Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2009, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2009, Blaðsíða 2
Þriðjudagur 19. maí 20092 Fréttir Íslandsbanki hefur leyst til sín 42 pró- sent hlutafjár 20 hluthafa Icelandair með veðköllum. Stærstu hluthafarn- ir sem um ræðir eru Fjárfestingafé- lagið Máttur og eignarhaldsfélagið Naust ehf. Máttur átti rúm 23 prósent í Icelandair en Naust átti tæp 15 pró- sent. Eftir yfirtöku bréfanna er Íslands- banki, og þar með íslenska ríkið, orð- inn langstærsti einstaki hluthafi Ice- landair með 47 prósenta eignarhluta, en fyrir átti bankinn fimm prósenta hlut í félaginu. Í tilkynningu frá Íslandsbanka kemur fram að veðköllin muni ekki hafa nein áhrif á starfsemi Icelandair en líklegt þykir að bankinn muni selja hlutinn við fyrsta tækifæri. Lánveitingar veittar þegar Karl og Einar voru ráðandi í Glitni Lánveitingarnar fyrir hlutum Mátt- ar og Nausts í Icelandair áttu sér stað árið 2006 og 2007 þegar Einar Sveinsson var stjórnarformaður og einn stærsti hlut- hafi Glitnis, nú Íslands- banka. Einar var þá aðaleigandi í eignar- haldsfélaginu Nausti, en bróðir hans Benedikt var þar einnig hluthafi, og stærsti einstaki hluthaf- inn í eignarhaldsfélag- inu Hrómundi sem var skráður eigandi tæplega 32 prósenta hlutar í Ice- landair. Einar var jafnframt stjórnarformaður Icelandair þar til í byrjun mars á þessu ári. Stærsti eigandi Icelandair, með 50 prósenta eignarhlut, var hins vegar félagið SJ2 sem er í eigu Mil- estone, félags Karls Wernerssonar, sem var stór hluthafi og varaformað- ur stjórnar Glitnis á þeim tíma þeg- ar lánveitingarnar vegna kaupanna í Icelandair áttu sér stað. Lánuðu sjálfum sér Veðköllin sem Íslandsbanki gerði í hlutabréf Icelandair í gær eru því tilkomin vegna lána sem forsvars- menn félaganna sem áttu bréfin veittu sínum eigin félögum og fé- lögum tengdum sér þegar þeir voru stórir hluthafar í Glitni. Lánveiting- arnar til félaganna tveggja munu hlaupa á tugum milljarða króna samkvæmt heimildum DV en ná- kvæm lánsupphæð fæst ekki upp- gefin hjá Glitni. Veðin fyrir lánun- um sem notuð voru til að kaupa hlutina í Icelandair voru í hluta- bréfunum sjálfum. Ástæðan fyrir því að Íslands- banki leysir bréfin til sín nú er að ónógar tryggingar voru fyrir lán- unum vegna hlutafjárkaupanna og forsvarsmenn félaganna höfðu ekki getað lagt fram frekari tryggingar fyrir þeim. Eins og í svo mörgum öðrum tilfellum úr íslensku viðskiptalífi á síðustu árum voru forsvarsmenn og eigendur þeirra félaga sem tóku lán- in til að fjármagna hlutabréfakaup- in ekki í persónulegum ábyrgðum fyrir þeim og ganga því skuldlausir út úr hlutahafahópi Icelandair. Landsbankinn mun líklega leysa til sín bréf Langflugs Með veðköllunum er íslenska ríkið orðið ráðandi í félaginu, eins og áður segir, en næststærsti hluthafinn í Ice- landair er Langflug, fjárfestingafé- lag sem er að tveimur þriðju hlutum í eigu Finns Ingólfssonar. En félag- ið stendur illa um þessar mundir og nema skuldir þess umfram eignir um 30 milljörðum króna. Aðspurður hvort Landsbankinn, stærsti lánveitandi Langflugs, muni leysa til sín hlut félagsins á næstunni segir Finnur að Langflug eigi í erfið- leikum eins og svo mörg önnur fjár- festingafélög. Hann segist ekki vita hvenær það komi í ljós hvort bank- inn muni leysa hlut félagsins til sín. „Ég get ekkert sagt til um það á þess- ari stundu,“ segir Finnur en heimild- ir DV herma að Landsbankinn muni leysa bréf Langflugs til sín á næst- unni. Ástæðan er sú að félagið hef- ur ekki orðið við kalli bankans um að leggja fram frekari frekari trygg- ingar fyrir útistandandi láni félagsins sem notað var til að fjármagna kaup- in í Icelandair en veðin fyrir kaupum Langflugs á bréfunum í Icelandair voru í bréfunum sjálfum. Áhrif veðkallanna Áhrifin sem innkall bréfanna í Ice- landair munu hafa eru að nær öruggt þykir að Gunnlaugur Sigmundsson muni láta af stjórnarformennsku í fé- laginu, en hann átti tveggja prósenta hlut í því auk þess sem Einar Sveins- son mun ekki sitja áfram í stjórn þess sem varaformaður. Samkvæmt upp- lýsingum frá Hjördísi Vilhjálmsdótt- ur, ráðgjafa Steingríms J. Sigfússon- ar fjármálaráðherra, mun bankinn, en ekki hið opinbera, alfarið ákveða hvernig brugðist verður við veðköll- unum, meðal annars hvaða áhrif þau munu hafa á starfsemi Icelandair. Það verður því í höndum bankans að finna nýja stjórnarmenn. Einnig er spurning hvaða áhrif veðköllin munu hafa fyrir rekst- ur olíufélagsins N1 en það er í eigu eignarhaldsfélagsins BNT en stærsti hluthafi þess er Máttur, með 29 pró- senta eignarhluta. BNT átti auk þess tæplega 50 prósenta hlut í BNT. N1 stendur ekki vel um þessar mund- ir og tapaði félagið rúmum millj- arði króna á síðasta ári og námu skuldir þess um 19 milljörð- um samkvæmt ársreikn- ingi þess árið 2008. Hermann Sævar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri BNT og N1, segir að atburð- ir gærdagsins muni ekki hafa áhrif á rekstur N1. Hann segir að N1 hafi lagt fram hluta- fé í Naust á sínum tíma en að InGI F. VILhjÁLmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is LÁNUÐU SJÁLFUM SÉR TIL AÐ KAUPA Í ICELANDAIR Íslandsbanki hefur leyst til sín hlutabréf 20 hluthafa í Icelandair með veðköllum. Veðköllin hafa ekki áhrif á starfsemi Icelandair. Þar af eru hlutabréf sem voru í eigu eignarhaldsfélaga Karls Wernerssonar og Einars sveinssonar sem lánuðu eigin félögum milljarða til að kaupa hlutina þegar þeir áttu Íslandsbanka. Finnur Ingólfsson segir Langflug standa illa en að óvíst sé hvort eða hvenær Landsbankinn muni leysa til sín hlut félagsins í Icelandair. Ríkið gæti orðið um 80 prósenta eigandi í Icelandair. FImm stærstu núVErandI hLuthaFar í IcELandaIr: íslandsbanki hf. um 47% Langflug ehf. 23,83% Sparisjóðabanki íslands hf. 9,36% alnus ehf. 3,30% icelandair group hf. 2,55% „Ég get ekkert sagt til um það á þessari stundu.“ hættir nær örugglega í stjórn Einar Sveinsson mun nær örugg- lega hætta í stjórn icelandair eftir atburði gærdagsins en hann var stór hluthafi í félaginu í gegnum eignarhaldsfélögin Naust og mátt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.