Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Síða 15
Þriðjudagur 10. Mars 2009 15Umræða
Hver er maðurinn? „Ólína
Þorvarðardóttir.“
Hvað drífur þig áfram? „réttlæt-
iskennd.“
Hvar ertu uppalin? „Ég er uppalin í
reykjavík og á Vestfjörðum.“
Hvert er mesta góðgæti sem þú
veist um? „Hrísgrjónagrautur með
kanil, rjóma, rúsínum og lifrarpylsu.“
Heldur þú að reynsla þín sem
skólameistari muni nýtast þér í
pólitík? „já, vafalaust.“
Með hvaða flokkum vilt þú helst
fara í stjórn? „Ég vil félagshyggju-
stjórn.“
Hvað finnst þér um hæg
viðbrögð stjórnvalda við þeim
hugsanlega miklu efnahags-
brotum sem hafa átt sér stað
á Íslandi? „Mér finnst það mætti
ganga hraðar og markvissar fyrir sig
að upplýsa hvað gerðist og koma
lögum yfir þá sem brutu af sér.“
Þarf að skerpa lögum um
efnahagsbrot? „Það má vafalaust
gera þau skýrari og ekki síður fylgja
þeim betur eftir.“
Hver eru þín helstu baráttumál?
„siðbót í íslenskum stjórnmálum og
að vernda fjölskyldurnar í landinu
fyrir afleiðingum bankahrunsins.
Einnig atvinnu- og neytendamál.“
Ertu ánægð með kosninguna?
„Ég er hæstánægð og þakklát fyrir
þetta traust.“
Finnst þér að frysta ætti eigur
auðmanna? „Fyrst og fremst þarf
að fara að lögum. En ef lögin ná ekki
yfir þá sem komu okkur á kaldan
klakann þá finnst mér að þurfi að
endurskoða þau.“
Hvað er næst á dagskrá?
„Kosningabarátta. að ná þriðja
manni inn fyrir samfylkinguna í
Norðvesturkjördæmi.“
Ætlar þú til útlanda í sumar?
„já, ég fer til danmerkur og vonandi
til spánar. Ég átti heima í danmörku
í tvö ár þannig að ég er eiginlega að
fara heim. svo ef fjölskyldan mín fer
til spánar þá fer ég með. Það er enn
óvíst.“
SigrÍður Vala
HElgadóttir MöllEr
15 ára NEMi
„Ég fer kannski til danmerkur með
vinkonu minni og ætla að vera þar eins
lengi og ég get.“
Saga Björk FriðÞjóFSdóttir
17 ára NEMi
„Ég ætla í heimsreisu í byrjun maí. Ég
ætla að ferðast um allan heiminn.“
tóMaS EinarSSon
39 ára sjÓMaður
„Nei, mér finnst svo gaman að vera á
Íslandi.“
kári SiggEirSSon
20 ára og atViNNulaus
Dómstóll götunnar
ólÍna ÞorVarðardóttir náði
2. sæti í prófkjöri samfylkingar í
Norðvesturkjördæmi með sannfær-
andi kosningu. Hún telur að reynsla
sín sem skólameistari muni nýtast sér í
pólitík. Hún berst fyrir siðbót í
íslenskum stjórnmálum, vill félags-
hyggjustjórn og grjónagraut með
kanil, rúsínum, rjóma og lifrarpylsu.
Siðbót í
Stjórnmálum
„Ég er að fara í pílagrímaferð í
Baskalandi á spáni eftir átján daga. Ég
fer með nokkrum úr skólanum mínum,
Menntaskólanum í Kópavogi, en ég
held að við náum ekki að ganga alla
pílagrímaleiðina.“
MarÍn rut BEcH ingadóttir
17 ára NEMi
maður Dagsins
Á föstudag samþykkti ríkisstjórn-
in ellefu tillögur sem ég lagði fram
úr starfi sérstaks samstarfshóps átta
ráðuneyta sem á með öllum tiltæk-
um ráðum að vinna að því að skapa
störf og sporna gegn atvinnuleysi.
Einhugur var um það í stjórninni að
vinna að framgangi þessara tillagna
sem gætu skapað ríflega 4000 árs-
verk á næstunni. Verkefnin tengjast
fjölda stofnana, og byggja einnig á
hugmyndum sem við höfum sótt til
atvinnulífsins og verkalýðshreyfing-
arinnar. Þessi verkefni leysa síður en
svo öll vandamál dagsins. Þúsundir
ársverka skipta þó verulegu máli, og
þessi aðgerð sýnir að í erfiðri stöðu
þjóðarinnar leitar ríkisstjórnin allra
leiða til að draga úr atvinnuleysi.
Fleiri hugmyndir eru til skoðunar, og
samstarfshópurinn er síður en svo
hættur störfum.
Störfin eru af mjög margvíslegum
toga. Þau skapast í byggingariðnaði,
framkvæmdum við snjóflóðavarnir,
gróðursetningu, grisjun og stígagerð,
orkuviðhaldi og orkusparnaði, minni
útflutningi óunnins fiskjar, hækkun
endurgreiðslna vegna kvikmynda-
gerðar, þróunarverkefni í ferðaþjón-
ustu, frumkvöðlasetur í Reykjavík,
samstarfsverkefni iðnaðarráðuneyt-
isins og Atvinnuleysistrygginga-
sjóða um ráðningu sérfræðinga af
atvinnuleysiskrá til nýsköpunarfyri-
tækja, verulegar bætur á skattaum-
hverfi nýsköpunarfyrirtækja sem
gerir þeim kleift að láta innri vöxt og
fjölgun starfa verða á Íslandi, og einn
tillagan sem samþykkt var er um
fjölgun þeirra sem njóta listamanna-
launa. Þessi upptalning endurspegl-
ar breidd framtaksins, enda eru sem
fyrr segir átta af tólf ráðuneytum með
í þessu átaki gegn atvinnuleysi.
