Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Qupperneq 8
8 miðvikudagur 26. ágúst 2009 fréttir
Framundan er spennandi dagskrá
sem hentar þér fullkomlega
www.badhusid.is
Sá kostur er ræddur að ríkið semji við Magma Energy um eignarhald á HS Orku í krafti yfirráða sinna yfir
Íslandsbanka. Íslandsbanki og lífeyrissjóðir eiga nú þegar um 40 prósenta hlut í Geysi Green Energy auk
þess sem félagið skuldar bankanum á þriðja tug milljarða króna. Vilji stjórnvalda stendur til þess að semja
við Ross Beaty um milljarða fjárfestingar Magma Energy í HS Orku um leið og samkomulag næst um meiri-
hlutaeign Íslendinga í orkuvinnslunni.
Þjóðnýting geysis
green blasir við
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráð-
herra vill kanna í þaula hvort ekki sé
unnt að ná samkomulagi sem allir
geti sætt sig við varðandi eignarhald á
HS Orku. Kanadíska fyrirtækið Mag-
ma Energy sækist eftir að auka hlut
sinn í fyrirtækinu til muna með kaup-
um á hlut Orkuveitu Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar í HS Orku. Stjórnvöld
standa því frammi fyrir því að þjóð-
ina sárvantar erlendar fjárfestingar
inn í landið um leið og þau óttast yfir-
ráð útlendinga yfir auðlindum þjóð-
arinnar.
Orkuveitu Reykjavíkur er heimilt
að eiga 10 prósenta hlut að hámarki í
öðru orkufyrirtæki og þarf því að losa
sig við allt umfram það eða 6,6 pró-
sent að minnsta kosti. Stjórn félagsins
hafði hins vegar tekið ákvörðun um
að selja allan hlut sinn í HS Orku.
Steingrímur kveðst vera til við-
ræðu um ýmislegt en vill ekki ræða í
smáatriðum hver niðurstaðan varð af
fundi hans með Ross Beaty, forstjóra
og aðaleiganda Magma Energy, í
gærmorgun. „Það má hins vegar vera
ljóst hver afstaða mín er til eignar-
halds á íslenskum orkufyrirtækjum.“
Beaty ekki til í hvað sem er
Orkuveita Reykjavíkur hefur frest til
mánaðamóta til að svara tilboði Mag-
ma Energy í 16,6 prósenta hlut sinn
í HS Orku. Meðal þess sem rætt hef-
ur verið er að Rafmagnsveitur ríkis-
ins, ríkið, Reykjavíkurborg og jafnvel
Hafnfirðingar eignist allir hluta í HS
Orku þannig að tryggt verði að orku-
fyrirtækið verði í meirihlutaeigu Ís-
lendinga.
Eftir því sem DV kemst næst mun
Ross Beaty ekki hafa litist á þann kost
og hótað því að segja skilið við verk-
efnið. Enda virðast áform Magma En-
ergy og Geysis Green Energy felast í
því að eignast sameiginlega HS Orku
að fullu með naumri meirihluta-
eign GGE. Í kaupunum felast orku-
vinnsluréttindi til 65 ára með mögu-
legri framlengingu.
Engin staða til kaupa
Fyrir síðustu helgi var skipaður sér-
stakur starfshópur frá þremur ráðu-
neytum sem ætlað er að leggja fram
tillögur um lausn málsins. Í hópnum
eru meðal annarra Kristján Skarp-
héðinsson, ráðuneytisstjóri í iðn-
aðararráðuneytinu, Einar Karl Har-
aldsson frá forsætisráðuneytinu og
Guðmundur Árnason, starfandi ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu.
Við starfshópnum blasa tveir kost-
ir samkvæmt heimildum DV. Annar
þeirra er sá að ríkið jafni tilboð Mag-
ma Energy eða yfirbjóði kanadíska
félagið varðandi kaupin á samanlagt
32 prósenta hlut OR og Hafnfirðinga
í HS Orku. Ólíklegt þykir hins vegar
að ríkið geti ráðist í um12 milljarða
króna fjárfestingar eins og ástatt er
um skuldbindingar ríkissjóðs og gríð-
arlega skuldsetningu hans. Þykir lík-
legt að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
hefði ýmislegt við þennan kost að at-
huga jafnvel þótt fyrirheit væru um
að Magma gæti aukið hlut sinn síðar
upp í 49 prósent.
Íslandsbanki leysi til sín GGE?
