Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2009, Page 22
Fimmtudagur 2. apríl 200922 Fólkið
Tónlistarmaðurinn Jonathan
Richman hélt tónleika á Rósen-
berg í gærkvöldi við mikinn fögn-
uð áhorfenda. Það seldist upp á
tónleika kappans á svipstundu,
en þeir sem ekki komust að í gær
fá tækifæri til að berja Richmann
augum í kvöld þar sem hann
hefur ákveðið að koma fram á
tónleikum í kosningamiðstöð VG
í Tryggvagötu. Bandaríski tón-
listamaðurinn mun koma fram
ásamt trommaranum Tommy
Larkin og spila fyrir áhorfendur
og söngkonan Ólöf Arnalds mun
hita upp. Tónleikarnir í kvöld
hefjast klukkan 21.30 og kostar
litlar 1.000 krónur inn.
DV sagði frá því í gær að stúlknasveitin breska
Girls Aloud væri á landinu og hygðist taka upp
hluta af nýju myndbandi í Officera-klúbbnum
á gamla herstöðvarsvæðinu á Vallarheiði í
kvöld. Hins vegar vantaði ungt fólk til að leika
í myndbandinu og því var boðað til opinn-
ar prufu í stúdíói Saga Film að Laugavegi 176
sem áttu að hefjast á hádegi í gær.
Ef einhver hefur ekki áttað sig á því enn var
um aprílgabb að ræða. Og það er skemmst frá
því að segja að lesendur voru ekki ginnkeypt-
ir fyrir þessu glensi blaðsins. Á meðan ljós-
myndari DV staldraði við fyrir utan húsakynni
Saga Film um og upp úr hádegi í gær kom í það
minnsta enginn til að taka þátt í „prufunni“.
Einar Bárðarson tók þátt í gabbinu með
blaðinu þar sem hann er bæði eigandi Conc-
ert sem rekur Officera-klúbbinn og var um-
boðsmaður hljómsveitarinnar Nylon sem
túraði með Girls Aloud fyrir nokkrum árum.
Aðspurður hvað klikkaði telur hann það hafa
verið launagreiðsluna, pundin 100, sem lof-
uð var þeim sem fengju hlutverk í mynd-
bandinu.
„Ég held að það hafi þurft meiri pening
í þetta. Þegar verið var að bera gabbið und-
ir mig talaði ég um að það þyrfti örugglega
svona 300 pund til að fá fólk í myndbandið. En
blaðamaðurinn var svo hógvær og vildi bara
100 pund. Money talks, bullshit walks,“ segir
Einar og hlær.
Þó fannst ein manneskja sem lét gabbast.
Ragnhildur Magnúsdóttir, útvarpskona á Létt-
Bylgjunni, hringdi í Einar í gærmorgun til að
falast eftir viðtali við stelpurnar í Girls Aloud.
Þegar DV hafði samband við Ragnhildi í gær-
dag vildi hún ekkert láta hafa eftir sér um mál-
ið.
kristjanh@dv.is
Richman
hjá VG
EKKI MARGIR GLEYPTU VIÐ APRÍLGABBI DV Í GÆR:
KiKi-Ow Og Atli sKemmtAnAlöggA:
Hljómsveitin Sigur Rós sló held-
ur betur á létta strengi í gær. Á
heimasíðu sveitarinnar mátti
finna nýja frétt þar sem sveitin
tilkynnir að Kjartan hafi verið
ráðinn til þess að semja og út-
setja fjögur lög fyrir stórsveitna
Coldplay. Auk þess mun Jónsi
flytja lag ásamt Chris Martin á
væntanlegri plötu bresku sveit-
arinnar. Sigur Rósar-menn kíktu
í stúdíó Coldplay á dögunum
þar sem Chris og Jónsi tóku
saman lagið. Kapparnir settu
einnig inn hlekk á Youtube frá
æfingunni. Þegar ýtt er á hlekk-
inn kemur upp svartur skjár þar
sem stendur „April´s Fool“. Síð-
an kemur upp spurning á skjá-
inn: „Hversu mörg ykkar féllu
fyrir þessu, í alvörunni?“
SiGuR RóS
GabbaR
„Ég og Curver höfum unnið hörðum
höndum síðastliðin þrjú ár við að
gera 90´s-partíkvöldin okkar að þeim
kvöldum sem þau eru í dag. Atli réð
okkur til þess að spila einu sinni hjá
sér og hann veit fullvel að 90s-partí-
kvöldið er okkar vörumerki, “ segir
Kitty Von Sometime sem er hluti af
plötusnúðateyminu Dj Kiki-Ow og
Dj Curver.
