Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2009, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2009, Blaðsíða 14
Þriðjudagur 19. maí 200914 Umræða Norska plottið svarthöfði spurningin „Ég var að reyna að hafa lappirnar niðri á jörðinni eftir vonbrigði fyrri ára. Það er búið að tala svo vel um íslenska lagið svo oft. Svo vöknum við oft við vondan draum þegar stigagjöfin hefst,“ seg- ir Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður aðspurður um spá sína í Kastljósinu á föstudag. Þar sagði hann að allt fyrir ofan 10. sæti væri bónus. Varstu ekki heldur sVartsýNN? sandkorn n Sigurður Einarsson, fyrrver- andi stjórnarformaður Kaup- þings, á ekki sjö dagana sæla. Hann dvelur í London við að vísu góðan kost en á Íslandi nýtur hann lítill- ar virðing- ar. Meðan bólan stóð sem hæst heiðraði Ól- afur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, útrás- arvíkinginn með fálkaorðunni. Rökstuðningurinn var að sjálf- sögðu sá að undir hans stjórn hefði Kaupþing unnið stóra sigra erlendis. Eftir hrunið hafa komið upp raddir um að Sigurður eigi að skila orðunni. Þetta þvertek- ur hann fyrir í samtali við Séð og Heyrt og heldur orðunni. n Árangur Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur í Evróvisjón hef- ur gefið þjóðinni góða hvíld frá kreppunni og öllum þeim þyngslum sem fylgja. Silfur- verðlaun á heimsvísu urðu til þess að forseti Íslands veitti handbolta- liði Íslands á Ólympíuleikunum fálkaorður. Nú hafa komið upp raddir um að Jóhanna Guðrún og lagahöf- undurinn Óskar Páll Sveinsson eigi að fá þann sama heiður. Enn bólar þó ekkert á viðurkenningu forsetans hvað sem síðar verður. n Íslenska handboltaliðið fékk sínar orður strax við heimkom- una frá Kína. Fræg var uppá- koman í miðborg Reykjavíkur þegar forsetinn, borgarstjórinn í Reykjavík og lunginn úr ríkis- stjórn Íslands stilltu sér upp á sviði framan við mannfjöldann og dilluðu sér í takt við fagnaðar- söngva. Þegar Jóhanna Guðrún kom var öllu minna umstang. Páll Óskar spilaði gömul Evró- visjónlög og kastaði fram fróð- leiksmolum. Jóhanna birtist síð- an í mýflugumynd en síðan datt út hljóðið í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Uppákoman varð því dulítið pínleg. n Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, er atvinnulaus eftir að nýtt þing var kosið. Björn er annálað- ur dugn- aðarforkur og honum fallast því ekki hendur þótt á móti blási um stundarsak- ir. Nú unir hann glaður við sveitastörf á sumaróðali sínu í Fljótshlíð. Og hann er meðal þeirra fyrstu til að hefja slátt eins og fram kem- ur á bloggi hans: „Grassprett- an er svo mikil í garðblettin- um mínum hér í Fljótshlíðinni, að ég ákvað að slá í dag, enda hafði ég endurnýjað rafgeymi sláttutraktorsins. Veðurblíðan er einstök.“ LyngháLs 5, 110 reyKjavíK Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Við finnum ekki frið í hjörtum okkar fyrr en réttlætið sigrar.“ n Segir á Facebook-síðu sem hefur verið stofnuð til að hvetja íslensk stjórnvöld til að beita sér í máli Hrafnhildar Lilju Georgsdóttur. Rannsókn í Dómeníska lýðveldinu hefur verið hætt án nokkurrar niðurstöðu. - DV.is „Ég ætla að sofa út á morgun.“ n Jóhanna Guðrún Jónsdóttir um hvað taki við hjá henni næstu daga eftir að hafa lent í öðru sæti í Eurovision á laugardaginn. - DV.is „Mann langar bara til að klípa í nefið á honum, og hrista hann.