Hinn kosturinn er að Íslandsbanki
leysi til sín Geysi Green Energy. Glac-
ier Renewable Energy Fund, sem er
að verulegu leyti í eigu Íslandsbanka
og lífeyrissjóða, á nú þegar 40 pró-
senta hlut í GGE. Fjárfestingarfélagið
Atorka, sem er í greiðslustöðvun, á 41
prósents hlut í GGE en eigendur At-
orku eru afar háðir Íslandsbanka um
framtíð félagsins, en bankinn er stór
lánveitandi helstu eigenda Atorku.
Aðrir hluthafar eru minni; einna
stærstur er VGK Invest og tengdir að-
ilar með um 10 prósenta hlut.
Til viðbótar þessu skuldar GGE
Íslandsbanka yfir 20 milljarða króna
á sama tíma og verðmæti félagsins
hafa rýrnað verulega eftir banka-
hrunið. Að öllu samanlögðu er því
staða Íslandsbanka gagnvart Geysi
Green Energy afar sterk þótt bank-
inn hafi lítið beitt sér með beinum
hætti varðandi framtíð félagsins.
Verði síðari kosturinn fyrir valinu
getur ríkið eignast allan hlut GGE
í HS Orku. Í krafti þessa gæti ríkið,
eða Íslandsbanki, reynt samninga
við Magma Energy um nauma meiri-
hlutaeign Íslendinga í HS Orku um
leið og þjóðin fengi erlendar fjárfest-
ingar Magma Energy inn í landið.
Mörg tækifæri
Ásgeir Margeirsson, stjórnarformað-
ur HS Orku og forstjóri GGE, segir að
tækifærin blasi við og tvöfalda þurfi
umfang félagsins á næstu árum til
þess að mæta eftirspurn eftir orku
aiðju eða annarra verkefna í ná-
grenni orkuveranna. Hann segist
enga skoðun hafa á því hvort félagið
eigi að vera í meirihlutaeign Íslend-
inga; aðalatriðið sé að samkeppnis-
reglur séu virtar. „Það hefur ekkert
verið rætt um niðurfellingu skulda
GGE. Tækifærin bíða og vilji til sam-
vinnu við Íslendinga um tækniþekk-
ingu á sviði jarðvarmanýtingar víða
um heim stendur óhögguð þrátt fyrir
bankahrun. Það eina sem við viljum
gera er að vinna okkur út úr byl síð-
asta vetrar og taka til hendinni,“ seg-
ir Ásgeir.
Veikur fjárhagur GGE
Þótt tækifærin blasi við HS Orku og
eigendanna er staða GGE augljós-
lega veik sem fyrirtækis á almennum
markaði.
Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöf-
undur og aðstoðarforstjóri Time
Warner fjölmiðlasamsteypunnar,
hefur dregið sig út úr GGE. Hann átti
2,6 prósenta hlut í félaginu og var
meðal annars stjórnarformaður fram
á þetta ár.
Bandaríkjamaðurinn Adam Wolf-
ensohn, sem einnig tók sæti í stjórn
GGE í fyrra fyrir hönd Wolfensohn
& Co, var skrifaður fyrir 3,9 prósenta
hlut. Það hlutafé hefur ekki bor-
ist ennþá. Eyjólfur Árni Rafnsson,
núverandi stjórnarformaður GGE,
staðfestir að Wolfensohn hafi ekki
greitt hlutafé sitt enn og hafi borið
við breyttum aðstæðum vegna fjár-
málakreppunnar og bankahrunsins
á Íslandi.
Einu hluthafarnir sem enn standa
á eigin fótum - ef svo má segja - er
Mannvit /VGK Invest sem eiga um
eða rétt innan við 10 prósent í fé-
laginu. Að öðru leyti er félagið með
beinum eða óbeinum hætti í fangi Ís-
landsbanka sem fjallaði meðal ann-
ars um málefni GGE á bankaráðs-
fundi í gær.
Jóhann hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
„Það má hins vegar
vera ljóst hver afstaða
mín er til eignarhalds
á íslenskum
orkufyrirtækjum.“
„Viljum komast út úr bylnum“
Ásgeir Margeirsson er stjórnarformað-
ur HS Orku og forstjóri GGE.
Ráðherrar VG Vandi forystu VG er sá að hún vill ekki að
auðlindir landsmanna komist í hendur útlendinga á sama
tíma og þjóðin þarfnast erlendra fjárfestinga.