Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2009, Page 8
Þriðjudagur 19. maí 20098 Fréttir
Smáauglýsingasíminn er
515 5550
smaar@dv.is
Afbrotatölfræði sýnir að innbrotum hefur fjölgað mikið:
Fjölgar í kreppunni
Talsvert fleiri þjófnaðir og innbrot
komu inn á borð til lögreglunnar
í síðasta mánuði, samanborið við
apríl á síðasta ári þegar efnahags-
og atvinnuástandið í landinu var
betra. Samkvæmt afbrotatölfræði
Ríkislögreglustjóra fyrir apríl, sem
birt var í gær, fjölgaði þjófnaðar-
brotum úr 268 í apríl á síðasta ári
í 392 í apríl á þessu ári. Þetta er
aukning upp á 68 prósent. Tölfræði
Ríkislögreglustjóra yfir innbrot
segir einnig svipaða sögu, þeim
fjölgaði mikið á milli ára. Í apríl
árið 2007 komu 169 innbrot inn á
borð lögreglu og nákvæmlega sami
fjöldi kom upp á síðasta ári. Í apríl
á þessu ári fjölgaði innbrotum hins
vegar mikið, því 287 tilvik komu til
kasta lögreglu. Aukningin saman-
borið við apríl í fyrra nemur rúm-
lega 58 prósentum.
Tölfræði yfir önnur brot er ekki
jafnafgerandi. Þannig fjölgaði til-
fellum sem varða eignarspjöll lít-
illega á milli ára en ölvunarakst-
urstilfellum fækkaði mikið, miðað
við sama tímabil í fyrra. Í apríl 2008
var 181 tekinn ölvaður undir stýri á
landinu öllu, en í apríl á þessu ári
voru 109 manns teknir fyrir sömu
sakir.
Tölur yfir líkamsárásir eru að
mestu óbreyttar, 94 tilfelli komu
upp í síðasta mánuði samanbor-
ið við 97 tilfelli á sama tíma í fyrra.
Sama má segja um fíkniefnabrot,
þau voru 136 í síðasta mánuði
samanborið við 139 á sama tíma í
fyrra. valgeir@dv.is
Innbrot í apríl á þessu ári fékk lögregla
287 tilkynningar um innbrot. Á sama
tíma í fyrra voru tilvikin hins vegar 169
talsins. Mynd Photos
„Margir hafa bugast vegna afborg-
ana og eflaust eiga fjölmargir eftir
að fylgja í kjölfarið. Þetta er vanda-
mál sem þarf að bregðast við ekki
síður en húsnæðisvandanum. Þetta
á eflaust eftir að setja fjölmargar
fjölskyldur í þrot,“ segir Özur Lárus-
son, framkvæmdastjóri Bílgreina-
sambandsins, um sífellt hækkandi
greiðslubyrði af rekstrarleigusamn-
ingum.
Samingarnir eru flestir í erlendri
mynt og hækkar því greiðslubyrðin
í takt við lækkandi gengi krónunn-
ar.
skilað á geymsluplanið
Ein birtingarmynd þessa ástands er
vaxandi fjöldi bíla á geymsluplani í
Gufunesi sem fólk hefur skilað inn
til bílaumboðsins eftir að samning-
urinn er úti í stað þess að endurnýja
saminginn.
Ingvar Helgason ehf. og B&L
leigja hluta af planinu og er því
fjöldi bílanna þar frá þeim. Loftur
Ágústsson, markaðsstjóri fyrirtækj-
anna, segir fjölda rekstrarleigu-
samninga renna út á hverjum degi.
