Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Side 3
Þriðjudagur 10. Mars 2009 10Fréttir Miklu stærri gjalddagi í Maí Með falli Straums-Burðaráss í gær er sögu þessara tveggja félaga lokið. Mörg þúsund Íslendingar höfðu átt hlutabréf í þessum félög- um allt frá stofnun Hlutabréfasjóðs- ins hf. árið 1986. Bæði Straumur og Burðarás voru gríðarlega burðug fyrirtæki áður en þau voru samein- uð. Má þar nefna að eiginfjárhlutfall Burðaráss árið 2004 var um 70 pró- sent og Straumur var með sama eig- infjárhlutfall árið 2003. Gríðarlegur launakostnaður Eftir að félögin voru sameinuð í lok árs 2005 stækkaði efnahagsreikning- ur félagsins hratt með stóraukinni skuldsetningu. Miklar deilur voru á milli stærstu hluthafa bankans í byrjun. Þar deildu Björgólfsfeðgar við viðskiptafélagana Kristin Björns- son og Magnús Kristinsson, eigend- ur Gnúps. Endaði það með því að FL Group keypti 24,2 prósenta hlut Magnúsar og Kristins í Straumi. Straumur var þekktur fyrir að borga góð laun en árið 2006 voru meðallaun starfsmanna Straums 22,7 milljónir króna. Þórður Már Jó- hannesson hafði 88 milljónir króna í tekjur árið 2006 en hann lét af störf- um hjá Straumi um mitt sumar það ár eftir að Kristinn og Magnús seldu hlut sinn. Þá hafði Friðrik Jóhanns- son sem tók við forstjórastólnum af Þórði 63,3 milljónir í laun. Árið 2007 lét Friðrik af störfum sem forstjóri og tók William Fall þá við af honum. Friðrik fékk 412 millj- ónir í laun hjá Straumi árið 2007 og William Fall 55 milljónir króna. Þættir í rekstri straums-Burðaráss 2003 2004 2005 2006 2007 2008 Heildareignir 23 90 259 412 652 514 Viðskiptavild 0 0 14,6 17,2 45 24 eigið fé 16 32 145 141 143 87 eiginfjárhlutfall 70% 36% 56% 34% 22% 17% Hagnaður 27 45 14,3 -105 *allar tölur í milljörðum króna *Í tölum 2003 og 2004 er Burðarás ekki talinn með 10 stærstu Hlut- Hafar straums- Burðaráss 1. samson global Holdings s.a.r.l. 34,3% 2. Landsbanki Luxembourg s.a. 16% 3. straumur-Burðarás 9,8% 4. Citigroup global Markets inc. 4,8% 5. glitnir banki hf 3,45% 6. Kaupþing Ís-15 2,23% 7. Lífeyrissjóður verslunarm. 2,22% 8. stafir lífeyrissjóður 1,75% 9. Horn fjárfestingarfélag ehf 1,56% 10. sameinaði lífeyrissj. 1,20% Hættur Fjármálaeftirlitið vék William Fall, forstjóra straums, frá störfum í gær. lítið eftir Ljóst er að umsvif Björgólfsfeðga fara sífellt minnkandi á Íslandi. Þeir hafa nú misst báða banka sína, straum og Landsbankann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.