Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2009, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2009, Qupperneq 11
Þriðjudagur 19. maí 2009 11Neytendur Ég bý í fjórbýli og svalahandrið mitt er brotið. Einnig er sprunga í gólfi svala sem nær í gegn og farið er að leka niður á næstu hæð. Eigandi neðri hæðar telur þetta vera á mína ábyrgð. Hvað er hið rétta í málinu? GluGGa- oG svalaviðGerðir GuðbjörG Matthíasdóttir, formaður húseigendafélagsins svarar fyrirspurnum lesenda. Sendið fyrirspurnir á neytendur@dv.is „Samkvæmt lögum um fjöleignar- hús telst allt ytra byrði húss, þar á meðal svalir svo og stoð- og burð- arvirki þeirra auk svalahandriðs, vera sameign allra. Sprunga sem nær niður í gegnum svalagólf er því sameiginlegt úrlausnarefni allra eigenda og sömuleiðis endurnýjun svalahandriðs. Taka þarf málefnið fyrir á húsfundi þar sem tillaga um framkvæmdir er lögð til atkvæða- greiðslu. Sé ákveðið að ráðast í framkvæmdir skiptist kostnaður á milli eigenda í samræmi við hlut- fallstölur samkvæmt þinglýstum eignaskiptasamningi. Allt að einu þarf ávallt að gæta formreglna laga um fundarhald og tilskilið sam- þykki. Ákvörðun um allt venjulegt viðhald sameignar þarfnast sam- þykkis einfalds meirihluta miðað við hlutfallstölur þeirra sem mæta á löglega boðaðan húsfund. Við- gerð svala telst til almenns við- halds svo lengi sem ekki eru gerðar breytingar á útliti þeirra.“ Það er í gangi umræða um hvort setja eigi upp sólskála á svölum. Ég taldi að það þyrfti samþykki allra en aðrir segja að einfaldur meirihluti dugi. Hvað er hið rétta í málinu? „Allar breytingar frá samþykkt- um teikningum húss þurfa sam- þykki allra. Þá er um bygginga- leyfisskylda framkvæmd að ræða. Einnig skiptir hér máli hvers eðlils svalalokunin er því ýmsar undir- búningsráðstafanir eru nauðsyn- legar vegna viðameiri lokunar. Í byggingarlöggjöf er meðal annars kveðið á um ýmis atriði er snúa að brunavörnum. Má til dæmis vera að skipta verði um hurðar í stiga- húsi sem ganga inn í íbúðir áður en lengra er haldið. Í ljósi þessa er mikilvægt að senda inn fyrirspurn til byggingafulltrúa hvað varðar undirbúningsráðstafanir vegna fyr- irhugaðra framkvæmda. Mál sem þetta verður að taka fyrir á hús- fundi. Boða má til almenns hús- fundar með minnst fjögurra sólar- hringa fyrirvara en koma þarf fram í fundarboði að taka eigi ákvörð- un um þetta málefni. Vænlegast er að teikningar liggi fyrir tíman- lega þannig að íbúar geti skoðað þær áður en til fundar kemur. Vert er að hafa í huga að með samþykki svalalokunar er einnig verið að samþykkja stækkun eða viðbót á ytra byrði hússins og allar reglur laga um fjöleignarhús gilda þannig um viðhaldið í framtíðinni. Leki sólskáli gilda þannig svipuð sjón- armið og ef um væri að ræða leka meðfram glugga í mörgum tilfell- um. Gler og innra byrði sólskála er hins vegar alltaf á ábyrgð hvers og eins. Það fer þannig allt eftir hönn- un sólskála hvort og að hve miklu leyti viðhald verður sameiginlegt í framtíðinni.“ Við létum skipta um glugga hjá okkur í öllu húsinu en við búum í fjórbýli. Ágreiningur er um skipt- ingu kostnaðar en sumir vilja meina að húsfélagið eigi að greiða þetta allt þar sem þetta sé ytra byrði húss. Einnig var gert við tröppur fyrir framan sérinngang eins íbúa og ég tel mig ekki þurfa að taka þátt í þeim kostnaði. Hvað gildir í þessum tilfellum? „Allt ytra byrði húss er sameign allra og framkvæmdir er lúta að því skal hver og einn greiða í samræmi við þinglýstar hlutfallstölur. Þeg- ar um gluggaviðhald ræðir mæt- ast sameign allra og séreign. Hús- félagið ber kostnað af ytra byrði glugga en viðkomandi eigandi ber ábyrgð á innra byrði hans og gleri. Í því felst að húsfélagið ber kostn- að af helmingi efnis og vinnu við gluggaramma eða karm. Glerið og helmingur efnis og vinnu við karm er hins vegar sérkostnaður hvers og eins eiganda. Sömu reglur gilda um opnanleg fög. Til að tryggja greiðsluskyldu allra sem lög gera ráð fyrir verður að taka ákvörðun um framkvæmdir á löglegum hús- fundi þar sem tilskilið samþykki er fengið. Athuga skal að þegar rætt er um skyldu húsfélags til kostn- aðar gildir að allir taka þátt í þeim kostnaði miðað við hlutfallstöl- ur samkvæmt þinglýstum eigna- skiptasamningi. Það þýðir að eig- andi greiðir séreignarkostnað og sinn hlut í sameiginlegum kostn- aði vegna gluggaskipta. Um tröpp- urnar gildir að um er að ræða part af ytra byrði húss jafnvel þótt að- eins einn eigandi hafi not af þeim. Viðgerð á tröppum er því sameig- inlegur kostnaður. Hér sem ávallt verður að gæta formreglna laga um fundarboðun og fundarhald til að tryggja greiðsluskyldu allra.“ Svalir á fjölbýlishúsi „Samkvæmt lögum um fjöleignarhús telst allt ytra byrði húss, þar á meðal svalir svo og stoð- og burðarvirki þeirra auk svalahandriðs, vera sameign allra.“ Mynd KriStinn MagnúSSon Svalir, stoð- og burðarvirki eru sameign Ef skemmdir verða á þeim hluta hússins sem telst til sameignar skal taka málið fyrir á húsfundi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.