“ n Páll Óskar Hjálmtýsson um norska flytjandann Alexander Rybak. Hann segir krækjuna í lagi hans, fiðluleikinn, hafa gert gæfumuninn fyrir Norðmenn. - Morgunblaðið „Það er kannski svolítið grodd- aralegt.“ n Sverrir Þór Sverrisson um framleiðslufyrirtæki sem hann var að stofna í kringum barnamynd sem er í vinnslu. Fyrirtækið heitir Sveppasýking. - Fréttablaðið „Þessi byrjun er lyginni líkust.“ n Bjarni Jóhannsson, þjálfari nýliða Stjörnunnar í Pepsi-deildinni. Liðið er á toppnum eftir þrjár umferðir og hefur skorað 12 mörk í leikjunum. - Morgunblaðið Börn í sykurbrunni Leiðari Ögmundur Jónasson heil-brigðisráðherra hefur boðað að hann hyggist leggja skatta á sykurvör- ur. Hvatinn að skattlagningunni er sú staðreynd að íslensk börn þjást vegna þess að foreldrar þeirra hafa ekki efni á að senda þau til tann- læknis. Það er auðvitað skelfilegt að þjóð sem mörg undanfarin ár lifði góðæri skuli ekki hafa séð sóma sinn í því að allir nytu sömu þjón- ustu hvað varðar tannheilsu. Þetta undirstrikar í raun hvernig samfé- lag græðgi og annarrar auðhyggju mismunaði þegnum sínum. Það er virðingarvert af heilbrigðisráðherr- anum að vilja leggja sitt lóð á vog- arskálarnar til að bjarga tannheilsu barna. En hugmyndin um skattlagningu er ekki endilega sú lausn sem dugir. Ráðherr- ann þarf að hugsa málið til enda. Hvaða áhrif hefur skattlagning sykurvaranna á vísitölur sem nú þegar eru að hengja hinn venjulega Íslending? Er kreppan tíminn til að taka á svona málum? Stundum er sagt að sykur sé munaður fátæka fólksins. Væri ekki nær að móta heildstæða stefnu sem beint væri gegn offitu og tannskemmdum og tæki á öllum vandamálum tengdum óhollustu? Væri ekki ráð fyrir Ögmund að tryggja öllum Íslendingum lág- marks tannlæknaþjónustu? Þar yrði ekki skilið á milli þeirrar þjónustu og ann- arrar læknisþjónustu. Ráð- herrann mætti þannig líta til verðlagningar tannlækna og taka á þeim málum. Skattar á neyslu geta verið ágætt úr- ræði í einhverjum tilvikum. Það er út af fyrir sig virðing- arverð viðleitni ráðherrans að vilja byrgja sykurbrunn- inn áður en börnin detta ofan í hann. Vandinn er hins vegar að þegar ösla þúsund- ir barna með tannpínu um í sykurleðjunni. Þeim þarf að hjálpa samhliða fyrirbyggjandi aðgerð- um. Ríkisstjórn sem kennir sig við jöfnuð og velferð þarf að standa undir nafni og tryggja þeim minnstu í samfélaginu þjónustu til jafns við hina efnameiri. reyNir traustasoN ritstjóri skrifar: Ráðherrann þarf að hugsa málið til enda. bókstafLega Svarthöfði er vel lesinn í heim-speki lífs og dauða og er löngu kominn handan góðs og ills í lífsskilningi sínum. Svarthöfði veit því að sú tilhneiging að flokka fólk ýmist í gott eða illt er meira en úrelt. Hún hefur einfaldlega aldrei átt við vegna þess að fólk er hvorki gott né illt. Fólk er annaðhvort leiðinlegt eða skemmtilegt og þess vegna hefur Svart- höfði frá blautu barnsbeini haft illan bifur á Norðmönnum. Þeir eru ekkert endilega vondir en almannarómur um alla álfuna og langt út fyrir hana segir að Norðmenn séu allra þjóða leiðin- legastir. Þar með er auðvitað sjálfgefið að þeir eru alger andstæða Íslendinga sem eru allra þjóða skemmtilegastir, ósvífnastir, áræðnastir og áhættusækn- astir á meðan Norðmenn eru varkárir, kurteisir og áhættufælnir. Þessi munur kristallast