkisstjórnarinnar að hún komi með varanleg úrræði til bjargar heimilunum. Hann vill að öll illa stæð heimili verði sett í greiðslu- aðlögun. BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is Þúsundir bíða átekta formaður Neytendasamtakanna segir að nú þurfi ríkisstjórn- in að taka stórar ákvarðanir. Ekki dugi lengur að fresta afborgunum. Vill lög um greiðsluaðlögun jóhannes gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, vill tafarlausar aðgerðir stjórnvalda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.