Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Page 18
Miðvikudagur 26. ágúst 200918
Fræga fólkið á svo sannarlega sand af seðlum til að eyða í skó.
Stjörnurnar elska hönnuði á borð við Christian Louboutin,
Jimmy Choo og Christian Dior og þeir eru svo sannarlega ekki
ókeypis. Oft er samt hægt að finna ódýrar eftirlíkingar á netinu
þannig að meðal Íslendingur getur gert sér glaðan dag og geng-
ið um eins og stjarna í einn dag – þótt þeir væru tveir eða þrír.SKÓR
Lilja Katrín Gunnarsdóttir STJARNANNA
DáSaMleg í DioR
Angelina Jolie mætti í þessum leðurkjól á
frumsýningu Inglorious Basterds í Holly-
wood. Í stíl við kjólinn var hún í Christian
Dior-sandölum sem hægt er að finna á
christiandior.com eða shoehunting.com.
Kosta sandalarnir um 630 dollara, eða
rúmlega áttatíu þúsund krónur. Á shoe-
hunting.com er hægt að fá ansi líka skó
frá Madden Girl á aðeins fjörutíu dollara,
aðeins rúmlega fimm þúsund krónur.
engaR
eftiRlíK-
ingaR taKK!
Ofurfyrirsætan Miranda
Kerr gerir allar konur rauðar
af öfund í þessum Miss
Fortune-skóm frá Christian
Louboutin. Parið er alls ekki
ókeypis og fæst á shoe-
hunting.com á 956 dollar,
rúmlega 120 þúsund krónur.
Þá er bara um að gera að
fara að safna fyrir þessum
guðdómlegu skóm því
blaðamaður fann því miður
enga ódýra eftirlíkingu fyrir
kreppuþjakaða landsmenn.
DjaRfuR DanS
Ungstirnið Miley Cyrus mætti í þessum Giuseppe Zanotti-
skóm á Teen Choice-verðlaunahátíðina og dansaði meira
að segja súludans. Það er ekki víst að hver sem er myndi
þora í djarfan dans í þessum skóm þar sem þeir kosta um
fjögur hundruð dollara, eða um fimmtíu þúsund krónur á
shoehunting.com.
uppáhalD
StjaRnanna
Söngkonan umdeilda Britney
Spears geislaði á Teen Choice-
verðlaunahátíðina í uppáhaldi
stjarnanna - Jimmy Choo-
skóm. Parið kostar litla 785
dollara á shoehunting.com,
rúmlega hundrað þúsund
krónur. Þar sem ekki allir hafa
efni á slíkum munaði er líka
hægt að fá Doverly skó frá
Nine West á sömu vefsíðu fyrir
aðeins tæplega áttatíu dollara,
rúmlega tíu þúsund krónur.
Þeir eru engir Jimmy Choo en
flottir engu að síður.
SúpeRStjaRna
í SanDöluM
Söngkonunni Rihönnu er margt
til lista lagt og eitt af því er að
klæða sig eins og súperstjarnan
sem hún er. Þessir hlébarðasand-
alar frá Giuseppe Zanotti for
Balmain fást á mytheresa.com
og kosta 942 dollara, rúmlega
120 þúsund krónur. Giada-sand-
alarnir frá Sam Edelman eru ekki
alveg eins flottir en góðir engu
að síður fyrir þá sem ekki hafa
efni á að eyða morðfjár í skó. Þeir
fást á shoehunting.com og kosta
112 dollara, tæplega fimmtán
þúsund krónur.
Sexí og SjÓðheitiR
Stöllurnar Renée Zellweger og Gwen Stefani eru báðar mjög hrifnar af Pigalle-skónum frá Christian Louboutin sem kosta 565 dollara á shoehunting.com, rúmlega sjötíu þúsund krónur. Skórnir eru svo sannarlega sexí og sjóðheitir en Carrie-skórnir frá Guess eru það líka, og líta nánast eins út og Louboutin-skórnir. Eina sem skilur þá að er verðið en Carrie-skórnir kosta um níutíu dollara á shoehunting.com, aðeins rúmlega ellefu þúsund krónur.
töff í SvöRtu
Töffarinn og Twilight-stjarnan Kristen
Stewart er þekkt fyrir að spóka sig um
í strigaskóm og gallabuxum en á Teen
Choice-verðlaunahátíðinni ákvað hún að
klæða sig aðeins upp. Hún mætti í Rock
& Republic-kjól og við hann var hún í
geðveikum Jerome C. Rousseau-skóm
sem fást á net-a-porter.com á rúmlega
fimm hundruð dollara, rúmlega sextíu
þúsund krónur. Á shoehunting.com
er hægt að fá afar svipaða skó, þó ekki
alveg eins flotta, frá All Black og kosta
þeir rúmlega níutíu dollara, rúmar ellefu
þúsund krónur.
Díva í YveS
Saint lauRent
Dívan Beyoncé skellti sér í versl-
unarleiðangur í New York ekki fyr-
ir löngu og skartaði yndislegum
bananagulum Tribute-skóm frá
Yves Saint Laurent. Á shoehunt-
ing.com er hægt að kaupa ýmsar
útgáfur af Tribue-skónum og geta
þeir kostað allt upp í 760 dollara,
tæplega hundrað þúsund krónur.
Á sömu síðu er hægt að fá góða
eftirlíkingu frá Report Signature á
66 dollara, rúmlega átta þúsund
krónur.
hippaleg í hugo
Leikkonan síhressa Drew Barrymore er óhrædd
við að fara nýjar leiðir í tískunni. Myndir
náðust af henni á leiðinni í jóga á dögunum í
skemmtilegum, rauðum Hugo Boss-sandölum
með kögri. Þessir hippalegu skór eru uppseldir
en hægt er að fá Candela Fieco-sandala sem
gefa hinum ekkert eftir á shoehunting.com á
67,50 dollara, eða tæplega níu þúsund krónur.
SKÓR og fYlgihlutiR