Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2009, Side 14
Svarthöfði hefur beðið ógnar-spenntur eftir hinni vígalegu skjaldborg sem átti að verja heimili hans fyrir efnahags-
hruninu, sem hann sjálfur er saklaus
af eins og flestir samlandar hans.
Fyrst heyrðist af skjaldborginni þeg-
ar Samfylkingin og Sjálfstæðisflokk-
urinn höfðu rústað efnahagslífinu,
eins og leigubílstjóri sem keyrir um
á cruise control með lokuð augun.
Það gleymdist að kaskótryggja bíl-
inn, hann var ástandsskoðaður af
fúskara og bílstjórinn var ölvaður.
Svarthöfði var farþegi í slysinu, en
borgar bæði farið og viðgerðina.
Þegar Jóhanna Sigurðardóttir var gerð „verkstjóri“ ríkis-stjórnarinnar 1. febrúar síð-astliðinn nefndi hún tvennt
í upphafi. Að koma atvinnulífinu í
gang aftur og „að slá skjaldborg um
heimilin og tryggja betur öryggisnet-
ið í kringum heimilin í landinu“.
Hvar er þessi skjaldborg og hverjir eru í henni? Svart-höfði hefur ekki séð hana. Hins vegar varð Svart-
höfði þess áskynja að örugga, verð-
tryggða húsnæðislánið hans hjá rík-
isbankanum hækkaði um 20 prósent
síðasta árið. Svo rak hann augun í
það að verðið á fasteigninni hans
er í frjálsu falli. Það fór niður um 4
prósent á einum mánuði. Þar fór
meira en milljón á einum mánuði úr
ævisparnaði Svarthöfða, minnst 33
þúsund krónur á dag. Fyrir þá upp-
hæð hefði Svarthöfði geta búið eins
og greifi á Hilton-hótelinu í Reykja-
vík í svokölluðu „Queen Executive
Room Plus“.
Og hvar var þessi skjaldborg þegar bankinn tók fimm milljónir af ævisparnaði Svarthöfða í fyrra? Það
verður ekki betur séð en að skjald-
borgin sé á vegum þeirra hina sömu
og skjaldborgin á að verja okkur
gegn. Það voru bankar í eigu skjald-
borgarinnar sem tóku peninginn af
Svarthöfða og samlöndum.
Talsmenn skjaldborgarinn-ar segja að hún ætli ekki að láta Svarthöfða deyja fjár-hagslegum drottni sínum
(sem er reyndar skjaldborgin sjálf).
Enda kæmi það illa út fyrir blessaða
skjaldborgina ef Svarthöfði öðlað-
ist þá frelsun að verða gjaldþrota og
losna við heimilið, sem hann getur
ekki selt og sem hann skuldar meira
í en hann á. Það eina sem skjald-
borgin gerir er að tryggja hagsmuni
óvina heimilanna. Svarthöfði er far-
inn að halda að skjaldborgin sé ekki
þarna til að verja hann, heldur til að
halda honum föngnum í skulda-
fangelsi.
Nú þegar skjaldborgin held-ur Svarthöfða og samlönd-um hans kyrfilega föstum í fjárhagslegum hlekkj-
um segist hún ætla að lækka laun
sem eru yfir 300 þúsund krónum.
Og hækka skattana í desert. Hvers
vegna snýr skjaldborgin skjöldun-
um að Svarthöfða og stingur í hann
spjótum sínum? Skjaldborgin er
óvinurinn sjálfur!
mánudagur 20. apríl 200914 Umræða
Skjaldborg jóhönnu
gegn heimilunum
svarthöfði
spurningin
„Sjaldan er góð
hnísa of oft
kveðin,“ segir
Hafsteinn
Gunnar
Hauksson,
ræðumaður
íslands og
stuðningsmaður
ræðuliðs
Verzlunarskóla íslands sem sigraði
ræðulið Fjölbrautaskóla Suðurnesja á
föstudaginn. nokkrum dögum fyrir
úrslitakeppnina rak hval upp að
anddyri Verzlunarskólans. Svokölluð
stríðsnefnd Fjölbrautaskóla Suður-
nesja stóð fyrir grikknum á skólalóð
Verzló en ásamt hnísunni var búið að
búa til þyrlupall á bílastæði Verzlinga.
