Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Qupperneq 6
6 miðvikudagur 26. ágúst 2009 fréttir
Stal frá gjaldkera
Þjófnaður á peningum úr gjald-
keraskúffu Íslandsbanka í Vest-
mannaeyjum var kærður til lög-
reglu í síðustu viku. Alls var 180
þúsund krónum stolið en um
er að ræða tvo þjófnaði, annars
vegar 20. maí og hins vegar 14.
ágúst.
Sami aðili á hlut að máli í
báðum tilvikum og sást þjófnað-
urinn á eftirlitsmyndavél bank-
ans. Viðkomandi aðili hefur
viðurkennt þjófnaðinn og skilað
þeim peningum sem hann tók
ófrjálsri hendi. Málið er þó enn í
rannsókn.
Sophia Hansen hefur verið ákærð af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu
fyrir fjársvik. Samkvæmt heimildum DV er Sophia ákærð fyrir að hafa haft Sigurð
Pétur Harðarson fyrir rangri sök en þung viðurlög eru við broti af því tagi. Sophia
var fyrr á þessu ári dæmd til að greiða Sigurði Pétri um 20 milljónir króna vegna
vangoldinna skulda. Dómi héraðsdóms hefur nú verið áfrýjað til Hæstaréttar.
SOPHIA ÁKÆRÐ
FYRIR FJÁRSVIK
Lögreglustjórinn á höfuðborg-
arsvæðinu hefur ákært Sophiu
Guðrúnu Hansen fyrir fjársvik,
samkvæmt upplýsingum af vef
Héraðsdóms Reykjavíkur. Málið
verður þingfest í Héraðsdómi 9.
september. Lögreglan verst fregna
af málinu, þar sem það hefur enn
ekki verið þingfest.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum DV er Sophia ákærð
fyrir að hafa haft Sigurð Pét-
ur Harðarson fyrir rangri sök, en
hún kærði hann fyrir að hafa fals-
að undirskrift hennar og þannig
haft af henni fé. Sigurður Pétur
neitaði því að hafa falsað undir-
skrift Sophiu og var undirskriftin
send til rithandarrannsóknar Sta-
tens kriminaltekniska laboratori-
um í Svíþjóð og bentu niðurstöð-
ur þeirrar rannsóknar eindregið til
þess að umrædd undirskrift væri
ekki gerð af Sigurði Pétri heldur
Sophiu sjálfri. Mál Sophiu á hend-
ur Sigurði Pétri var því látið niður
falla, en niðurstaðan gaf á sama
tíma tilefni til þess að höfða op-
inbert mál á hendur Sophiu, enda
lögbrot að hafa mann fyrir rangri
sök.
Varðar fangelsi.
Í 148. grein almennra hegningar-
laga segir að hver, sem með rangri
kæru, röngum framburði, rang-
færslu eða undanskoti gagna, öflun
falsgagna eða á annan hátt leitast
við að koma því til leiðar að sak-
laus maður verði sakaður um eða
dæmdur fyrir refsiverðan verknað,
skuli sæta fangelsi allt að 10 árum.
Við ákvörðun refsingarinnar skal
hafa hliðsjón af því hversu þung
hegning er lögð við því broti sem
sagt er að viðkomandi hafi framið.
Ekki náðist í Kristján Stefáns-
son, lögmann Sophiu, í gær.
Áfrýjar til Hæstaréttar
Málið er hins vegar ekki svona
klippt og skorið, því Sophia hefur
áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykja-
víkur frá því í febrúar á þessu ári,
þar sem hún var dæmd til að greiða
Sigurði Pétri tæpar 20 milljónir
króna. Sophia og Sigurður hafa um
langt skeið staðið í málaferlum gegn
hvort öðru og sér ekki fyrir endann
á þeim. Áfrýjun Sophiu var þingfest
í Hæstarétti í síðustu viku og skilaði
lögmaður Sophiu inn greinargerð
vegna áfrýjunarinnar. Ekki ligg-
ur fyrir hvenær málið verður flutt
í Hæstarétti en lögmaður Sigurð-
ar Péturs hefur um það bil mánuð
til þess að bregðast við þeim gögn-
um sem lögð hafa verið fram. Ekki
er búist við því að málið verði flutt
í Hæstarétti fyrr en í lok þessa árs
eða snemma á næsta ári.
Sigurður Pétur var á árum áður
nánasti bandamaður Sophiu í bar-
áttu hennar um að fá dætur sín-
ar Dagbjörtu og Rúnu heim til Ís-
lands, en barnsfaðir hennar Halim
Al neitaði henni um umgengnis-
rétt.
Valgeir örn ragnarSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Samkvæmt
áreiðanlegum
heimildum DV er
Sophia ákærð fyrir að
hafa haft Sigurð Pétur
Harðarson fyrir rangri
sök.
Sophia Hansen Tapaði skuldamáli gegn
Sigurði Pétri Harðarsyni fyrr á þessu ári. Því
hefur nú verið áfrýjað til Hæstaréttar, en
lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
hefur ákært hana fyrir fjársvik.
Mótorhjól og
bifreið skullu
saman
Mótorhjól og bifreið skullu
saman á Korpúlfsstaðavegi í
Grafarholti á áttunda tíman-
um í gærkvöldi. Samkvæmt
upplýsingum sem fengust hjá
lögreglunni slasaðist enginn
alvarlega í atvikinu þótt ekki
væri útilokað að vélhjóla-
maðurinn hafi orðið fyrir
hnjaski. Tildrög slyssins voru
óljós.
Játaði
sprengjugabbið
Piltur um tvítugt sem hand-
tekinn var í gær í Hafnarfirði í
tengslum við sprengjuhótun í
Borgarholtsskóla játaði við yf-
irheyrslur í dag að hafa hringt
inn hótunina. Um gabb var að
ræða en pilturinn var í annar-
legu ástandi. Pilturinn var hand-
tekinn í heimahúsi í Hafnar-
firði í gær, eins og áður segir í
annarlegu ástandi, og var hann
látinn sofa úr sér. Hann hefur
áður komið við sögu lögreglu.
Lögfræðideild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu ákveður í
framhaldinu hvort hann verði
ákærður fyrir hótunina.
KOMDU Í ÁSKRIFT
Hringdu í síma 515 5555
eða sendu tölvupóst á
askrift@birtingur.is eða
farðu inn á www.birtingur.is
Lán til íbúðakaupa
Lán til endurbóta og viðbygginga
Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka)
Úrræði í greiðsluvanda