Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2009, Side 15
Þriðjudagur 19. maí 2009 15Umræða
Hver er maðurinn? „Ég er bara
Hrafna.“
Hvað drífur þig áfram? „Lífið og
tilveran og að hafa gaman af því sem
ég er að gera hverju sinni.“
Hvaða þrjú orð lýsa þér best?
„Hógvær og heiðarleg. meira dettur
mér ekki í hug. Ég á mjög erfitt með
að lýsa sjálfri mér.“
Hver er þín fyrirmynd? „Ég á mér
í raun enga fyrirmynd, ég er og hef
alltaf verið bara ég sjálf.“
Áhugamál? „Hestamennska og
söngur.“
Uppáhaldsmatur? „Karrýlasagna
og fiskibollur.“
Hvenær byrjaðir þú að hafa
áhuga á söng? „Ég hef sungið síðan
ég man eftir mér, ég er ekki frá því að
ég hafi verið byrjuð að syngja áður
en ég byrjaði að tala.“
Af hverju ákvaðstu að taka þátt
í Idolinu? „Foreldrar mínir ráku mig
í keppnina, sögðu mér að gera nú
eitthvað við það sem ég hefði. mig
hefur lengi langað en aldrei þorað
fyrr en núna.“
Áttirðu von á að komast langt í
keppninni? „Nei, engan veginn. Ég
gerði mér engar vonir og tók bara
einn föstudag í einu.“
Eftirminnilegasta uppákoman
í keppninni? „Þessi þátttaka mín
í keppninni er bara búin að vera
frábær í alla staði, æðisleg upplifun
með góðu fólki.“
Hvað ætlarðu að gera við
verðlaunaféð? „Ég ætla að fjárfesta
í framtíðinni og fara í skóla. Eins
og staðan er núna er ég á leiðinni í
Háskólann og svo kemur framhaldið
í ljós.“
Hver er draumurinn? „draumur-
inn er náttúrlega að geta unnið við
söng en gaman væri að geta gert
eitthvað annað með. Ég er gagntekin
af jarðfræði, og hef lengið verið, og
vonast því til að getað farið í nám því
tengt.“
Hvað finnst þér um úrslit Eurovision?
„Þetta var mjög flott og bara ánægð
með úrslitin.“
SUnnEvA REynISdóttIR,
16 ára NEmi
„Þetta var flott frammistaða.“
ÁSdíS AlExAndRA,
16 ára NEmi
„Frekar góð fyrir ísland. jóhanna stóð
sig vel.“
IngvAR ÁSbjöRnSSon,
18 ára NEmi
„Þetta var fínt, bara flott.“
tHEódóRA toRfAdóttIR,
20 ára NEmi
Dómstóll götunnar
HRAfnA HAnnA ElíSA
HERbERtSdóttIR
fór með glæsilegan sigur úr býtum í
idolinu á föstudaginn. Hrafna var
rekin í keppnina af foreldrum sínum
og ætlar að nota verðlaunaféð til að
fjárfesta í framtíðinni.
GaGntekin
af jarðfræði
„Úrslitin voru bara góð. jóhanna var
alveg glæsileg.“
KRIStjÁn gUðfInnSSon,
48 ára baNKastarFsmaður
maður Dagsins
Eftir 11 ár í harðbýlu héraði kemur
margt upp í hugann. Eins og marg-
ir þéttbýlingar hafði ég ákveðnar
hugmyndir um útnárana og átti
stansinn að vera stuttur. Raunin
varð önnur og endaskipti orðin á
mörgum hlutum.
Suðvesturhornið skartar auð-
vitað sínu, ekki síst fjölmenninu
með tilheyrandi uppsprettum. Í fá-
menninu er hinsvegar eftir fleirum
tekið. Hér vestra eru fjöllin ofan í
byggð með skjóli sínu og hættum,
hlutur sem aðkomufólk lítur á sem
ókost en heimamenn á þrífast. Og
vissulega á maður eftir að sakna
fjallanna því sannast sagna finnst
manni Esjan harla fjarlæg.
