Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2009, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2009, Blaðsíða 3
fréttir 15. september 2009 þriðjudagur 3 Á MILLJARÐA EN BORGAR EKKI andi að gildandi lög í landinu hafi afleiðingar sem nær allir sammæl- ast um að eru siðlausar. Stefán Már Stefánsson, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands og einn helsti sér- fræðingur landsins í félagarétti, meðal annars lögum um hluta- og einkahlutafélög, segir að vandamál- ið í tilfelli sögunnar af Bjarna sé fyrst og fremst hjá bankanum. „Það er einkum tvennt sem slær mig í þessu. Í fyrsta lagi spyr maður: Banki sem stendur í útlánastarfsemi á náttúru- lega að krefjast fullnægjandi trygg- inga fyrir útlánum sínum. Þetta er eiginlega aðallega bankinn sem ég er að gagnrýna hér: Á bankinn að lána 900 milljónir gegn veðum sem síðar reynast ófullkomin? Annað sem slær mig er að Bjarni fái svona hátt lán frá banka sem hann er ný- hættur hjá því hann hefur örugglega haft áhrif þarna inni ennþá. Það er ávallt spurning hvernig eigi að fara með lán og veðtryggingar í svona til- vikum.“ Breyttar vinnureglur ekki lagasetning Stefán Már segir aðspurður að það sé erfitt að breyta lögum um hluta- og einkahlutafélög á þann veg að eig- endur þeirra verði í persónulegum ábyrgðum fyrir þau lán sem félögin taka. „Að minnsta kosti þannig að vel fari,“ segir prófessorinn. Hann segir að lagalega séð sé líklega best að reyna að koma í veg fyrir lán og tryggingar af þessu tagi í framtíðinni með því að fara aft- ur yfir lög um fjármálafyrirtæki og reyna að styrkja þau og efla. „Það er auðvitað hægt að setja ákvæði í lög sem tryggja að aðeins sé lán- að út gegn mjög ríkum trygging- um. Það má líka segja að hægt sé að taka á þessu innan stjórna fjár- málafyrirtækja, þannig að þær láni ekki svona háar fjárhæðir nema veðin séu örugglega fullnægjandi. En stjórnir banka munu þá vænt- anlega verja sig með því að veð- in fyrir lánunum hafi verið full- nægjandi á þeim tíma sem þau voru veitt. Það er voðalega erfitt að ætla að banna bönkum að stunda lánveitingar þar sem veð kunna að vera ótrygg. Þess vegna er erfitt að eiga við þetta lagalega,“ segir Stefán. Niðurstaða hans er því sú að bankar þurfi að setja sér vandað- ar vinnureglur um lánveitingar og tryggingar fyrir þeim þó hann útiloki ekki að hægt sé að taka á slíkum lán- veitingum með lagasetningu. Stefán segir að eitt sem honum detti í hug sé að Fjármálaeftirlitið fylgist í fram- tíðinni með því að veðsetningar fyrir lánum fjármálafyrirtækja séu innan tiltekins ramma svo komist verði hjá því að veðsetningar sem taldar voru fullnægjandi í upphafi reynist síðar vera bara „eitthvert loft“. Siðleysi laganna Út frá þessu sést að þó að flestir sem hafa tjáð sig um meðferðina á skuldum Bjarna Ármannssonar telji að það sé með öllu siðlaust að hann geti skilið 800 milljóna skuldir inni í einu eignarhaldsfélagi, sérstaklega þegar litið er til þess að hann á millj- arða í tveimur öðrum, þá virðist ekki vera hægt að gera neitt lagalega séð til að sporna við því að slíkar ákvarð- anir séu teknar. Bjarni er því réttum megin við lögin í ákvörðunum sín- um og skoðunum en aftur á móti er varla hægt að segja að viðhorf hans geti talist mjög siðleg. Hins vegar getur Bjarni alltaf skýlt sér á bak við lögin og sagt að ekkert athuga- vert sé við uppgjör skulda eignarhaldsfélaga hans þar sem lög hafi ekki verið brotin þegar skuldir Ima- gine voru gerðar upp. Löglegt en siðlaust? Þegar almenningur ber þessa lendingu á skuldamálum Bjarna við Glitni saman við uppgjörið á eigin skuldum vegna fasteigna- kaupa til dæmis, blöskrar ýmsum að Bjarni geti gengið frá borði á þennan hátt og skilið skuldina eftir í félaginu. Spurningarnar sem vakna um réttmæti þessarar meðferðar á skuldum Bjarna eru bæði lagalegar og siðferðilegar. Jónas Kristjánsson bloggari er sá netverji sem í síðustu viku ræddi hvað mest um afskriftirn- ar á skuld Bjarna og afstöðu bankamannsins til málsins. Skoðun Jónasar, sem fullyrða má að sé skoðun breiðs hóps meðal almennings, er sú að þó að niðurstaðan sé lögleg sé hún siðlaus. Um þetta atriði segir Jónas: „Menn eiga að borga skuldir sínar. Einkum ef þeir hafa ráð á því. Engu máli skiptir, hvort viðkomandi er í yfirstétt, sem þarf ekki að leggja fram veð og getur lagt skuldina í verðlaust einkahlutafélag. Allir eiga að borga sínar skuldir og skuldir sinna einkahlutafélaga burtséð frá formsatriðum.“ Bjarni Ármannsson er hins vegar ósammála þessu, að því er virðist. Þrjú eignarhaldsfélög í eigu Bjarna Ármannssonar Upplýsingar úr ársreikningum fyrir árið 2008 ImagIne InveStment ehf. Skuldir: 868 milljónir. eignir: 300 þúsund. tap á árinu 2008: 1.243,7 milljónir. Skuldirnar afskrifaðar að mestu hjá Glitni. SjÁvarSýn ehf. Skuldir: 1.427,3 milljónir. eignir: 3.577,9 milljónir. hagnaður á árinu 2008: 398 milljónir króna. eigið fé: 2.150,8 milljónir. LandSýn ehf. Skuldir: 4.425 milljónir. eignir: 6.203 milljónir. hagnaður á árinu 2008: 287 milljónir. eigið fé: 1.778 milljónir. „Geri hann það ekki mun slyðruorð siðleysisins loða við hann það sem eftir er. Bjarni hefur, eins og aðrir, val: Að halda áfram að vera stór- eignamaður og fjárfestir eða ná sátt við samfélagið.“ Bjarni á að borga Jón Ólafsson siðfræðingur telur að Bjarni Ármannsson eigi að borga skuld sína við Glitni vilji hann ná sáttum við íslenskt samfélag, jafnvel þó honum beri ekki lagaleg skylda til þess. neitar að tjá sig Bjarni Ármannsson vill ekki ræða um siðferðilegt réttmæti þess að skuldir einkahlutafélags hans séu af- skrifaðar þrátt fyrir að hann eigi milljarða inni í öðrum eignarhaldsfélögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.