Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Síða 4
4 miðvikudagur 26. ágúst 2009 fréttir
Gleymdu að
lýsa kröfu
Lögmannsstofan ehf., sem sér
um meðferð fjögurra millj-
arða króna kröfu lífeyrissjóðs-
ins Stapa í Straum-Burðarás,
gleymdi að lýsa kröfunni innan
réttra tímamarka. Nú þarf að
leita samþykkis annarra kröfu-
hafa til að unnt verði að endur-
heimta einhvern hluta þessarar
kröfu, annars tapast fjáræðin að
öllu leyti. Ríkisútvarpið greindi
frá þessu í gær.
Fresturinn til að lýsa kröfum í
Straum rann út 18. júlí. Sam-
kvæmt gjaldþrotalögum þurfa
handhafar þriggja fjórðu hluta
heildarfjárhæðar almennra
krafna að samþykkja kröfu líf-
eyrissjóðsins eftir að frestur hef-
ur runnið út til að lífeyrissjóður-
inn geti endurheimt fjárhæðina
að hluta.
Alli ríki kominn
yfir milljarð
Aðalsteinn Jónsson SU 11,
sem nefndur er eftir Aðal-
steini Jónssyni, fyrrverandi
aðaleiganda og stjórnanda
Hraðfrystihúss Eskifjarðar
sem þekktur var undir heit-
inu Alli ríki, er búið að veiða
fyrir meira en milljarð króna
á fiskveiðiárinu. Aflaverð-
mæti skipsins fór yfir millj-
arðinn þegar það mætti með
fullfermi af frystum síldar-
flökum í síðustu viku og hafði
þá verið úti í viku.
Í frétt á heimasíðu Eskju
hf. sem gerir skipið út kemur
fram að árangurinn megi að
hluta þakka góðri makrílveiði
í júní og byrjun júlí en um
leið er harmað að makríl-
veiðin hafi verið stöðvuð eftir
það.
Minna fé lagt í
lýtaaðgerðir
Stjórnvöld hyggjast spara þrjátíu
milljónir króna undir lok ársins
og 90 milljónir á ársvísu með
því að draga úr niðurgreiðsl-
um vegna lýtalækninga. Þannig
verður hætt að niðurgreiða
lýtaaðgerðir vegna rósroða og
hert skilyrði fyrir því að ríkið
niðurgreiði æðahnútaaðgerðir.
Breytingin tekur gildi 1. október
með nýrri reglugerð heilbrigðis-
ráðherra.
Samkvæmt tilkynningu um
breytinguna nemur árlegur
kostnaður vegna lýtalækninga
um 400 milljónum króna á ári
og af því greiða Sjúkratryggingar
Íslands um 300 milljónir.
Meiri umferð og
mun hægari
Nú þegar framhaldsskólar á
höfuðborgarsvæðinu eru teknir
til starfa að nýju eftir sumar-
leyfi má búast við að umferð
þyngist á álagstímum. Lögregl-
an á höfuðborgarsvæðinu beinir
þeim tilmælum til ökumanna
að hafa þetta í huga og gera ráð
fyrir að ferðatími, sérstaklega á
morgnana milli klukkan átta og
níu kunni að lengjast frá því sem
verið hefur.
Í tilkynningu frá lögreglunni
kemur fram að gott ráð til að
komast hjá mestu umferðarös-
inni er að leggja fyrr af stað en
ella eða síðar eftir atvikum.
Reynsla síðustu ára hefur
sýnt að umferðaróhöppum fjölg-
ar í september, samanborið við
mánuðina þar á undan.
Nýja Kaupþing hefur stefnt eigendum Materia Invest vegna persónulegra ábyrgða þeirra:
Magnús Ármann fyrir dóm
Mál Nýja Kaupþings gegn Kevin Stan-
ford, Magnúsi Ármann og Þorsteini
M. Jónssyni verður tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur 3. september.
Snýst málið um 720 milljóna króna
persónulegar ábyrgðir þeirra, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Þeir félagar áttu félagið Materia In-
vest sem var einn stærsti hluthafinn
í FL Group. Samkvæmt útlánayfirliti
Kaupþings sem birt var á wikileaks.