Voru þeir Sem
hValir á þurru
landi?
sandkorn
n Sjálfstæðisflokkur Bjarna
Benediktssonar er rótklofinn
um Evrópumálin og stjórnar-
skrármálið og talsverður at-
gervisflótti er í gangi. Þau tíð-
indi urðu í
síðustu viku
að einn úr
kjarnafylgi
flokksins,
Bjarni Kjart-
ansson sem
gjarnan kall-
ar sig Mið-
bæjaríhald-
ið, kvaddi með hurðarskelli.
Ástæða liðhlaupsins er sú að
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
stóðu í vegi fyrir þeirri stjórnar-
skrárbreytingu að auðlindirnar
yrðu skilgreindar í þjóðareign.
Bjarni mun ekki geta hugsað
sér að styðja flokk sægreifanna.
n Sjálfstæðismenn fara mik-
inn þessa dagana í botnbar-
áttu sinni. Línan sem gefin er
út er sú að ná upp fylginu um
1 prósentustig á dag í þeirri
von að slefa í 30 prósenta fylgi.
Flokkurinn er víða í djúpri
lægð en þó vísast hvergi eins
og í Norðvesturkjördæmi þar
sem hann vermir fjórða sætið í
könnun Capacent og er örfáum
prósentustigum yfir Frjálslynda
flokknum. Það er því ekki að sjá
sem Snæfellingurinn Ásbjörn
Óttarsson nái að laða fylgið að.
n Aftur á móti mega vinstri
grænir vel við una miðað við
sömu könnun sem sýnir að
þeir eru stærstir í kjördæminu
með rúmlega 25 prósentustig.
Jón Bjarna-
son, oddviti
VG, virðist
þannig vera
að rokka
í kjör-
dæminu.
Framsókn-
arflokkur-
inn með
Guðmund Steingrímsson
Hermannssonar í öðru sætinu
má einnig vel við una en hann
fær rúmlega 18 prósentustig
sem gæti orðið til þess að hinn
ágæti afkomandi gömlu for-
ystunnar næði inn sem upp-
bótarmaður.
n Páll Magnússon, útvarps-
stjóri og fyrrverandi talsmað-
ur Decode, lætur engan eiga
neitt inni hjá sér. Morgunblað-
ið, sem fékk
3000 millj-
ónir að gjöf
frá almenn-
ingi, reifaði
óráðsíu í
rekstri Rík-
isútvarps-
ins í leiðara
og fékk
andsvar Páls þar sem útvarps-
stjórinn andmælir skoðun
Moggamanna en gefur þeim
síðan á baukinn og frábiður
sér kennslu Morgunblaðsins í
rekstrarfræðum. „Ég vona þó
að mér verði virt til vorkunn-
ar að þann lærdóm treysti ég
mér ekki til að sækja í smiðju
þeirra sem hafa stjórnað Morg-
unblaðinu og Árvakri síðustu
árin,“ skrifaði Páll.
lynghálS 5, 110 reykjaVík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn loftsson
framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dV.iS
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dV. Prentvinnsla: landsprent. dreifing: árvakur.
dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Hann sagði við
mig að ég „gengi
með þeim dökka“.“
n Svala Guðbjörg Jóhannesdóttir, fyrrverandi
eiginkona Herberts Guðmundssonar, um að hún
hafi vaknað á nóttunni þar sem Herbert stóð yfir
henni að signa sig og fara með bænir. - Vikan
„Það má búast við betri
tilburðum heldur en í
þeim sóðalega fúkyrða-
flaumi sem er í lands-
pólitíkinni.“
n Kristinn Hrafnsson um formannsslag sinn og
Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur í Blaðamannafélagi
Íslands. - DV
„... sat ég grátandi í
sófanum eima.“
n Sölvi Tryggvason
klukkustund áður en hann átti
að taka viðtal við forsætisráð-
herra. Hann var að ganga í gegnum
sambandsslit og erfiða tíma en tók sig saman í
andlitinu og kláraði viðtalið með stæl. - DV
„Ég hélt það
yrðu meiri læti.“
n Þorfinnur Guðnason, leikstjóri Draumalands-
ins, um viðbrögð fólks við myndinni sem málar
svarta mynd af stóriðjustefnu íslenska ríkisins
undanfarin ár. - DV
„ESB tekur ekki af
okkur valdið til þess
að kjósa fífl yfir okkur.“
n Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingar-
innar, sem uppskar mikla gagnrýni fyrir orð sín á
framboðsfundi flokkanna í Suðvesturkjördæmi. -
visir.is
Kosið um ekkert
Leiðari
Eftir fimm daga verður kosið án þess að raunveruleg, almenn umræða hafi farið fram um nokkurn skap-aðan hlut. Fram að þessu hefur um-
ræðan snúist um styrki stjórnmálaflokka
sem hafa yfirskyggt alla efnislega umræðu.
Önnur umræða sem snýr að framtíðinni er
á yfirborðskenndum nótum. Átök um aðild
að Evrópusambandinu snúast um tilfinn-
ingar en ekki rök. Umræðan er óupplýst og
gjarnan byggð á stækri þjóðernishyggju og
sumpart þekkingarleysi. Algjörlega vantar
að ræða um tap eða ávinning þess að ganga
í bandalag Evrópuþjóða. Enginn fæst til að
teikna kalt og yfirvegað upp kosti þess og
ókosti að verða órofa hluti Evrópuþjóðanna.
Upphrópanir bergmála í stað vitrænnar um-
ræðu. Sama er uppi á teningnum varðandi
raunverulega skuldastöðu Íslands og hvern-
ig eigi að bregðast við henni. Himinn og haf
skilur að upplýsingar um hæstu og lægstu
skuldatölur lýðveldisins. Ný ríkisstjórn hef-
ur ekki komið böndum á krónuna sem er í
frjálsu falli þrátt fyrir handstýringu. Enginn
virðist hafa hugmyndir eða vilja til að leysa
þann vanda sem vofir yfir vegna Jöklabréf-
anna. Vonir um jafnvægi í peningamálum
hafa brugðist og heimilin sökkva stöðugt
dýpra í skuldafen. Draumar um stjórnlaga-
þing eru brostnir.
Fá raunveruleg úrræði eru uppi á borð-
um varðandi lausnir gegn kreppunni
eða líknandi aðgerðir fyrir almenn-
ing. Sumir boða skattahækkanir án
þess að tilgreina nákvæmlega hverjar.
Aðrir þvertaka fyrir slíkar hækkanir
en boða skuldaniðurfellingu fyrir fólk
og fyrirtæki. Fræðimenn innan flokk-
anna eru gjörsamlega á öndverðri
skoðun hvað varðar möguleika þess
að lækka skuldir þeirra sem blekkt-
ir voru til að kaupa húsnæði á upp-
gangstímum. Það ástand sem uppi
er í aðdraganda kosninganna er skýr
vísbending um að stjórnmálamenn
viti ekki sitt rjúkandi ráð. Það er
ekki nóg að gera upp við Sjálfstæð-
isflokkinn og koma honum form-
lega frá völdum. Þeir sem taka við verða að
láta af hefðbundnu lýðskrumi og sinna þeirri
skyldu sinni að vinna að þjóðarhag. Aðild að
Evrópusambandinu gæti orðið til góðs að því
leyti að þar með færðist stór hluti hagstjórn-
arinnar úr landi og úr höndum skussanna
sem rústuðu þjóðarhag. Ísland hefur hvorki
mannauð né þroska til að standa á
eigin fótum þegar litið er til
peningamála og hag-
stjórnar. Verkin
sýna merkin.
reynir TrauSTaSon riTSTjóri Skrifar. Upphrópanir bergmála í stað vitrænnar umræðu.
bókstafLega