Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Qupperneq 4
Varnagli, einkahlutafélag í eigu Tryggva Þórs Herbertssonar, fékk 150 milljóna króna lán frá Askar Capital árið 2007 til að kaupa hlutabréf í fyr- irtækinu. Tryggvi Þór var þá forstjóri fyrirtækisins. Veðið fyrir láninu var í hlutabréfunum sjálfum og var 50 prósent af andvirði þeirra. Hann fékk jafnframt 150 milljóna króna lán frá Glitni til að kaupa hlutabréf í Askar. Tryggvi Þór, sem er prófessor við Háskólann í Reykjavík og þátttak- andi í komandi prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Norðausturkjördæmi, staðfestir þetta í samtali við DV. Borgaði enga vexti af láninu Tryggvi segist aðspurður hafa selt Varnagla aftur til Askar þegar hann hætti sem forstjóri fyrirtækisins síð- astliðið sumar til að gerast efnahags- ráðgjafi hjá Geir H. Haarde forsætis- ráðherra. Söluverðið var 500 þúsund krónur en það var sú upphæð sem Tryggvi hafði sett inn í einkahluta- félagið sem hlutafé og stofnfé. Hann segist ekki hafa tapað neinu per- sónulega á lántökunni og hlutabréfa- kaupunum. „Ég kem á sléttu út úr þessu persónulega: Ég tapaði engu og græddi ekkert.“ Heildarskuldir Varnagla námu rúmum 370 milljónum króna árið 2007 og voru 300 þeirra vegna lán- anna frá Askar og Glitni, samkvæmt ársreikningi félagsins. Rúmar 70 milljónir af skuldum fé- lagsins voru tilkomnar vegna kostn- aðar við lánin, meðal annars vaxta- greiðslna og gengisbreytinga. Tryggvi staðfestir þetta og segir lánin hafa verið svokölluð kúlulán þar sem lán- takandinn greiðir ekki vexti af láninu fyrr en í lok lánstímans. Tryggvi segir að skuldin vegna lánanna hafi verið skilin eftir inni í félaginu þegar hann seldi það aftur til Askar. Aðspurður hversu há lánsfjárhæð- in sé orðin núna segist Tryggvi ekki vita það. „Ég veit ekki hvernig þetta stendur núna. Ég ber enga ábyrgð á félaginu lengur,“ segir hann. Hluti af starfskjörum Tryggva Tryggvi segir að lánið frá Askar hafi verið hluti af starfskjörum hans hjá fyrirtækinu. Hann segir að honum, líkt og öðrum framkvæmdastjórum hjá Askar Capital, hafi verið boð- ið að stofnuð yrðu einkahlutafé- lög utan um hlutabréfakaup þeirra í bankanum þegar hann hóf störf þar í árslok 2006. Hann segist aðspurð- ur hafa selt bréfin í fyrra þegar hann hætti hjá Askar vegna þess að hann hafi verið að hætta hjá félaginu og að hann hafi ekki verið búinn að ávinna sér réttinn til að eignast hlutabréfin í bankanum. „Félagið hefði þurft að eiga bréfin í bankanum í þrjú ár til þess að eignast þau. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að sá sem fái lán- ið eignist hlutabréfin án þess að hafa unnið fyrir því,“ segir Tryggvi Þór og bætir því við að líta megi á sölu hans á Varnagla sem svo að samkomulag- ið á milli hans og Askar hafi einfald- lega gengið til baka. Eðlilegir viðskiptahættir, segir Tryggvi Aðspurður segir Tryggvi að honum þyki ekkert óeðlilegt við lánveiting- una. „Þetta er bara hefbundið og eins og hlutirnir gengu fyrir sig á þessum tíma. Askar er einkahlutafélag en ekki almenn- ingshluta- félag þannig að ekki var ver- ið að svína á nein- um. Hugs- unin er sú að hags- munir mínir og félagsins fari saman. Þetta er bara það sem var gert og var fullkomlega eðlilegt á þeim tíma þó setja megi spurninga- merki við það í dag,“ segir Tryggvi. Svona viðskiptahættir settu bankakerfið á hausinn Vilhjálmur Bjarnason, formaður Fé- lags fjárfesta, segir aðspurður að við- skiptahættir eins og lánveitingin til Tryggva hafi sett bankakerfið á haus- inn. „Svona dílar keyrðu bankakerfið í kaf. Það er svo einfalt. Það er hægt að rústa heilu bankakerfi með svona kúnstum,“ segir Vilhjálmur. Hann segir að slík viðskipti verði til þess að eiginfjárstaða banka sé fölsuð. „Í þessu tilfelli var eiginfjár- staða tveggja íslenskra banka og bankakerfisins