org námu skuldir Materia Invest
við Kaupþing í september 2008 51
milljón evra eða 9,4 milljörðum ís-
lenskra króna miðað við núverandi
gengi. Í lánayfirlitinu kemur fram að
þessir þrír eigendur Materia Invest
væru hver persónulega ábyrgir fyr-
ir 2 milljónum evra eða sem nemur
samtals 1.100 milljónum króna. Þor-
steinn M. Jónsson sagði frá því í sam-
tali við Vísi í gær að hann hefði nú
þegar samið við Nýja Kaupþing um
sínar persónulegu ábyrgðir. „Ég vil
ekkert um þetta segja,“ sagði Finnur
Sveinbjörnsson, bankastjóri Kaup-
þings, þegar DV spurði hann hvort
Kevin Stanford og Magnús Ármann
hefðu verið búnir að reyna að semja
um skuldir sínar við bankann. Hann
vildi heldur ekki tjá sig um hvort Þor-
steinn M. Jónsson hefði samið um
skuldir sínar.
DV sagði frá því um miðjan júlí
að Magnús Ármann og Sigurjón
Árnason, fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans, hefðu verið kallaðir
til yfirheyrslu hjá sérstökum sak-
sóknara. Var ástæðan grunur
um markaðsmisnotkun þeg-
ar einkahlutafélagið Imon,
sem Magnús Ármann átti,
keypti hlutabréf í
Landsbankanum
fyrir níu millj-
arða króna
nokkrum
dögum fyrir
bankahrun-
ið í október
2008.
Auk þess-
ara mála sagði
Stöð2 frá því
á mánu-
dag
að Magnús Ármann og viðskiptafé-
lagi hans Sigurður Bollason væru
til rannsóknar hjá embætti skatt-
rannsóknarstjóra vegna notkunar
á erlendum greiðslukortum hér-
lendis. Voru kort Magnúsar notuð
fyrir um 40 milljónir króna á einu
ári. Ríkisskattstjóri vísaði málum
30 einstaklinga til embættis skatt-
rannsóknarstjóra. Því er ljóst að
mikið mæðir á Magnúsi Ármann
þessa dagana en hann flutti nýverið
til Bretlands.
as@dv.is
Upptekinn maður Mál Magnúsar
Ármann eru til rannsóknar hjá embætti
sérstaks saksóknara og embætti
skattrannsóknarstjóra og nú hefur
Nýja Kaupþing stefnt honum.
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, tók þátt í
golfmóti MP banka á Grafarholtsvelli
síðastliðinn fimmtudag, auk þess sem
hann var við kvöldverðarboð bank-
ans síðar um kvöldið. Sigmundur hef-
ur verið sakaður um að vera ölvað-
ur í ræðustól á Alþingi í umræðum
um Icesave-málið síðar sama kvöld,
en hann situr í fjárlaganefnd Alþing-
is sem fjallar um málið. Á myndbandi
af ræðum Sigmundar sést að hann
gleymir ítrekað spurningum og verður
fyrir frammíköllum stjórnarandstöð-
unnar af þeim sökum.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokks og fyrsti vara-
forseti Alþingis, hefur farið fram á að
framkoma Sigmundar í ræðustóli
þetta kvöld verði rædd í forsætisnefnd
Alþingis þegar hún kemur saman
næsta fimmtudag.
Hellti í sig rauðvíni
Í samtali við svæðisútvarp Austur-
lands þvertók Sigmundur Ernir fyrir
að hann hefði bragðað áfengi áður en
hann fór í umræður á Alþingi.
Einn gestanna í veislu MP banka
um kvöldið segist hins vegar hafa séð
Sigmund Erni þar sem hann var orð-
inn æði slompaður að sjá.
„Ég ber mikla virðingu fyrir Alþingi
og alþingismönnum og mér fannst
ástand þingmannsins vera allt að því
óviðeigandi. Veislan var vegleg og það
var boðið upp á hvítvín, rauðvín og
bjór. Ég veitti því eftirtekt að þingmað-
urinn hellti í sig rauðvíni,“ segir veislu-
gesturinn sem að sinni vill
ekki láta nafns síns get-
ið.
Samkvæmt upp-
lýsingum sem DV
fékk frá veitingasölu
GR í Grafarholti var
vissulega boðið upp
á óáfenga drykki í
veislunni, en ekk-
ert óáfengt rauð-
vín hafi verið í boði
þegar blaðamað-
ur spurðist sér-
staklega fyrir um
það.
