Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Qupperneq 18
Miðvikudagur 26. ágúst 200918 Fræga fólkið á svo sannarlega sand af seðlum til að eyða í skó. Stjörnurnar elska hönnuði á borð við Christian Louboutin, Jimmy Choo og Christian Dior og þeir eru svo sannarlega ekki ókeypis. Oft er samt hægt að finna ódýrar eftirlíkingar á netinu þannig að meðal Íslendingur getur gert sér glaðan dag og geng- ið um eins og stjarna í einn dag – þótt þeir væru tveir eða þrír.SKÓR Lilja Katrín Gunnarsdóttir STJARNANNA DáSaMleg í DioR Angelina Jolie mætti í þessum leðurkjól á frumsýningu Inglorious Basterds í Holly- wood. Í stíl við kjólinn var hún í Christian Dior-sandölum sem hægt er að finna á christiandior.com eða shoehunting.com. Kosta sandalarnir um 630 dollara, eða rúmlega áttatíu þúsund krónur. Á shoe- hunting.com er hægt að fá ansi líka skó frá Madden Girl á aðeins fjörutíu dollara, aðeins rúmlega fimm þúsund krónur. engaR eftiRlíK- ingaR taKK! Ofurfyrirsætan Miranda Kerr gerir allar konur rauðar af öfund í þessum Miss Fortune-skóm frá Christian Louboutin. Parið er alls ekki ókeypis og fæst á shoe- hunting.com á 956 dollar, rúmlega 120 þúsund krónur. Þá er bara um að gera að fara að safna fyrir þessum guðdómlegu skóm því blaðamaður fann því miður enga ódýra eftirlíkingu fyrir kreppuþjakaða landsmenn. DjaRfuR DanS Ungstirnið Miley Cyrus mætti í þessum Giuseppe Zanotti- skóm á Teen Choice-verðlaunahátíðina og dansaði meira að segja súludans. Það er ekki víst að hver sem er myndi þora í djarfan dans í þessum skóm þar sem þeir kosta um fjögur hundruð dollara, eða um fimmtíu þúsund krónur á shoehunting.com. uppáhalD StjaRnanna Söngkonan umdeilda Britney Spears geislaði á Teen Choice- verðlaunahátíðina í uppáhaldi stjarnanna - Jimmy Choo- skóm. Parið kostar litla 785 dollara á shoehunting.com, rúmlega hundrað þúsund krónur. Þar sem ekki allir hafa efni á slíkum munaði er líka hægt að fá Doverly skó frá Nine West á sömu vefsíðu fyrir aðeins tæplega áttatíu dollara, rúmlega tíu þúsund krónur. Þeir eru engir Jimmy Choo en flottir engu að síður. SúpeRStjaRna í SanDöluM Söngkonunni Rihönnu er margt til lista lagt og eitt af því er að klæða sig eins og súperstjarnan sem hún er. Þessir hlébarðasand- alar frá Giuseppe Zanotti for Balmain fást á mytheresa.com og kosta 942 dollara, rúmlega 120 þúsund krónur. Giada-sand- alarnir frá Sam Edelman eru ekki alveg eins flottir en góðir engu að síður fyrir þá sem ekki hafa efni á að eyða morðfjár í skó. Þeir fást á shoehunting.com og kosta 112 dollara, tæplega fimmtán þúsund krónur. Sexí og SjÓðheitiR Stöllurnar Renée Zellweger og Gwen Stefani eru báðar mjög hrifnar af Pigalle-skónum frá Christian Louboutin sem kosta 565 dollara á shoehunting.com, rúmlega sjötíu þúsund krónur. Skórnir eru svo sannarlega sexí og sjóðheitir en Carrie-skórnir frá Guess eru það líka, og líta nánast eins út og Louboutin-skórnir. Eina sem skilur þá að er verðið en Carrie-skórnir kosta um níutíu dollara á shoehunting.com, aðeins rúmlega ellefu þúsund krónur. töff í SvöRtu Töffarinn og Twilight-stjarnan Kristen Stewart er þekkt fyrir að spóka sig um í strigaskóm og gallabuxum en á Teen Choice-verðlaunahátíðinni ákvað hún að klæða sig aðeins upp. Hún mætti í Rock & Republic-kjól og við hann var hún í geðveikum Jerome C. Rousseau-skóm sem fást á net-a-porter.com á rúmlega fimm hundruð dollara, rúmlega sextíu þúsund krónur. Á shoehunting.com er hægt að fá afar svipaða skó, þó ekki alveg eins flotta, frá All Black og kosta þeir rúmlega níutíu dollara, rúmar ellefu þúsund krónur. Díva í YveS Saint lauRent Dívan Beyoncé skellti sér í versl- unarleiðangur í New York ekki fyr- ir löngu og skartaði yndislegum bananagulum Tribute-skóm frá Yves Saint Laurent. Á shoehunt- ing.com er hægt að kaupa ýmsar útgáfur af Tribue-skónum og geta þeir kostað allt upp í 760 dollara, tæplega hundrað þúsund krónur. Á sömu síðu er hægt að fá góða eftirlíkingu frá Report Signature á 66 dollara, rúmlega átta þúsund krónur. hippaleg í hugo Leikkonan síhressa Drew Barrymore er óhrædd við að fara nýjar leiðir í tískunni. Myndir náðust af henni á leiðinni í jóga á dögunum í skemmtilegum, rauðum Hugo Boss-sandölum með kögri. Þessir hippalegu skór eru uppseldir en hægt er að fá Candela Fieco-sandala sem gefa hinum ekkert eftir á shoehunting.com á 67,50 dollara, eða tæplega níu þúsund krónur. SKÓR og fYlgihlutiR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.