Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Blaðsíða 2
Þriðjudagur 10. Mars 20092 Fréttir Miklu stærri gjalddagi í Maí Fjármálaeftirlitið tók yfir fjárfest- ingabankann Straum-Burðarás (Straum) í gær. Ástæða yfirtökunnar var sögð sú að Straumur hefði ekki geta lagt fram þá 2,5 milljarða króna sem upp á vantaði til að standa skil á láni bankans. Samkvæmt heimild- um DV átti Straumur að standa skil á miklu hærri upphæð í maí. Því hafi Seðlabankinn metið það svo að ólík- legt væri að bankinn næði að leysa úr lausafjárvanda sínum. Auk þess hafi stjórnvöld verið að vernda hagsmuni Íbúðalánasjóðs og ýmissa lífeyris- sjóða sem áttu 60 milljarða króna innistæðu hjá Straumi. Heimildir DV herma einnig að með þessari aðgerð hafi Seðlabank- inn fórnað Straumi til að bjarga Sparisjóðabankanum. Sparisjóða- bankinn fundaði með stjórnvöldum um helgina líkt og Straumur. Skuld- ir bankans nema um 150 milljörð- um króna sem er tífalt eigið fé hans. Af þessum 150 milljörðum eru um 75 milljarðar í höndum Seðlabankans eftir veðkall Seðlabankans í lok síð- asta árs. Gylfi Magnússon viðskiptaráð- herra sagðist í samtali við Vísi í gær ekki útiloka að stjórnvöld yfirtækju fleiri fjármálastofnanir á næstunni. Unnið væri að lausn á vanda Spari- sjóðabankans og annarra fjármála- stofnana til að koma í veg fyrir hrun þeirra. Slæm lausafjárstaða Að sögn forsvarsmanna Straums var eiginfjárhlutfall bankans sterkt en vegna bágrar lausafjárstöðu hafi ekki verið hægt að halda áfram starfsemi. Straumur átti að standa skil á 4,7 milljarða króna skuldbinding- um í gær en átti aðeins 2,2 milljarða króna. Lausafjárstaða Straums lækk- aði um 140 milljarða króna á árinu 2008. Fjármálaeftirlitið sendi Straumi bréf í fyrradag þar sem óskað var eft- ir upplýsingum um lausafjárstöðu bankans. Seðlabanki Íslands hafði upplýst Fjármálaeftirlitið um þrönga lausafjárstöðu Straums og var bréfið sent vegna þessa. Í svarbréfinu frá Straumi til Fjár- málaeftirlitsins kom fram hverjar skuldbindingar bankans voru og kom fram þar að bankinn ætti ekki hand- bæra þá tæplega 2,2 milljarða króna sem bankinn þurfti að greiða í gær. Var það mat bankans að ekki væri raunhæfur kostur að bankinn gæti aflað þess fjár sem þyrfti til að tryggja áframhaldandi starfsemi hans. For- svarsmenn bankans óskuðu þess vegna eftir greiðslustöðvun. Í framhaldinu skipaði Fjármála- eftirlitið skilanefnd yfir Straumi og var Reynir Vignir skipaður formað- ur hennar. Fjármálaeftirlitið rak auk þess Björgólf Thor Björgólfsson, stjórnarformann Straums. Stærsti einstaki hluthafi bankans var félag Björgólfsfeðga, Samson Global Hold- ings, sem fór með 34,3 prósenta hlut í bankanum. 23 ára sögu lokið Straumur varð til árið 2001 við sam- einingu Hlutabréfasjóðsins hf. og Hlutabréfasjóðs VÍB hf. Félag- ið Burðarás var stofnað af Eimskipi árið 1989. Í ágúst árið 2005, í fram- haldi af stjórnarfundum Burðaráss, Straums, Eimskipafélags Íslands og Landsbanka Íslands, var ákveðið að sameina Straum og Burðarás. Þá fóru 37 milljarða eignir Burðaráss inn í Landsbankann sem jók eigið fé bankans á þeim tíma um 60 prósent. Eigið fé hins sameinaða banka var þó 100 milljarðar króna. Fjármálaeftirlitið yfirtók fjárfestingabankann Straum-Burðarás í gær. Ástæðan var sögð sú að Straumur hefði ekki getað reitt fram 2,5 milljarða króna sem upp á vantaði til að standa skil á lánum bankans. Samkvæmt heimildum DV stóð Straumur frammi fyrir miklu stærri gjalddaga í maí og stjórnvöld hafi því metið það svo að bankinn myndi ekki þrauka. Auk þess er talið að Straumi hafi verið fórnað til að bjarga Sparisjóðabankanum. annaS SigmundSSon blaðamaður skrifar: as @dv.is Síðasti bankinn straumur er fjórði og síðasti stórbankinn sem fellur á Íslandi. Bankinn glímdi við lausafjár- vanda líkt og margir aðrir alþjóðlegir bankar gera um þessar mundir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.