fölsuð um 300 millj- ónir. Eiginfjárstaða bankanna var röng og ofmetin um þessar milljónir,“ segir Vilhjálmur en með slíkum við- skiptaháttum geta bankar og banka- kerfi virst burðugri fjárhagslega en þau eru í raun og veru. „Það er ekkert eigið fé í þessu því þetta er allt lánsfé. Þetta er bara rugl,“ segir hann. Í gær, eftir að DV hafði sam- band við Tryggva Þór út af kúluláninu, greindi hann frá því á bloggsíðu sinni að hann hefði fengið lánið. þriðjudagur 10. mars 20094 Fréttir FÉKK 150 MILLJÓNA KÚLULÁN FRÁ ASKAR Einkahlutafélag í eigu þáverandi forstjóra fjárfestingabankans Askar Capital, Tryggva Þórs Herbertssonar, fékk 150 milljóna kúlulán frá bankanum til að kaupa hlutabréf í bankanum sjálfum árið 2007. Tryggvi Þór seldi síðan einkahlutafélagið til Askar þegar hann hætti hjá bankanum í fyrrasumar og skildi skuldirnar af lánunum eftir inni í félaginu. Vilhjálmur Bjarnason segir að slíkir viðskiptahættir hafi leitt til hruns ís- lensku bankanna. IngI F. VIlHjálmSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is „Þetta er bara það sem var gert og var fullkom- lega eðlilegt á þeim tíma þó setja megi spurningamerki við það í dag.“ Forstjórinn fékk kúlulán Fyrrverandi forstjóri askar Capital, Tryggvi þór Herbertsson prófkjörsframbjóðandi fyrir sjálfstæðisflokkinn í Norðausturkjör- dæmi, fékk 150 milljóna króna kúlulán frá askar Capital meðan hann var forstjóri fyrirtækisins. Eiginfjárstaðan ofmetin Vilhjálmur Bjarnason telur slíka viðskiptahætti hafa leitt til bankahrunsins. Tapaði hvorki né græddi Tryggvi þór segist hvorki hafa tapað né grætt á láninu. Máli Daggar vísað frá Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í gær frá máli Daggar Pálsdótt- ur, lögmanns og varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins, á hendur Sögu verktökum ehf. Fyrirtæk- ið stefndi Dögg upphaflega til greiðslu fimmtán milljóna króna sem hún er sögð skulda fyrirtækinu vegna framkvæmda við tvær íbúðir Daggar og sonar hennar. Dögg sneri vörn í sókn og stefndi sjálf verktökunum til að greiða sér fjórtán milljón- ir króna. Dögg bar við að þeir hefðu tekið lengri tíma í verkið en um var samið og reikningar verið hærri en við var að búast. Saga verktakar kröfðust frávís- unar sem fallist hefur verið á. Sextán þúsund atvinnulausir Sextán þúsund fjögur hundr- uð þrjátíu og fimm eru nú á atvinnuleysisskrá hjá Vinnu- málastofnun ríkisins samkvæmt nýjustu tölum. Vinnumála- stofnun segir þó tölurnar ekki gefa nógu skýra mynd af þeim sem eru atvinnulausir þar sem hópur fólks er á hlutabótum á móti hlutastarfi. „Um þessar mundir er fjöldi þeirra sem eru á hlutabótum á móti hlutastarfi á milli 2.000 og 2.500,“ segir á vef Vinnumálastofnunar. Þungstígir á bensíngjöfina Fjörutíu ökumenn mega eiga von á því að þurfa að borga myndar- lega sekt en þeir voru allir teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lög- reglunnar á höfuðborgarsvæð- inu. Umferðardeild lögreglunnar boðaði fyrir helgi aukið umferð- areftirlit á Hafnarfjarðarvegi og voru langflestir ökumannanna stöðvaðir þar. Samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglu voru nær allir á hundrað til hundrað og tíu kílómetra hraða en sá sem hrað- ast ók mældist á 125 þar sem há- markshraði var 80. Bátur sökk í höfn Vélbáturinn Hrönn ÍS sökk í höfninni á Ísafirði á laugardag- inn. Lögreglan á Vestfjörðum fékk einnig tilkynningu um að vélbáturinn Jón forseti væri að sökkva en sá bátur var bundinn utan í Hrönn. Kallaðir voru til hafnarstarfsmenn og bátaflokk- ur Björgunarfélags Ísafjarðar til aðstoðar. Hægt var að koma í veg fyrir að Jón forseti sykki og var hann færður annað í höfn- inni. Ekki er vitað um orsakir þess að Hrönn sökk en unnið verður að því að koma bátnum aftur á flot í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.