Sigmundur sló um sig
Veislugesturinn segir að þrátt fyrir
rausnarlegar veitingar hafi varla sést
vín á nokkrum manni, nema þing-
manninum sem sló dálítið um sig.
Meðal annars hafi hann sagt erlend-
um gesti að hann væri þekkt sjón-
varpsandlit á Íslandi og þingmaður að
auki. „Útlendingurinn var upprifinn
af því að hitta slíkt stórmenni enda er
hann af þjóð sem telur tugmilljónir,“
segir gesturinn. Hann segir að í raun-
inni hafi ekkert verið hægt að skamm-
ast yfir því þótt þingmaðurinn hafi
verið áberandi slompaður í frítíma
sínum þótt það hafi óneitanlega
vakið athygli annarra gesta.
Hins vegar hafi viðhorf
hans til þess breyst þeg-
ar hann kveikti á sjón-
varpinu eftir að hann
kom heim til sín.
Hefði átt að fara
heim
„Ég kom heim til mín
upp úr klukkan 10 um
kvöldið. Þá kveikti ég
á Sjónvarpinu og stillti
á Alþingi. Mér krossbrá
þegar ég sá að Sigmundur
Ernir, sem skömmu áður var að
hella í sig rauðvíni, var mætt-
ur í ræðustól. Fyrsta
hugsun mín var
hvernig hann
hefði
komist af Grafarholtinu í þingið. Ég
var alveg gáttaður á þessu. Þarna var
verið að ræða Icesave, eitt alvarleg-
asta mál sem þingið hefur tekist á við,
og hann vogar sér að mæta drukk-
inn í umræður,“ segir veislugesturinn.
Hann segir að eftir að myndbandi með
þingmanninum hafi verið dreift hafi
hann heyrt frá mörgum veislugesta
sem séu hneykslaðir á þingmannin-
um. „Hann hefði átt að fara heim eftir
veisluna en ekki mæta í þingið. Þetta
er óviðeigandi og ég sætti mig ekki
við slika framkomu þingmanns,“ segir
veislugesturinn sem hafði í framhald-
inu samband við Ragnheiði Ríkharðs-
dóttur alþingismann til að segja henni
sögu sína. Þær upplýsingar fengust frá
Ragnheiði Ríkharðsdóttur í gærkvöldi
að hún vildi ekki tjá sig nánar um mál-
ið við fjölmiðla fyrr en búið væri að
taka það fyrir í forsætisnefnd.
Veislugesturinn sem DV ræddi við
vildi ekki koma fram undir nafni að
svo stöddu. Hann sagðist hins veg-
ar myndu stíga fram ef „þess gerðist
þörf“.
Annar veislugestur staðfesti frá-
sögn hins fyrri í samtali við DV í gær
og sagðist hafa séð Sigmund drekka
töluvert magn af rauðvíni.
Sigmundur í felum
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist
ekki í Sigmund Erni í gær. Þegar blaða-
maður DV bankaði upp á heimili Sig-
mundar í Grafarvogi í gærkvöldi kom
eiginkona Sigmundar til dyra. Hún
svaraði því að Sigmundur væri ekki
heima, þrátt fyrir að blaðamaður hafi
örskömmu áður séð Sigmund ganga
um stofugólfið talandi í síma. Þegar
blaðamaður tjáði henni að hann hafi
skömmu áður séð Sigmundi bregða
fyrir í forstofunni vildi hún ekki kann-
ast við það. ritstjorn@dv.is
Veislugestir í kvöldverðarboði MP banka segjast hafa orðið vitni að töluverðri áfengisneyslu
Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, sem síðar um kvöldið hélt
þrumuræðu um Icesave-málið í ræðustóli Alþingis. Myndband af undarlegum tilsvörum
og einbeitingarskorti Sigmundar á þinginu hefur farið sem eldur um sinu á netinu. Sjálfur
sagði Sigmundur í samtali við Ríkisútvarpið að hann hefði ekki drukkið áfengi.
„HELLTI Í SIG RAUÐVÍNI“
Sigmundur Ernir Rúnarsson Í samtali við Ríkisútvarpið
þvertók þingmaðurinn fyrir að hann hefði smakkað áfengi
kvöldið sem hann fór í ræðustól.