Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2009, Side 17
fimmtudagur 5. mars 2009 17Sport
Þrír leikir í N1-deildiNNi fram tekur á móti Haukum þegar N1-deild karla í hand-
knattleik heldur áfram eftir bikarúrslitahléið í kvöld. framarar voru efstir í deildinni fyrir
vetrarhléið en þeim hefur lítið gengið eftir jól. Í fyrsta leik eftir jól rústuðu Haukar frömur-
um í safamýri, 30-20, en fram hefur aðeins unnið einn leik af fjórum eftir að deildin fór aft-
ur af stað. Haukar hafa hins vegar unnið níu síðustu leiki sína og stefna harðbyri að deild-
armeistaratitlinum. sigur hjá fram í kvöld hjálpar Valsmönnum mikið en þeir mæta
botnliði Víkings í Vodafone-höllinni klukkan 19.30. með hagstæðum úrslitum geta
Valsmenn minnkað muninn á toppnum í eitt stig. Þá eigast einnig við fH og stjarn-
an en með sigri fer stjarnan langleiðina með að tryggja sér 7. sætið í deildinni.
Eftir sigra Chelsea og Liverpool í
gær þurfti Manchester United á
sigri að halda gegn Newcastle í
gærkvöldi til að endurheimta sjö
stiga forskot sitt á toppi ensku úr-
valsdeildarinnar. Það blés ekki byr-
lega þegar Peter Lovenkrands skor-
aði fyrir Newcastle eftir aðeins níu
mínútur, fyrsta markið sem Edwin
Van der Sar fær á sig í háa herrans
tíð. Sjálfur átti Hollendingurinn
stóri sök á markinu.
Wayne Rooney hafði fyrir leik-
inn skorað átta mörk í tíu leikjum
gegn Newcastle í United-búningi
og hélt áfram þar sem frá var horf-
ið með jöfnunarmarkið eftir tut-
tugu mínútna leik. Í seinni hálf-
leik gerði svo hinn ævintýralélegi
varnarmaður Steven Taylos sig sek-
an um stór mistök sem leiddu að
sigurmarki United en það skoraði
Búlgarinn Dimitar Berbatov. Ekki
fyrsta sigurmarkið sem hann skor-
ar á leiktíðinni.
Aftur er komið líf í baráttuna
um fjórða sætið en Aston Villa, sem
reyndi að endurheimta sex stiga
forskot sitt á Arsenal, tapaði fyrir
Manchester City, 2-0, í gærkvöldi.
Villa hefur verið á niðurtúr und-
anfarið og aðeins innbyrt eitt stig
af síðustu níu mögulegum en það
hefur hleypt Arsenal aftur inn í bar-
áttuna.
tomas@dv.is
Manchester United lagði Newcastle, 2-1, í úrvalsdeildinni:
tæpur sigur eN góður
inu. Gísli Árni Eggertsson, skrif-
stofustjóri Íþrótta- og tómstunda-
„Við lítum svo á að börnin séu
að taka þátt í formlegu frístunda-
starfi á frístundaheimilunum en
þar fer fram margs konar starf-
semi sem er sniðin að aldri þeirra
og þörfum. Þá taka ekki öll börn
sem sækja frístundaheimilin þátt
í öðru frístundastarfi og þótti
ástæða til að gefa foreldrum þeirra
möguleika á að nýta kortið til að
greiða niður dægradvölina. Það
skal þó tekið fram að full vistun á
frístundaheimili kostar um 8.000
umsjóN: tómas Þór ÞórðarsoN, tomas@dv.is
eNskA ÚrVAlsdeildiN
Stoke - Bolton 2–0
1-0 James Beattie (14.), 2-0 Ricardo Fuller (73.).
Wigan - West Ham 0–1
0-1 Carlton Cole (37.).
Man. City - Aston Villa 2–0
1-0 Elano (24.), 2-0 Shaun Wright-Phillips (89.).
Newcastle - Man. United 1–2
1-0 Peter Lovenkrands (9.), 1-1 Wayne Rooney
(20.), 1-2 Dimitar Berbatov (56.).
Blackburn - Everton 0–0
Fulham - Hull 0–1
0-1 Manucho (90.)
Tottenham - Middlesbrough 4–0
1-0 Robbie Keane (9.), Roman Pavlyuchenko
(14.), 3-0 Aaron Lennon (40.), 4-0 Aaron Lennon
(79.).
