Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Qupperneq 14
Miðvikudagur 26. ágúst 200914
ÞRAUTAKÓNGUR
í hundafimi
skór og FYLgIHLUTIr
„Tengdamóðir mín gaf mér roð sem ég
ákvað að nota í pils á sjálfa mig. Fyrr á
þessu ári byrjaði ég síðan að gera fylgi-
hluti úr fiskroði og leðri,“ segir Lilja Sig-
urðardóttir. Hún hefur alltaf verið lagin í
höndunum og byrjaði sem lítil stúlka að
sauma á saumavél. Eftir að hún kynntist
fiskroði sem efnivið til handavinnu hef-
ur hún búið til og selt hárspangir, teygjur,
belti og eyrnalokka úr roðinu.
Lilja er Hornfirðingur að upplagi en
flutti til Egilsstaða upp úr tvítugu og hef-
ur búið þar síðustu ár. Fyrr á þessu ári fór
hún að selja hönnunina í handverkshús-
inu Skemmunni á Egilsstöðum. Með auk-
inni eftirspurn kom hún sér upp Face-
book-síðu undir heitinu „Fylgihlutir úr
fiskroði“ þar sem sjá má myndir á nýjum
vörum og verð.
Tengdamóðir Lilju keypti roðið, sem
var upphafið að öllu saman, í Sjávarleðri
hf. á Sauðárkróki. Lilja hefur síðan keypt
efniviðinn sinn þar og er nú orðinn stór-
viðskiptavinur.
Salan hefur gengið vonum framar
enda var fiskroðshönnunin fyrst aðeins til
heimabrúks.
Lilja er sem stendur í fæðingarorlofi
og nýtir hverja þeirra fáu lausu stunda
sem hún hefur til að vinna úr roðinu. Hún
hefur þegar búið til seðlaveski úr roði og
hyggur á sölu á þeim þegar lengra líður,
auk þess sem hún hefur hug á að sauma
töskur, púðaver og aðra stærri hluti.
Hægt er að hafa samband við Lilju í
gegnum netfang lilsig@visir.is og sendir
hún hvert á land sem er.
erla@dv.is
DV0908253516.jpg
DV0908251570.jpg
DV0908259271.jpg
Lilja Sigurðardóttir er óvænt komin í útgerð á eigin handverki úr fiskroði:
Fylgihlutir úr fiskroði
Spöng
Hárspöng úr
þorskroði og
laxaroði.
Teygja Hárteygja
úr laxaroði og leðri.
Lokkar Eyrnalokkar úr
laxableiku þorskroði.
Héðinn Hendriksson selur skó og
fatnað á netinu ásamt mági sín-
um Sabri Kitmitto. Skóna selja þeir
á vefsíðunni skonet.is og fötin fást
á fabulous.is. Þeir byrjuðu að selja
föt á fabulous.is í janúar á þessu ári
og hófu síðan að selja skó á skonet.
is í þessari viku. „Þegar við stofnuð-
um fyrirtækið var þetta reyndar ekki
það sem við ætluðum í fyrstu. Okk-
ur langaði að opna vefverslun sem
myndi bjóða vörur á viðráðanlegu
verði,“ segir Héðinn.
Viðtökurnar hafa að hans sögn
verið mjög góðar og hafa Íslendingar
verið duglegir að kaupa hjá þeim föt
á netinu. „Fólki líst einfaldlega mjög
vel á að geta keypt sér vörur á góðu
verði. Markmið okkar er að berjast
gegn óhóflega dýrum verslunum og
bjóða vörur á því verði sem við telj-
um sanngjarnt,“ segir hann. Vonast
hann til þess að fólk verði jafnduglegt
að nýta sér nýju vefsíðuna sem mun
eingöngu selja skó.
Allar vörurnar sem þeir bjóða upp
á koma frá birgjum í Evrópu. Héðinn
segir að mark-
hópur fatasíð-
unnar sé kon-
ur og þá frekar
yngri kynslóð-
in. „Með skó-
síðunni viljum
við hins veg-
ar reyna að
þjónusta alla,
bæði konur,
karla og einn-
ig börn,“ segir
hann.
Aðspurður
hvort það sé
ekki óvenju-
legt að tveir
karlmenn séu
að selja kven-
fatnað og skó
segist Héð-
inn fá þessa spurningu nánast dag-
lega. „Það finnst það mörgum skrýt-
ið en flestum finnst það í góðu lagi.
Við veljum allt sjálfir bæði skóna og
fötin og mér finnst þetta bara frekar
skemmtilegt,“ segir hann hlæjandi.
Þeir hafa báðir verið í fullri vinnu
meðfram netsölunni. Héðinn hef-
ur verið í tölvubransanum í mörg
ár en Sabri er múrari. Héðinn segist
þó vera að hætta í sínu starfi til þess
að einbeita sér að netsölunni. „Það
er framtíðarvonin hjá okkur að geta
starfað alfarið við þetta,“ segir hann.
Varðandi lagerhúsnæði segir Héðinn
að þeir séu að flytja í nýtt húsnæði í
Kópavogi þar sem hægt verður að
máta föt en skósalan muni áfram fara
alfarið fram á netinu. „Það er ekkert
mál fyrir viðskiptavini að senda vör-
ur til baka, skipta um stærðir á fatn-
aði eða skóm svo lengi sem vörurnar
eru ónotaðar,“ segir Héðinn að lokum
og hvetur fólk til þess að vera áfram
óhrætt við að versla á netinu.
as@dv.is
Héðinn Hendriksson og Sabri Kitmotto selja föt á vefsíðunni fabulous.is og skó á skonet.is. Þeir stofnuðu
fyrirtæki um áramótin og voru ekki ákveðnir hvað þeir ætluðu að selja en markmiðið var þó að selja vörur
á netinu á sanngjörnu verði. Íslendingar hafa tekið fatasíðunni vel og bættu þeir skósíðunni við en hún var
opnuð í byrjun vikunnar.
SeljA SKÓ
eTInU Góðar viðtökur Héðinn Hendriksson segir að Íslending-ar hafi verið duglegir að kaupa föt á vefsíðunni fabulous.is og því hafi þeir ákveðið að bæta vefsíðunni skonet.is sem selur eingöngu skó.
mynd RóbeRT ReyniSSon