Kynni lækna af fólki eru mikil
og mun nánari í sveit en borg. Um-
ræðan er samt einatt á þann veg að
læknisþjónusta landsbyggðarinn-
ar sé eftirbátur. Hvað hátækniþjón-
ustu varðar er þetta sjálfgefið enda
lítið af slíku í boði útnáranna. Al-
mennt skartar landsbyggðin hins-
vegar betra aðgengi, meiri yfirsýn
og betra upplýsingaflæði til skjól-
stæðinga. Þessa hafa Vestfirðing-
ar notið þó ekki öllum sé það ljóst.
Sjálfur tel ég að almenna heilbrigð-
isþjónustu þyrfti að styrkja, ekki síst
á þéttbýlissvæðum, enda yfirgnæf-
andi hluti samskipta sem fellur í al-
mennan flokk en aðeins brotabrot
í hátækni. Því eru áform um bygg-
ingu slíks sjúkrahúss álíka galin og
varnarmálastofnun á friðartímum.
Hin aðkallandi þörf er almenn og
hana þarf að verja í komandi harð-
æri.
Upplýsingar til sjúklinga eru
víða í molum. Vergangur milli sér-
fræðinga er algengur og kemur fyr-
ir að hægri höndin viti ekki hvað sú
vinstri er að gera og öfugt. Þá er gott
að geta leitað til heilbrigðisstarfs-
manns með almenna skírskotun,
einhvers sem getur safnað saman
gögnum og lesið úr á mannamáli.
Vestfirðingar hafa verið
skemmtilegt viðfangsefni. Hvergi á
mínum ferli hef ég séð móðursýki
eins litla og sjálfsbjörg eins mikla.
Lífssýnin liggur fremur í gæðum en
magni. Það eru verðmæti í sjálfu sér
og ekki ósennilegt að þau markist af
nálægð hafs og fjalla.
Byggðaþróun og batnandi sam-
göngur hér vestra kalla nú á skipu-
lagsbreytingar og heilbrigðisþjón-
ustan þar á meðal. Í hlutverki mínu
sem flökkulæknir hef ég komið
víða við og vonandi einhverjum til
gagns. Þessu flandri lýkur nú um
mánaðamótin. Samstarfsfólki óska
ég velfarnaðar og Vestfirðingum
öllum þakka ég innblástur og lang-
lundargeð.
ELLEFU ÁR Í HARÐBÝLINU
kjallari
svona er íslanD
1 neitar að skila fálkaorðunni
sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Kaupþings, ætlar ekki
að skila orðu sem hann var sæmdur árið
2007.
2 glæsifloti sjeiks vakti athygli á
Suðurnesjum
svartir eðalvagnar í lögreglufylgd fluttu
utanríkisráðherra sameinuðu arabísku
furstadæmanna frá Keflavíkurflugvelli.
3 Keyptu glæsivillu í kreppunni
inga Lind Karlsdóttir og árni Hauksson
keyptu fyrir skemmstu glæsivillu í
garðabæ.
4 jóhanna guðrún á göngu-
skíðum til Moskvu
blaðakonan Hilary alexander var ekki sátt
við kjól jóhönnu guðrúnar. sagðist þó
skilja það þar sem ísland væri gjaldþrota.
5 tvíburar en eiga ekki sama
pabbann
tvíburarnir justin og jordan eiga ekki
sama föðurinn.
6 breytti íbúðinni í Star trek-
geimskip
bretinn tony alleyne hefur breytt íbúð
sinni í nákvæma eftirmynd af geimskipi
úr star trek.
7 Ákærðir fyrir hrottalega
líkamsárás
Lögreglustjórinn á suðurnesjum hefur
gefið út ákæru á hendur þremur piltum
fyrir líkamsárás í Njarðvík í lok síðasta árs.
mest lesið á dV.is
lÝðUR ÁRnASon
heilbrigðisstarfsmaður
skrifar
„Vergangur milli sér-
fræðinga er algengur
og kemur fyrir að
hægri höndin viti ekki
hvað sú vinstri er að
gera og öfugt.”