Forsaga málsins er sú að Atli
Rúnar Hermannsson, betur þekkt-
ur sem Atli skemmtanalögga, og Óli
Geir Jónsson, fyrrverandi herra Ís-
land, hafa staðið að 90´s-partíkvöld-
um undanfarna mánuði og á heima-
síðu þeirra 90s.is mátti meðal annars
finna lógó sem Kitty og Curver hafa
notað síðastliðin þrjú ár til að kynna
sín kvöld, broskall með lepp.
„Þetta snýst ekki um að við séum
að eigna okkur næntís tónlist, en við
höfum unnið mjög hörðum hönd-
um að því að byggja upp flottan orð-
stír með okkar kvöldum. Við byrjuð-
um að spila á litlum skemmtistöðum
til þess að geta spilað fyrir húsfylli á
NASA,“ segir Kitty og bætir við: „Ef
þeir myndu bara setja nöfnin sín
stórletruð á plaggötin, bara svo að
þeir að- skilji sig frá
okk-
ar kvöldi, værum við sátt.
Ég er kannski bara svolítið bresk,
en mér finnst þetta dónalegt, sér-
staklega ljósi þess að Atli réð okkur til
þess að spila á 90s-kvöldi fyrir hann
á sínum tíma.“ Curver og Kitty höfðu
samband við Atla og báðu hann um
að fjarlægja lógóið þeirra af síðunni
og breyta nafninu á kvöldinu í eitt-
hvað annað. Því var síðar breytt í 90´s
Night sem Kitty er ekki par sátt við.
„Þetta er svo lítil breyting. Þeir
settu sólgleraugu á broskarlinn
og lítillega breyttu nafninu á
kvöldinu. Þeir mega spila eins
mikið og þeir vilja svo lengi sem
fólkið sem ræður þá til sín og
fólkið sem kaupir miða á þeirra
kvöld, viti að þeir haldi þetta
kvöld, ekki ég og Curver,“ segir
Kitty. „Ég er oft ráðin til að spila
á böllum fyrir skóla eða fyrir-
tæki út á 90s-partíin okkar og
ég vil ekki
að það sé
verið að
blekkja
þau.“
Atli
Þór segist
ekki skilja
fárið í
kringum
90s-kvöldin hans. „Ég kannast aðeins
við Curver og hef ekkert upp á hann
að klaga nema hvað þau hringdu í
mig fyrir nokkru út af því að við not-
uðum sama lógó og þau á síðunni
okkar. Ég baðst strax afsökunar, vissi
hreinlega ekki að við værum að nota
þetta lógó. Ég hringdi um hæl í graf-
íska hönnuðinn minn og lét breyta
því. Síðan kom í ljós að þau voru
ósátt við að við notuðum nafnið 90´s-
partí, ég bakkaði með það líka og
nota núna nafnið 90´s-kvöld, “ segir
Atli. „Þau hafa sak-
að mig um að fara
inn á þeirra svæði,
en Curver býr í
New York og Kitty
er ófrísk þannig að
ég er ekki að taka
neinn bissness af
þeim. Þau eru ekki
starfandi í dag.“
Atli tekur það fram að 90´s-kvöld
séu haldin um land allt. „Skemmti-
staðurinn 800 mun halda sitt eigið
90´s-kvöld um helgina. Það er algjör-
lega ótengt mér og Óla eða Curver og
Kitty. Mér finnst þetta svo kjánalegt
að eigna sér eitthvert partí. Má bara
Skímó spila cover-lög en ekki Á móti
sól? Ég hef lagt mikið upp úr því að
leysa þetta á farsælan og góðan hátt
og ég hef gengið að öllum þeirra
kröfum.“
hanna@dv.is
DEiLa um tÍunDa
áRatuGinn
Kiki-Ow og Curver Hafa
haldið heljarinnar 90´s-
kvöld síðastliðin þrjú ár.
Broskarlinn frægi
Sem Kiki-Ow og
Curver hafa notast við.
Atli Rúnar Hermannsson
Skilur ekki að hægt sé að
eigna sér partíkvöld.
Heimasíðan Hér
sést broskarl atla.
„Þurfti meiri pening“
Girls Aloud
Ekki enn orðnar
„íslandsvinir“.