Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2009, Side 14
Svarthöfði er umburðarlyndur og tekur flestu fólki eins og það er. Undantekningarnar eru að-eins tvær, talandi hárgreiðslu-
fólk og leigubílstjórar. Svarthöfði veit
um fátt vandræðalegra og erfiðara en
að halda uppi vitrænum samræðum
þegar verið að að krukka í hári hans
með skærum og rakvélum. Ekkert
þykir Svarthöfða þó verra en að sitja
eins og dæmdur maður í leigubíl und-
ir látlausum kjaftavaðli leigubílstjóra.
Leigubílstjórar eru upp til hópa skrýtnar skrúfur sem aka sér í spikinu og vita allt um alla og kunna lausnir á öllum heims-
ins vandamálum. Ef þessi spekinga-
her hefði rödd sem heyrðist víðar en
í símatímum á Útvarpi sögu hefði
aldrei orðið neitt efnahagshrun hérna,
engin átök væru fyrir botni Miðjarð-
arhafs og deilur um ESB, krónuna,
lýðræðishalla, sukk og spillingu væru
óþarfar. Ef hægt væri að virkja þetta
dreifða og ósamstæða þjóðlagaþing á
hjólum myndu öll vandamál hverfa.
Þau kæmust einfaldlega ekki fyrir fyrir
öllum lausnunum sem leigubílstjór-
arnir hafa á færibandi.
Og þó. Lausnir leigubílstjóra geta nefnilega oft verið gerræðislegar, geggjaðar og stórvarasamar. Þannig
brá Svarthöfða illilega í brún þegar
hann las í DV í vikunni að geðstirð-
ur leigubílstjóri hefði rænt gömlum
manni sem ætlaði rétt að bregða sér
frá til þess að sækja peninga til þess
að greiða fargjaldið. Svarthöfði hefur
samt örlitla samúð með bílstjóran-
um enda vel þekkt í kreppu að fólk
reyni að snuða þá um greiðslu með
alls konar undanbrögðum og jafnvel
ofbeldi. En fyrr má nú aldeilis fyrrvera.
Hingað til hafa bílstjórnar látið sér
nægja að halda eftir persónuskilríkj-
um eða yfirhöfnum sem tryggingu en
nú er það nýjasta að leggjast hreinlega
í mannrán. Flytja svo misskilda far-
þegana út í óbyggðir og henda þeim
þar út.
Bílstjórinn er vitaskuld engu nær því að fá peninginn sinn með æfingum af þessu tagi en sálfsagt getur hann
sofið betur vitandi af skuldunautnum
í kuldalegri píslargöngu til manna-
byggða. Svarthöfði óttast fátt jafnofsa-
lega en einmitt að sitja fastur í leigubíl
með froðufellandi gamalmenni í yfir-
vigt sem felur skallann með derhúfu
og lætur dæluna ganga hraðar en
gjaldmælinn. Svarthöfði hefur nokkr-
um sinnum stokkið út úr leigubíl á
rauðu ljósi beint út í slagviðri til þess
eins að losna undan kjaftavaðlinum
inni í hlýjunni. En nú þorir maður
ekki fyrir sitt litla líf að taka taxa fram-
ar. Æsilegur flótti, jafnvel á ferð, virðist
ekki lengur vera inni í myndinni og
því ekki lengur óhætt að voga sér um
borð í leigubíl þar sem menn eru til
alls vísir. Svarthöfði getur bara ekki
hugsað þá hugsun til enda að vera
haldið í gíslingu í aftursæti leigubíls
undir stöðugum kjaftavaðli um allt
það sem skiptir engu máli í stóra sam-
henginu.
Fimmtudagur 2. apríl 200914 Umræða
Varúð: Taxi
svarthöfði
spurningin
„Já, það má
segja það. Ætli
þetta sé ekki
mesta
heppniskarfa
sem ég hef
skorað,“
svaraði Helgi
Jónas
Guðfinnsson
leikmaður
grindavíkur í
körfubolta.
Hann skoraði
ótrúlega
körfu frá
miðju fyrir
grindavík á
þriðjudagskvöldið þegar liðið skellti
Snæfelli 85-75. grindavík leikur því til
úrslita á móti Kr í iceland Express-
deildinni í körfubolta.