Staðan
Lið L U J t M St
1. man. utd 27 20 5 2 48:12 65
2. Chelsea 28 17 7 4 48:16 58
3. Liverpool 28 16 10 2 45:20 58
4. aston V. 28 15 7 6 42:29 52
5. arsenal 28 13 10 5 41:26 49
6. Everton 28 12 9 7 36:28 47
7. West H. 28 11 6 11 34:34 39
8. man. C. 28 10 5 13 45:36 35
9. Wigan 27 9 8 10 27:26 35
10. fulham 27 8 10 9 24:23 34
11. Bolton 28 10 3 15 30:40 33
12. Hull 28 8 8 12 34:50 32
13. tottenh. 27 8 7 12 32:32 31
14. sunderl. 27 8 7 12 27:35 31
15. stoke 28 7 8 13 27:44 29
16. Newcas. 28 6 10 12 34:45 28
17. Portsmt. 27 7 7 13 29:44 28
18. Blackb. 27 6 9 12 30:43 27
19. m. Boro. 28 6 8 14 20:40 26
20. WBa 28 6 4 18 25:54 22
stórlið í
Audi-bikArNum
Það verða engin smálið sem leika í
audi-bikarnum, nýju sumarmóti
Bayern münchen, sem haldið verður
í fyrsta skiptið í júlí. Þýska liðið
heldur mótið í tilefni af aldarafmæli
samstarfsins milli bílaframleiðandans
og Bayern münchen. Ásamt Þjóðverj-
unum munu aC milan, Boca juniors
og manchester united leika á
mótinu. dregið hefur verið í
undanúrslit mótsins en þar mætast
Bayern og milan annars vegar og
united og argentínska liðið Boca
juniors hins vegar. undanúrslitaleik-
irnir fara fram 29. júlí en leikið verður
á allianz arena, leikvangi Bayern
münchen.
„Við höfum ekki unnið landslið sem
er svona hátt á heimslistanum [6.
sæti, innsk. blm] áður þannig að
þetta var alveg frábært fyrir okkur,“
sagði glaðbeittur Sigurður Ragnar
Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðs
Íslands í knattspyrnu, þegar DV náði
í hann í gær eftir frábæran 3-1 sigur
Íslands á Noregi á Algarve-mótinu í
Portúgal. Sara Björk Gunnarsdóttir
skoraði tvö mörk fyrir Ísland en það
síðasta var sjálfsmark.
Íslenska liðið vann sér eins og
frægt er orðið inn sæti á lokakeppni
Evrópumótsins í Finnlandi í sumar
og leikur því í fyrsta skiptið á meðal
bestu þjóðanna á þessu árlega móti.
„Þetta var mjög gott þar sem Nor-
egur er með okkur í riðli í lokamót-
inu þannig að það gefur okkur aukið
sjálfstraust fyrir undirbúninginn hjá
okkur,“ sagði Sigurður Ragnar.
Sara pakkaði Ingvild saman
Leikurinn var sigur liðsheildarinn-
ar sagði Sigurður og var hann mjög
ánægður með framlag allra leik-
manna og varamanna. Hin unga
Sara Björk Gunnarsdóttir stal þó
sviðsljósinu með tveimur mörkum.
„Sara átti líklega sinn besta leik fyrir
Ísland. Hún var að leika á móti ein-
um besta miðjumanni í heimi, Ing-
vild Isaksen, og pakkaði henni sam-
an. Það er alveg ótrúlegur árangur
hjá átján ára stelpu að vera orðin
svona góð,“ sagði Sigurður Ragn-
ar sem spilaði á sínu sterkasta liði í
dag.
„Við erum náttúrlega komin með
ákveðinn kjarna í liðið sem hefur
spilað mjög vel og ég hef lítið breytt
honum. Þær sem byrjuðu inn á í dag
munu samt ekki leika níutíu mínút-
ur alla fjóra leikina. Í dag fékk Guð-
björg markvörður tækifæri til dæmis
og stóð sig mjög vel. Það munu fleiri
fá sín tækifæri og það er vonandi að
þær nýti þau jafnvel og Guðbjörg
gerði í þessum leik,“ sagði Sigurður
Ragnar.
Vildum senda skilaboð
Ísland mun, eins og áður segir, leika
í fyrsta skiptið á meðal bestu þjóð-
anna á Algarve-mótinu. Vöktu úrslit-
in í gær athygli á svæðinu? „Ég held
að þau muni gera það. Við erum að
komast á kortið gegn þessum sterku
þjóðum núna. En við vildum senda
skilaboð til Noregs og norska þjálf-
arans með þessum leik. Við ætlum
okkur ekki að vera eitthvað litla Ís-
land í þessum dauðariðli á EM. Við
ætlum okkur upp úr riðlinum,“ sagði
Sigurður sem vill frekar mæta sem
þekkt stærð á Evrópumótið en ein-
hver „X-factor“ og treysta á vanmat
annarra liða.
„Ef hin liðin vilja vanmeta okkur
er það hið besta mál en það eru litl-
ar líkur á að Noregur vanmeti okkur
allavega eftir þennan sannfærandi
sigur,“ sagði Sigurður Ragnar Eyj-
ólfsson.
Ísland hóf leik á Algarve-mótinu í gær með frábærum 3-1 sigri á Noregi sem er í dag
skráð sem sjötta besta þjóð heims. Sara Björk Gunnarsdóttir, átján ára Hafnarfjarð-
armær, lék sinn besta leik með landsliðinu og skoraði tvö mörk. „Hún pakkaði einum
besta miðjumanni heims saman,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari.
„Vildum seNdA
NOregi skilAbOð“
tÓMaS ÞÓR ÞÓRðaRSOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Fögnuður stelpurnar okkar unnu
frábæran sigur á Noregi í gær.
Wayne Rooney Elskar
að spila gegn Newcastle.