Frágangur og viðhald
Í Reykjavík blasa víða við fokheld-
ar glæsibyggingar sem áttu að hýsa
atvinnulíf í útþenslu. Hugvitsam-
ir byggingarmenn hafa bent á þjóð-
hagslega hagkvæmni þess að ljúka
þessum byggingum og koma þeim í
not. Ein leið til þess er að hraða út-
boði á leiguhúsnæði fyrir þær stofn-
anir ríkisins sem þegar hafa fengið
heimildir til þess á fjárlögum að ráð-
ast í úrbætur á sínum húsnæðismál-
um. Hér er um að ræða allmargar
stofnanir og vinna við frágang á hús-
næði fyrir þær myndi skapa um 750
ársverk. Útgjöldin fyrir ríkið koma
fram síðar í leiguverði en þýða ekki
bein útgjöld nú þegar. Það er mikil-
vægt atriði meðan verið er að vinna
niður fjárlagahalla. Breytingar á
fokheldu húsnæði eru mjög mann-
aflsfrekar, og hafa skjót áhrif til hins
betra á vinnumarkaði. Þetta er um
leið góð leið til þess að skapa veltu á
skeiði stöðnunar og samdráttar. Hið
sama má segja um hækkun á end-
urgreiðslu virðisaukaskatts vegna
vinnu á byggingarstað í 100% sem
nú er ákveðið að verði einnig látin ná
til sumarbústaða og bygginga sveit-
arfélaga. Rýmkun á reglum Íbúða-
lánasjóðs vegna viðhalds félagslegra
íbúða mun sömuleiðis skapa um-
talsverðan fjölda ársverka.
kvikmyndaverkefni
Það skiptir líka máli að ýta und-
ir fjölgun starfa í skapandi afþrey-
ingu og listum. Hækkun endur-
greiðslna vegna kvikmyndagerðar úr
14% í 20% gæti þýtt 120- 150 ársverk
í atvinnugrein sem skiptir máli á Ís-
landi. Þrjú stór kvikmyndaverkefni,
bandarísk víkingamynd í stjórn Balt-
asars, bresk-ástralska Toma verkefn-
ið og bresk sjónvarpsmynd BBC, eru
í burðarliðnum. Þau skapa grundvöll
fyrir íslensk kvikmyndateymi sem
geta síðan aflað fleiri verkefna á sviði
alþjóðlegrar auglýsinga- og heim-
ildamyndagerðar.
Hér hafa aðeins verið nefnd tvö
dæmi af mörgum sem ásamt íviln-
unum til rannsókna og fjárfestinga í
nýsköpun geta skipt verulegu máli í
atvinnusköpun á næstu mánuðum.
Samstarfshópur ráðuneytanna held-
ur áfram störfum, og þeim ellefu til-
lögum sem ríkisstjórnin samþykkti
um sköpun fjögur þúsund ársverka
á eftir að fjölga. Ég lít á það sem for-
gangsverkefni mitt sem ráðherra að
gera allt sem hægt er til að draga úr
því sem ég lít á sem mesta böl sér-
hvers manns – að hafa ekki atvinnu
fyrir hendur sínar og huga.
4000 ársverk gegn atvinnuleysi
kjallari
svona er íslanD
1 ungfrú heimur heit á bikiníi
– myndir
dayana Mendoza vakti gríðarlega mikla
athygli á Bahama-eyjum á dögunum.
2 Ætlar að selja glæsibílinn og
lækka laun
lúðvík lúðvíksson segir að sitt fyrsta verk,
nái hann kjöri, verði að lækka laun
formanns Vr og selja glæsibifreið Vr sem
borguð er af félagsmönnum.
3 Fall Straums vekur heimsat-
hygli
Viðskiptamiðlarnir Ft og Bloomberg
gerðu hrun straums að umtali á
heimasíðum sínum í gær.
4 „akandi tarzan“ í slæmum
málum – myndband
Myndband af 23 ára atvinnubílstjóra frá
rúmeníu, sem sýnir hann syngjandi og
dansandi undir stýri, lak til fjölmiðla.
5 jessica Simpson: aftur í
stuttbuxurnar frægu - myndir
söngkonan jessica simpson sætti mikilli
gagnrýni í fjölmiðlum vestanhafs í byrjun
árs vegna nokkurra aukakílóa.
6 rosario dawson stórglæsileg
leikkonan rosario dawson er glæsileg í
nýjasta tölublaði Complex á eggjandi
myndum í hinum ýmsu gervum.
7 kata klúðrar meikinu
leikkonan Catherine Zeta-jones mætti
til leiks á frumsýningu einleiks tengda-
föður síns, Kirks douglas, en leit út fyrir að
hafa farið offari í förðuninni.
mest lesið á dV.is
öSSur
SkarpHéðinSSon
iðnaðar- og utanríkis-
ráðherra skrifar
„Þetta er um leið góð
leið til þess að skapa
veltu á skeiði stöðnun-
ar og samdráttar. “