Var þeTTa floTTasTa
karfan þín?
sandkorn
n Framsóknarmenn eru nú
komnir í sókn til að tryggja hug-
myndum sínum um tuttugu
prósenta skuldaniðurfærslu
fylgi. Liður
í því er ítar-
legt mynd-
band sem
flokkurinn
hefur sett á
Youtube til
að kynna
málstað
sinn. Virðist
þar bæði spilað inn á skyndi-
lausnir og hræðsluáróður til að
fá fólk til fylgis hugmyndunum
sem Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður flokksins,
kynnti á sínum tíma en hafa
fengið misjafnar undirtekt-
ir. Helst er á myndbandinu að
skilja að lítið mál sé að fá erlenda
kröfuhafa til að samþykkja að
gefa eftir hluta af skuldum Ís-
lendinga og þannig færa niður
skuldirnar. Þannig megi bjarga
fjölda fólks frá gjaldþroti og öðr-
um þrengingum. Hinn valkost-
urinn, miðað við myndbandið,
virðist vera að allt að annað
hvert heimili fari á hausinn, fjöl-
skyldurnar fari á götuna og eig-
endur annarra húsa megi horfa
upp á algjört verðhrun.
n Nýjustu breytingar á gjaldeyris-
lögum Íslendinga hafa vissu-
lega vakið athygli. Kannski ekki
furða, enda
ekki á hverj-
um degi sem
borgarar í
sjálfstæðu
landi með
sjálfstæðan
gjaldmið-
il vakna við
það að það
sé ólöglegt að nota gjaldmið-
ilinn í viðskiptum við útlend-
inga. Þetta er þó raunin eftir
að Alþingi samþykkti neyðar-
lög Steingríms J. Sigfússonar
fjármálaráðherra. Grínast menn
nú með að fyrst búið er að stíga
fyrsta skrefið, að banna að taka
við krónum af útlendingum, sé
stutt í næsta skrefið, að banna
Íslendingum að nota krónuna í
viðskiptum sín á milli. En þá er
víst komið að nýjum gjaldmiðli.
n Sjálfstæðismenn stefna fram
íþróttahetjum á framboðslistum
sínum í Reykjavík fyrir komandi
þingkosn-
ingar. Pét-
ur Hafliði
Marteins-
son, fyrr-
verandi
leikmaður
landsliðsins,
Fram og KR
í fótbolta,
skipar níunda sætið á lista Sjálf-
stæðisflokksins norðan megin í
borginni. Í ellefta sætinu sunnan
megin er svo að finna Sigfús
Sigurðsson, eina af silfurhetj-
um handboltalandsliðsins frá
Peking. Báðir hafa gert það gott
í íþróttum en miðað við gengi
Sjálfstæðisflokksins í skoðana-
könnunum undanfarið þarf
sennilega mikið að gerast til að
báðir verði aðstoðarþingmenn
og jafnvel langsótt að annar nái
þeirri stöðu.
lyngHálS 5, 110 rEyKjavíK
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkvæmdaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur Helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.iS
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Ég er ekki sannfærður
um að hamborgarar séu
fitandi.”
n Tómas Tómasson, eigandi Hamborgarabúll-
unnar, sem hefur borðað í það minnsta einn
hamborgara á dag síðustu fimm árin. Hann sat
fyrir ber að ofan til að sanna mál sitt. –
Fréttablaðið
„Ef menn stjórna illa
endar það illa.“
n Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
um ástæðu þess hversu illa er komið fyrir
krónunni. Hann segir gjaldmiðilinn ekki ónýtan
og að hann verði hérna næstu árin, sama hvað
menn vilji gera í framhaldinu. – DV
„Þetta er lélegur
brandari.“
n Vésteinn Gauti Hauksson,
varaformaður Hagsmunasam-
taka heimilanna, segir að með nýrri
löggjöf um greiðsluaðlögun sé verið að slá ryki í
augu almennings. – DV
„...gefa okkur
pening!“
n Emilíana Torrini aðspurð í
viðtali við Laist í Los Angeles
hvað sé skylda að gera þegar maður
kemur til Íslands. – DV
„Warren Buffett.