„Bílarnir sem eru á þessu
geymsluplani í Gufunesinu koma
ekki frá fólki sem hefur ekki getað
greitt af bílunum sínum heldur eru
þetta bílar sem viðskiptavinir hafa
greitt eðlilega af og síðan verið skil-
að eftir að rekstrarleigusamning-
ur viðkomandi bíls rann út,“ segir
Loftur.
sölutregða
„Ástæða þess að bílarnir eru í
geymslu er sú að ekki er hægt
að selja þessa bíla núna eins og
ástandið í þjóðfélaginu er og því
munum við bíða átekta eins og við
raunar erum að gera með nýja bíla
sem eins og öllum er kunnugt um
seljast ekki heldur,“ segir Loftur.
Hann bendir á að rekstrarleigu-
samningarnir hafi oftast verið gerð-
ir til þriggja ára. „Á hverjum degi
klárast einhverjir samningar og þá
er bílunum skilað eins og samning-
urinn gerir ráð fyrir,“ segir Loftur.
Brostnar forsendur
Özur Lárusson segir að flest bíla-
umboðin þekki það vandamál að
sitja uppi með bíla sem fólk hef-
ur skilað inn eftir að rekstrarleigu-
samningur er útrunninn. Slíkir
samningar urðu algengir upp úr
2005 og hafa margir nýtt sér þenn-
an möguleika síðan. „Þetta var
ágætishugmynd. Enginn átti von á
því að krónan myndi veikjast jafn
svakalega og hún gerði. Með geng-
isfallinu brustu allar forsendur fyrir
þessu,“ segir Özur.
Bílaumboðin skuldbundu sig
til að taka við bílunum að loknum
rekstrarleigutímanum en þau þurfa
nú að kaupa þá af fjármögnunarfyr-
irtækjunum á langtum hærra verði
en markaðsvirði þeirra er.
skuldapakki í skottinu
Özur segir að samkvæmt gróflegri
könnun Bílgreinasambandsins þurfi
bílaumboðin á næstu tveimur til
þremur árum að taka við allt að sex
þúsund bílum. „Verðið á þessum bíl-
um er þrjátíu til fimmtíu prósent-
um hærra en hægt er að selja þá á.
Með hverjum bíl er því skuldapakki
í skottinu sem bílaumboðin þurfa að
leggja út fyrir,“ segir hann.
Özur getur ekki sagt til um hvort
þessi staða verði hreinlega til þess að
umboðin verði gjaldþrota. „Ég þori
ekkert að fullyrða um það en þetta
mun ekki létta þeim byrðarnar eft-
ir sölusamdráttinn frá því í október
sem hefur verið allt að níutíu og þrjú
eða fjögur prósent. Ég get ekkert full-
yrt en staðan er alvarleg,“ segir hann.
Framtíðin er því ekki björt og seg-
ir Özur að eina vænlega leiðin út úr
þessum vanda sé að gengisskrán-
ingin sé færð í eðlilegt horf. Þannig
myndi greiðslubyrði einstaklinga af
bílunum lækka og þeir gætu því frek-
ar borgað af þeim í stað þess að safna
skuldum.
Erla hlynsdóttIr
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Ein birtingarmynd versnandi efnahagsástands er bílar sem safnast upp við Gufunesið. Þetta eru bílar
sem fólk hefur skilað inn eftir að rekstrarleigusamningur er útrunninn og hefur ekki treyst sér til að
framlengja vegna stighækkandi afborgana. Özur lárusson hjá Bílgreinasambandinu segir gengisbreyt-
ingar einu lausnina. Margir hafa þegar bugast vegna gífurlegrar greiðslubyrði.
Bílakirkjugarður
kreppunnar
„Á hverjum degi
klárast einhverjir
samningar og þá er
bílunum skilað.“
Þúsundum bíla skilað Özur Lárusson
býst við að bílaumboðin þurfi að
taka við allt að sex þúsund bílum
úr rekstrarleigu á næstu tveimur til
þremur árum.
Mynd hEIða hElgadóttIr
Bílar í biðstöðu
Bílarnir hrannast upp við
gufunesið og búist er við
því að þeir standi þar um
nokkra hríð. Þar hefur
því myndast eins konar
bílakirkjugarður.
Mynd róBErt rEynIsson