meðal annars í meðferð þessara þjóða á auðlindum sínum. Íslendingar eru nú þegar byrjaðir að spandera olíugróðanum sínum í huganum löngu áður en ein- um einasta dropa hefur verið pump- að upp á Drekasvæðinu. Norðmenn eru hins vegar svo miklar kellingar að þeir hafa alla tíð lagt olíugróðann sinn inn á bankabók í einhvern olíusjóð. Sjóð sem er nú svo digur að Norð- menn þurfa ekki að hafa áhyggjur af heimskreppunni. Er nokkur furða að við skulum hafa sagt skilið við þessa sparigrísi á sínum tíma og sest að hér á Klakanum? Norðmenn hafa aldrei fyrir- gefið forfeðr- um okkar sem höfðu vit á því að stinga af úr leiðindunum. Þess vegna eru Norsararnir alltaf eitthvað að plotta gegn okkur. Þeir þreyttust ekki á að bögga okkur í Smugunni og stálu nú síðast af okkur sigrinum í Eurovision. Verst bara að Íslendingar eru svo vit- lausir og ægilega ánægðir með annað sætið að þeir samgleðjast „frænd- um vorum“ í stað þess að kæra það til æðstu dómstóla að Norsarar hafi teflt fram sykursætum Hvít-Rússa til að hafa sigurinn af Jóhönnu okkar. Svarthöfði skilur ekkert í því að helmingur þjóðarinnar sé skjálfandi á beinunum yfir Evrópusambandinu og telji okkur betur borgið í örmum þessarar leiðindaþjóðar. Norðmenn eru búnir að koma sínum manni fyrir í Seðla- bankanum og ásælast nú olíuna sem við eigum kannski á Drekasvæðinu og fólki finnst það bara í góðu lagi. Samt stafar okkur miklu meiri hætta af frændunum sem eru alltaf frændum verstir en bákninu í Brussel. Norð- menn hafa reynt að planta flugumönn- um sínum á Íslandi á sama hátt og hryðjuverkamenn gera sitt sjálfsmorð- sárásalið út og láta aðlagast vestræn- um samfélögum. Síðan spretta þeir upp þegar síst skyldi og gera óskunda. Þessa hugmyndafræði hafa Norðmenn virkjað á Íslandi og allt hlýtur þetta að miðast að því að ná okkur aftur undir stjórn konungs. En sagan er ekki öll sögð og Svarthöfði fékk hland fyrir hjart- að um helgina þegar hann las einlæga játn- ingu sjónvarpsmannsins ástsæla Egils Helgasonar á bloggi hans. Þar upplýsti Egill að hann væri 1/4 Norðmaður!!! Maðurinn sem mótar og stýrir allri þjóðmálaumræðu í landinu er Norsari. Í ljósi þessa veit Svarthöfði nú að Agli gekk ekki bara gott eitt til þegar hann seldi íslenskum stjórnvöldum hina hálfnorsku Evu Joly til þess að gramsa í bókhaldi útrásarmannanna okkar. Þetta er bara enn einn liður í norska plottinu gekk Davíð Oddssyni sem hef- ur í aðmírálsdressi Hannesar Hafstein barist gegn þessu samsæri með heima- stjórnarhirð sinni. Hingað til hefur Svarthöfði verið temmilega rólegur gagnvart norsku njósnur-unum þar sem hann hélt að það væru bara Geir Haarde og Siv Friðleifsdóttir sem væru skörpustu hnífarnir í þeirri skúffu. En, ónei! Þar er líka Egill Helgason og drengurinn sá er skeinuhættari en Geir og Siv vegna þess að ólíkt þeim þá hlýðir þjóðin Agli. Játning Egils kom í miðjum Eurovision-brímanum þegar hann gleymdi því að hér á landi skammast maður sín fyrir að vera Norsari. Þetta eru samt þarfar upplýs- ingar og í nafni opins samfélags þar sem allt er uppi á borðinu skorar Svart- höfði á alla Norðmenn sem hér leynast undir fölsku flaggi að stíga fram. Þetta verð-um við að fá að vita rétt eins og hverjir eiga Jöklabréf- in. Kæmi ekki á óvart þótt Norðmenn ættu megnið af þeim árans pappírum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.