Það er engin
spurning.“
n Margeir Pétursson,
stórmeistari í skák og formaður
stjórnar MP Banka, um hvor sé honum meiri
fyrirmynd, viðskiptajöfurinn Warren Buffett eða
skáksnillingurinn Garrí Kasparov. – DV
Skuldadagar
Leiðari
Lausnin á vanda Íslands er á sinn hátt mjög einföld. Rétt eins og maður sem hefur skuldsett sig um of þarf að afla meiri tekna og eyða
minna, þarf Ísland að flytja meira út og
minna inn. Allar aðgerðir yfirvalda ættu
að taka mið af þessu.
Þeir sem kvarta undan veikingu krón-
unnar horfa framhjá rót vandans. Gjald-
miðillinn er ekki vandamálið, heldur birt-
ingarmynd vandans. Þegar fjármagn flæðir
inn í landið í formi lána styrkist gjaldmið-
illinn tímabundið. Hann veikist aftur þeg-
ar borga þarf lánið til baka. Besta leiðin til
að styrkja gjaldmiðilinn er að flytja meira
út og minna inn og borga skuldirnar okkar.
Með öðrum orðum þurfum við að hegða
okkur skynsamlega í fjármálum, því orsök
vandræða okkar er hið gagnstæða, gamal-
dags heimska og ábyrgðarleysi.
Fall Íslands og yfirvofandi fall Banda-
ríkjanna er ekki „efnahagslegur hvirfilbyl-
ur“ eða aðrar náttúruhamfarir, heldur af-
leiðing mannanna verka. Valdatíð George
W. Bush einkenndist fyrst og fremst af
skeytingarleysi, sífelldri þjónkun í garð
moldríkra og stanslausri skuldsetningu
þjóðarinnar. Valdatíð Davíðs Oddssonar
og Geirs Haarde einkenndist af því sama,
en til viðbótar bættust staðfastlegar til-
raunir til að breiða yfir hinn raunverulega
vanda.
Vandi Bandaríkjanna og Íslands er
gríðarleg skuldsetning. Hérlendis kom-
ust bankarnir upp með að hneppa þjóð-
ina í skuldafjötra, vegna þess að þeir nutu
stuðnings íslenska ríkisins opinberlega.
Þeir höfðu hálfgerða ríkisábyrgð. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir og Geir Haarde
riðu um héruð til þess að halda blekk-
ingunni gangandi svo bankarnir fengju
áfram lán á fölskum forsendum. Þau litu á
það sem skyldu sína að blekkja heiminn til
þess að trúa á íslenska efnahagsviðundr-
ið og lána meiri peninga til landsins. En
of mikil skuldsetning var vandinn sjálfur.
Til að bjarga sér frá gagnrýni reyna þau
að varpa ábyrgðinni á alla aðra og jafn-
vel hluti sem eru ekki til, eins og „efna-
hagslega fellibylji“. Þegar allt kemur til alls
liggur ábyrgðin hjá stjórnmálamönnum.
Óábyrgir stjórnmálamenn eru óþarfir.
Stjórnmál blekkinga, kæruleysis og
heimsku tröllriðu Íslandi og Bandaríkj-
unum og afleiðing þess er gríðarleg skuld-
setning sem kemur í hlut ábyrgðarfulls
fólks að lagfæra. Það má ekki gleymast
að valdhafar á Íslandi og í Bandaríkjun-
um í dag hlutu skuldsetninguna í arf frá
ábyrgðarlausum forverum sínum. Engu
að síður er kæruleysi og gagnrýnisleysi
gagnvart valdhöfum ábyrgðarleysi af
hálfu almennings og fjölmiðla. Það verður
gerð meiri krafa til núverandi stjórnvalda
en þeirra fyrrverandi, vegna þess að þeir
fyrrverandi náðu að plata fólk með því að
taka góðærið að láni. Hver einasta aðgerð
stjórnvalda verður nú tekin til gagnrýn-
innar athugunar á mælikvarða almennrar
skynsemi. Sumum mun þykja nóg um nei-
kvæðnina, en tími áhyggju- og ábyrgðar-
leysis er liðinn. Nú eru skuldadagar.
Jón TrausTi reynisson riTsTJóri skrifar. Stjórnmál blekkinga, kæruleysis og heimsku tröllriðu Íslandi og Bandaríkjunum.
bókstafLega